Síða 1 af 1

LG KU990 Viewty - Vantar álit á þessum síma

Sent: Fim 10. Jún 2010 11:59
af Aimar
http://www.gsmarena.com/lg_ku990_viewty-2070.php

Hafa menn einhverja reynslu af þessum síma?
Ánægðir eða ósáttir?

Hef verið að skoða nýja síma og mér var boðinn þessi á 15kall. Vantar bara álit manna á honum.

kv. A

Re: LG KU990 Viewty - Vantar álit á þessum síma

Sent: Fim 10. Jún 2010 12:39
af addifreysi
Flottur og góður sími, ég á svona og nota hann mikið til að taka myndir í staðinn fyrir að þurfa að vera alltaf með myndavél. Þetta er flottur og góður sími ég mæli með honum :D

Re: LG KU990 Viewty - Vantar álit á þessum síma

Sent: Fim 10. Jún 2010 13:07
af Halli25
er sáttur við minn EFTIR að ég stillti birtustig, snertitring o.fl. rafmagnseyðslutengd, áður þá endist hann bara í 2 daga nú er hann að ná í 5 daga á sömu hleðslu :)

Flott myndavél og verulega þægilegt að hafa snertiskjá, vill helst ekki sjá annað eftir að hafa prófað það. Væri til í öflugri síma en sambærilegur sími með öflugri vélbúnaði er bara að kostar 2-3x meira :S

Re: LG KU990 Viewty - Vantar álit á þessum síma

Sent: Fim 10. Jún 2010 13:16
af hagur
faraldur skrifaði:er sáttur við minn EFTIR að ég stillti birtustig, snertitring o.fl. rafmagnseyðslutengd, áður þá endist hann bara í 2 daga nú er hann að ná í 5 daga á sömu hleðslu :)

Flott myndavél og verulega þægilegt að hafa snertiskjá, vill helst ekki sjá annað eftir að hafa prófað það. Væri til í öflugri síma en sambærilegur sími með öflugri vélbúnaði er bara að kostar 2-3x meira :S


Frúin mín á svona síma, er ánægð með hann fyrir utan einmitt rafhlöðuendingu, sem er frekar léleg. Manstu nokkuð nákvæmlega hvað það var sem þú stilltir til að auka endinguna á batteríinu?

Edit:
Heyrðu, nevermind, held ég hafi fundið þetta allt. Setti brightness í 0, backlit í 10 sec. Activate-aði power saving mode og slökkti alveg á snerti-titringnum. Sjáum hvað það gerir :8)

Re: LG KU990 Viewty - Vantar álit á þessum síma

Sent: Fim 10. Jún 2010 13:30
af g0tlife
á svona síma en hvað er málið með að setja myndir frá honum inná tölvu ? Hef enþá ekki náð því. Finn aldrei forrit til þess ;o Einhver hjálp ?

Re: LG KU990 Viewty - Vantar álit á þessum síma

Sent: Fim 10. Jún 2010 13:53
af andripepe
ég notaði bara bluetooth til að setja myndirnar á tölvuna!


en annars var þessi sími ekki fyrir mig, á mjög erfitt með að senda sms með honum( þarf að senda sms í vinnuni,gat verið orðið soldið þreytt). En annars var hann flottur í öllu hinu, rafhlaðan dugði alltaf i 4-6 daga eða meira, heyrist hátt í honum, og mjög auðvelt að breyta öllu i hinum viðmóti, hringingum etc etc,
og Frábær myndavél, sem eins og einhver annar kom með hérna áðan,

mæli hiklaust með honum ef þú ert flinkur á snertiskjá :P !!! annað en ég :D hehe með mina boxpúðaputta, :(

Re: LG KU990 Viewty - Vantar álit á þessum síma

Sent: Fim 10. Jún 2010 14:36
af himminn
Gaf systir minni svona í afmælis gjöf, hún er hæst ánægð með hann.
Það sem ég hef tekið eftir er að það er flott myndavél á þessu miðað við aðra síma. Snerti skjárinn hefur böggað mig en það er eflaust vegna þess að ég er með stóra fingur, annars sé ég ekkert að honum :)

