Síða 1 af 1

Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 19:31
af zlamm
Ég er semsagt að fara að selja þessa hluti og er að pæla hvað ég ætti að selja þá á. þeir eru soldið gamlir, ég veit

Skjákort: Mynd Riva TNT2 AM64E1P-32MB
Skjákort: Mynd prolink vga 3D
Hljóðkort: Mynd ct4760
Netkort: Mynd Dm9102af
Ram: Mynd Kingston 512 MB - DIMM 184-pin - DDR (KTD4400/512)
Vifta: Mynd 230W ATX Power Supply with 12CM Cooling Fan (ATX-230)

Svo, hvað segiði

Re: Væri til í mat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 20:11
af intenz
lol ég hélt fyrst að þessi þráður væri um hversu svangur þú værir

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 20:38
af BjarkiB
Ekki mikið 10-20 þús kannski.

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 20:47
af zlamm
það er allt í lagi. en hvað er hver hlutur að fara á mikið haldi þið?

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 21:06
af sisso
þetta er allt eld gamalt

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 21:20
af Gúrú
Tiesto skrifaði:Ekki mikið 10-20 þús kannski.


Uuuuu what? Nei, aldrei nálægt þessu. :?

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 21:27
af lukkuláki
Ég væri hissa ef þú næðir 5000 kr. total

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 22:11
af zlamm
Okey mér er sama hvað ég er að fara að ná þessu í total, ég vill bara vita hvað ég ætti að geta fengið mikið fyrir hvern hlut. TAKK!

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 22:15
af KrissiK
5-10þ líklegast!

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 22:16
af Halli13
KrissiK skrifaði:5-10þ líklegast!

hann sagðist vilja fá fyrir hvern hlut ekki allan pakkann

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 22:17
af intenz
Ég býð fimm drullukökur

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 22:22
af zlamm
Þakka þér Halli

Óþroskað, virkilega óþroskað Intenz

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 22:25
af intenz
zlamm skrifaði:Þakka þér Halli

Óþroskað, virkilega óþroskað Intenz

Ég er ekki að djóka, þetta er svo gamalt og úrelt að ég myndi ekki taka við þessu þó þú myndir borga með þessu. Þetta myndi bara taka pláss.

En það er MJÖG erfitt að gefa þér verð fyrir hvern hlut í þessu. En ég yrði mjög hissa ef þú fengir 5000 kall fyrir þetta allt saman.

En ég biðst velvirðingar á off topici.

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 22:28
af vesley
Það eina sem þú færð eitthvern pening fyrir væri DDR minnið, en þau eru ansi há í verði í dag.

Allt hitt er nánast alveg verðlaust.

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 22:30
af zlamm
og hvað væri minnið að fara á mikið?

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Mið 02. Jún 2010 22:43
af lukkuláki
vesley skrifaði:Það eina sem þú færð eitthvern pening fyrir væri DDR minnið, en þau eru ansi há í verði í dag.

Allt hitt er nánast alveg verðlaust.


Ekki 266MHz minni og þar að auki 512mb. Þau eru til úti um allt. Jæja kannski 2000 á góðum degi :)
Þetta væri einhvers virði ef þetta væri 1GB.

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Fim 03. Jún 2010 07:26
af zlamm
ég er með annað 512 mb þannig að saman gera þau 1 GB

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Fim 03. Jún 2010 09:36
af beatmaster
1500-2000 kr. fyrir 2x512 mb DDR minnið, allt annað er nú bara gefins gegn því að verða sótt

Tiesto skrifaði:Ekki mikið 10-20 þús kannski.

Hvernig þú komst að þessari niðurstöðu er mér gersamlega óskiljanlegt :roll:

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Fim 03. Jún 2010 09:38
af lukkuláki
zlamm skrifaði:ég er með annað 512 mb þannig að saman gera þau 1 GB


Flott hjá þér þá geturðu kannski fengið 2 x 2000 kr. ef þú finnur einhvern sem er að nota 266MHz móðurborð í dag.

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Fim 03. Jún 2010 12:58
af FriðrikH
Ég skal borga þér 2000 fyrir 2*512mb minnin

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Lau 05. Jún 2010 09:41
af zlamm
Svo er ég líka með CD/DVD spilara sem ég keypti á síðasta ári fyrir 5500, er að pæla í 4500 fyrir hann.

Re: Væri til í verðmat á þessa hluti

Sent: Lau 05. Jún 2010 09:59
af lukkuláki
zlamm skrifaði:Svo er ég líka með CD/DVD spilara sem ég keypti á síðasta ári fyrir 5500, er að pæla í 4500 fyrir hann.


Þú ert frekar vonlaus í þessu er þetta bara DRIF ekki skrifari ?
Er þetta SATA eða PATA
TEGUND ?

Ef þetta er bara drif (ekki skrifari) þá fást þeir nýir á undir 4000 í dag.
Ef þetta er skrifari DVD RW þá ertu allavega með seljanlegri vöru en færð sennilega ekki nema svona 3000 - 3500 fyrir hann