Síða 1 af 1

Razer Mamba

Sent: Lau 22. Maí 2010 20:23
af Hj0llz
Sælir

Á einhver þessa mús sem getur sagt hvort að þessi blessaða mús sem er að éta upp heilann á mér sé virkilega 24þús króna virði?
Mér finnst fáránlegt að eyða svona miklum pening í mús en er samt byrjaður í stríði í hausnum á mér (pros vs cons).

Væri vel þegið að heyra reynslusögur um þessa mús


P.s.
Búinn að skoða öll myndbönd um hana, reviews og unboxings.

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 22. Maí 2010 20:39
af Frost
Ég á þessa mús og myndi aldrei fá mér aðra mús. Það er svo rugl þæginlegt að hafa hana þráðlausa og þæginlegt grip á henni. Ég spilaði leiki með þessari mús og það var bara alveg eins og að hafa mús með þræði þegar hún er þráðlaus nema betri hreyfingar möguleikar.

Gallarnir eru hinsvegar... Scrollið hjá mér er byrjað að gefa frá sér svona hljóð; http://www.youtube.com/watch?v=uJrlG4U8C2I. Það er samt aðferð til að laga það en ég á ekki rétta efnið í það; http://www.youtube.com/watch?v=PstjxLJX9rc.

Ég verð samt að segja þrátt fyrir þetta leiðindarhljóð þá myndi ég aldrei skipta þessari mús út fyrir aðra. Mér finnst hún aðeins of dýr en samt peningan virði.

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 22. Maí 2010 20:53
af Hj0llz
haha flott að eiga rándýra mús sem maður þarf að taka í sundur og smyrja með sílikoni :D

En þakka þér kærlega fyrir þetta svar Frost :)

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 22. Maí 2010 20:58
af Frost
Ekki málið. Á að fá sér eina svona :P?

Ég þarf svo að fara að laga þetta hljóð. Ef ég scrolla hratt er þetta eins og ýla... :lol:

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 22. Maí 2010 21:01
af Hj0llz
Eins og ég sagði ég er að berjast við sjálfan mig um það hvort að ég eigi að kaupa hana eða ekki þar sem mx510 músin mín er orðin vel slöpp...enda 6 ára gömul

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 22. Maí 2010 21:22
af Frost
Ég held að þú eigir alls ekki eftir að sjá eftir því. Hún er góð á alla vegu.

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 22. Maí 2010 21:22
af Hj0llz
fyrir utan ískrið semsagt ;)

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 22. Maí 2010 21:33
af Frost
Lagar það bara :P

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 22. Maí 2010 21:57
af Hj0llz
vill helst ekki kaupa eitthvað og þurfa að gera við það eftir 2 vikur :D en ég held áfram að berjast í hausnum á mér :P

enn og aftur þakka ég fyrir hreinskilið svar Frost

Edit
--typos

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 22. Maí 2010 21:57
af Nariur
Ég er búinn að vera að hugsa það nákvæmlega sama

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 22. Maí 2010 22:19
af Hj0llz
Endilega komið fleir með reynslusögur af þessari mús fyrir okkur hina

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 29. Maí 2010 16:29
af Nariur
bump

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 29. Maí 2010 18:16
af Klemmi
Er til sýnis upp í búð ef einhver hefur áhuga :)

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 29. Maí 2010 18:23
af Hj0llz
Mæti á mánudaginn, er einmitt að mæta í borg óttans á morgun

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 29. Maí 2010 18:26
af Klemmi
Hj0llz skrifaði:Mæti á mánudaginn, er einmitt að mæta í borg óttans á morgun

Færð að spila eitthvað skemmtilegt og prófa mýsnar, erum með hana tengda við helvíti flotta sýningarvél, 2x GTX470, i7 930 og bara fjör ;)

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 29. Maí 2010 18:30
af Hj0llz
Klemmi skrifaði:
Hj0llz skrifaði:Mæti á mánudaginn, er einmitt að mæta í borg óttans á morgun

Færð að spila eitthvað skemmtilegt og prófa mýsnar, erum með hana tengda við helvíti flotta sýningarvél, 2x GTX470, i7 930 og bara fjör ;)


Can I live there? :D

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 29. Maí 2010 18:34
af hauksinick
Hj0llz skrifaði:
Klemmi skrifaði:
Hj0llz skrifaði:Mæti á mánudaginn, er einmitt að mæta í borg óttans á morgun

Færð að spila eitthvað skemmtilegt og prófa mýsnar, erum með hana tengda við helvíti flotta sýningarvél, 2x GTX470, i7 930 og bara fjör ;)


Can I live there? :D


flytja inn með mér ?

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 29. Maí 2010 19:18
af kubbur
Hvað með að kaupa músina og skila henni alltaf þegar hún bilar bara

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 29. Maí 2010 19:50
af Hj0llz
bý á akureyri, þyrfti þá alltaf að vera að senda hana suður ef hún skyldi bila sem er náttúrulega ekkert pottþétt að hún geri, og þá er ég farinn að standa í aukakostnaði við mús sem er nú þegar svolítið dýr (þá er ég ekki að tala um verðlagninguna hjá Klemma og fél. heldur Razer sjálfa)

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 29. Maí 2010 20:35
af kubbur
skil þig, er ekkert fyrirtæki á akureyri sem selur þessa mús, eða er til í að kaupa hana inn fyrir þig

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 29. Maí 2010 20:41
af Hj0llz
jújú gæti alveg talað tölvutek-menn í það að fá hana fyrir mig ef ég myndi ákveða að kaupa hana hérna en ekki í rvk

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 29. Maí 2010 20:45
af kubbur
athugaðu eitt samt
Many products use the same 2.4GHz frequency band to operate. To minimize interference, remove all devices and peripherals (e.g.: wireless keyboard, mice and mobile phones etc) that may potentially cause signal interference around the surrounding area and minimize the distance between Razer Mamba and the charging dock.


svosem ekkert nýtt, en gott að hafa í huga ef þú ert fleiri en 1 wireless devices

ég lenti í þvílíkum vandræðum með mx air músina mína á sínum tíma því routerinn, heyrnatólin og lyklaborðið trufluðu hana svo mikið

Re: Razer Mamba

Sent: Lau 29. Maí 2010 20:48
af Hj0llz
kubbur skrifaði:athugaðu eitt samt
Many products use the same 2.4GHz frequency band to operate. To minimize interference, remove all devices and peripherals (e.g.: wireless keyboard, mice and mobile phones etc) that may potentially cause signal interference around the surrounding area and minimize the distance between Razer Mamba and the charging dock.


svosem ekkert nýtt, en gott að hafa í huga ef þú ert fleiri en 1 wireless devices

ég lenti í þvílíkum vandræðum með mx air músina mína á sínum tíma því routerinn, heyrnatólin og lyklaborðið trufluðu hana svo mikið


Já flest sem er þráðlaust er yfirleitt viðkvæmt því miður

Re: Razer Mamba

Sent: Sun 30. Maí 2010 00:21
af himminn
Halló þráðlaus deathadder

Re: Razer Mamba

Sent: Sun 30. Maí 2010 03:43
af Nariur
himminn skrifaði:Halló þráðlaus deathadder


Ekki alveg, en nálægt.

Klemmi skrifaði:Er til sýnis upp í búð ef einhver hefur áhuga :)


Ef ég bara væri fyrir sunnan. :(