Síða 1 af 1
Skjákortsuppfærsla
Sent: Sun 30. Maí 2010 20:17
af Leviathan
Mig langar svakalega að uppfæra hjá mér skjákortið, þar sem það sem ég er með núna er svakalegur flöskuháls þegar það kemur að því að spila leiki. Ég þarf alls ekkert það besta en DX11 stuðningur væri mjög góður kostur. Var að pæla í
þessu korti, gæti ég eitthvað notað kortið sem ég er með fyrir samsíða því (hafa annan skjá tengdan við það þá) eða eða er það ekki séns með ATI og Nvidia kort?
Er enginn hardcore gamer og skjárinn sem ég er að nota núna styður bara 1280x1024 þannig ég þarf ekkert ofur kort, aðalega að það geti spilað nýja leiki í ágætis gæðum í þessari upplausn.
Re: Skjákortsuppfærsla
Sent: Sun 30. Maí 2010 20:33
af Sydney
Hvað varðar dual skjákort, það er hægt já, ef þú ert með tvo skjái geturu látið eitt skjákort sjá um hvert, gæti reyndar verið eitthvað driver fuckup ef þú ert að nota ATi og Nvidia.
Myndi persónulega skella mér a GTX260, fyrir aðeins meira pening færðu öflugri kort sem mun virka fullkomnlega saman með gamla kortið þitt (sami driver og alles).
Re: Skjákortsuppfærsla
Sent: Sun 30. Maí 2010 23:36
af Leviathan
Mér lýst eiginlega aðeins betur á ATI kortið útaf DX11 og vil helst ekki eyða mikið meiru en 25.000. Er þess virði að sleppa DX11 fyrir aðeins betra performance?
Re: Skjákortsuppfærsla
Sent: Sun 30. Maí 2010 23:40
af Frost
Leviathan skrifaði:Mér lýst eiginlega aðeins betur á ATI kortið útaf DX11 og vil helst ekki eyða mikið meiru en 25.000. Er þess virði að sleppa DX11 fyrir aðeins betra performance?
Ég myndi skella mér á 5770. Besta "budget" kort í dag!
Re: Skjákortsuppfærsla
Sent: Þri 01. Jún 2010 01:00
af Leviathan
Ætti maður þá að skella sér á 5770 á morgun og selja svo gamla upp í eða er GTX260+9500GT eitthvað sniðugt? Getur einhver sagt mér hvort móðurborðið mitt styðji það einusinni, það eru tvö PCI-Express port en ég held að bara annað þeirra keyri á fullum hraða.
Re: Skjákortsuppfærsla
Sent: Þri 01. Jún 2010 03:53
af gardar
Ég myndi ekki þora að mixa saman ati og nvidia...
Fáðu þér gtx260, jafnvel notað... Ég fékk notað gtx260 á 15þús kall hér á vaktinni

Re: Skjákortsuppfærsla
Sent: Þri 01. Jún 2010 07:42
af vesley
Ef að NVidia kortið þitt er 8000 serían eða nýrra þá gætiru notað það sem auka physx kort

Re: Skjákortsuppfærsla
Sent: Þri 01. Jún 2010 11:00
af Leviathan
Ég hélt að það væri búið að loka á það, var einmitt að hugsa það til að byrja með en ég gúgglaði það e-ð aðeins og las að Nvidia lokaði á PhysX ef það er skjákort frá öðrum framleiðanda í vélinni.
Re: Skjákortsuppfærsla
Sent: Þri 01. Jún 2010 11:03
af vesley
Leviathan skrifaði:Ég hélt að það væri búið að loka á það, var einmitt að hugsa það til að byrja með en ég gúgglaði það e-ð aðeins og las að Nvidia lokaði á PhysX ef það er skjákort frá öðrum framleiðanda í vélinni.
Það er ekki alveg rétt , hef bæði lesið að þeir gerðu það í driverunum og líka að það var gert "óvart" annars er það hægt í mörgum driverum , til hellingur af tutorials á netinu.
Re: Skjákortsuppfærsla
Sent: Þri 01. Jún 2010 11:37
af Leviathan
Já, sá nefninlega svona tutorial á einhverju spjallborði í gær, en þar voru þeir að tala um að þótt það væri hægt að nota gamla drivera núna þá myndu nýrri útgáfur af PhysX þurfa nýrri drivera.
Re: Skjákortsuppfærsla
Sent: Þri 01. Jún 2010 15:24
af beatmaster
Leviathan skrifaði:Ég hélt að það væri búið að loka á það, var einmitt að hugsa það til að byrja með en ég gúgglaði það e-ð aðeins og las að Nvidia lokaði á PhysX ef það er skjákort frá öðrum framleiðanda í vélinni.
Það er lítið mál að opna fyrir það aftur með "smá" fikti

Re: Skjákortsuppfærsla
Sent: Mið 02. Jún 2010 04:21
af Leviathan
Ég skellti mér á 5770 og kortin komast ekki einusinni í móðurborðið saman því þau eru of stór. Svakalegur munur annars á þessum kortum.
Re: Skjákortsuppfærsla
Sent: Mið 02. Jún 2010 12:19
af vesley
Leviathan skrifaði:Ég skellti mér á 5770 og kortin komast ekki einusinni í móðurborðið saman því þau eru of stór. Svakalegur munur annars á þessum kortum.
Of stór þá því þau eru dual slot eða útaf því þau eru svo löng?