Re: LG KU990 Viewty - Vantar álit á þessum síma

Sent: Fim 10. Jún 2010 14:56
af Halli25
hagur skrifaði:
faraldur skrifaði:er sáttur við minn EFTIR að ég stillti birtustig, snertitring o.fl. rafmagnseyðslutengd, áður þá endist hann bara í 2 daga nú er hann að ná í 5 daga á sömu hleðslu :)

Flott myndavél og verulega þægilegt að hafa snertiskjá, vill helst ekki sjá annað eftir að hafa prófað það. Væri til í öflugri síma en sambærilegur sími með öflugri vélbúnaði er bara að kostar 2-3x meira :S


Frúin mín á svona síma, er ánægð með hann fyrir utan einmitt rafhlöðuendingu, sem er frekar léleg. Manstu nokkuð nákvæmlega hvað það var sem þú stilltir til að auka endinguna á batteríinu?

Edit:
Heyrðu, nevermind, held ég hafi fundið þetta allt. Setti brightness í 0, backlit í 10 sec. Activate-aði power saving mode og slökkti alveg á snerti-titringnum. Sjáum hvað það gerir :8)

Myndi líka slökkva á 3G líka, það étur upp batterý og setja það bara á ef þú ert að nota það.
Fann guide með að googla en er ekki að finna hann í fljótu bragði aftur...

andripepe skrifaði:mæli hiklaust með honum ef þú ert flinkur á snertiskjá :P !!! annað en ég :D hehe með mina boxpúðaputta, :(

Getur fengið þér penna til að pikka ef þú ert með stóra putta :)

Re: LG KU990 Viewty - Vantar álit á þessum síma

Sent: Fim 10. Jún 2010 15:56
af Heliowin
Hann er að reynast mér svona þokkalega.
En myndavélin í honum er þó ágæt.

Re: LG KU990 Viewty - Vantar álit á þessum síma

Sent: Lau 19. Jún 2010 17:29
af daniellos333
Aimar skrifaði:http://www.gsmarena.com/lg_ku990_viewty-2070.php

Hafa menn einhverja reynslu af þessum síma?
Ánægðir eða ósáttir?

Hef verið að skoða nýja síma og mér var boðinn þessi á 15kall. Vantar bara álit manna á honum.

kv. A


ég á hann, lélegt batterý og fyrsta mánuðin sem ég átti hann þá var alltaf að kveikna á skjánum jafnvel þótt ég hafi ekkert verið að nota hann og rafhlaðan eyddist jafnvel ennþá hraðar..

Myndavélin er ágæt samt..

btw ég sá einhvern hérna segja að hann hafi notað blutooth til að láta myndir inn á tölvuna, hvaða forrit notaru? Og hvernig fórstu af því inni í símanum?

Re: LG KU990 Viewty - Vantar álit á þessum síma

Sent: Lau 19. Jún 2010 20:26
af Hargo
Á ég ekki sjálfur svona síma en kunningi minn fékk sér hann nýlega. Það helsta sem böggar hann er einmitt batterýendingin og eitthvað vandamál við að skrifa sms, þ.e.a.s. ef maður ætlar að hætta við að skrifa smsið þá neyðist maður alltaf til að seiva or some shit (þeir sem eiga símann geta kannski upplýst um þetta betur, minnir að þetta hafi verið einhvern veginn svona). Hinsvegar er myndavélin mjög góð.

Ég ætlaði einmitt sjálfur að fá mér þennan síma þar til ég ákvað að taka Nokia 5230 frekar, hann var að fá betri meðmæli frá fólki hér og starfsmanni verslunarinnar. Snertiskjárinn er viðbragðsfljótur og mjög þægilegt að skrifa sms, fín ending á batterý, GPS, 3G og þetta helsta. Hinsvegar er myndavélin bara 2mp á meðan myndavélin í Viewty er 5mp held ég, en það truflar mig lítið þar sem ég nota hana sjaldan.

Hinsvegar er 15þús kall fyrir þennan Viewty síma líklega fín kaup ef þú ert að fá hann nýjan með 2 ára ábyrgð.