Hreinsa harðan disk
Sent: Mán 02. Feb 2004 22:48
Sælir.
Ég er með Thinkpad T21 lappa og er í einhverjum vandræðum með hana. Setti upp WinXP, fékk blaster og eitthvað annað leiðinda drasl. Hvað um það, þá ákveð ég að strauja allt saman. Vandamálið er núna að ekkert gengur að installa neinu.
Ég fæ núna villumeldingu þegar WinXP setup er að afrita af disknum í byrjun setup að annaðhvort geti það ekki afritað einhverjar ákveðnar skrár eða blue screen sem á stendur irql_not_less_than_or_equal. Þennan bláskjá fékk ég líka áður en ég straujaði.
Ég er búinn að greina vandamálið sem svo, að annaðhvort er geisladrifið bilað, eða harði diskurinn. Ég ætla að útiloka harða diskinn með því að hreinsa hann alveg. Er einhver með góð ráð til þess? Ég á win98 cd sem ég get notað til að boot-a inn í dos og gert þar. Búinn að nota fdisk til að eyða öllum partitions og resetja MBR.
Aðrar hugmyndir vel þegnar. Nýherji vill nefninlega fá reikning til að taka hana í skoðun, og ég keypti hana notaða og á ekki slíkan reikning. Hún er í ábyrgð til 23. feb þannig ég er að renna út á tíma.
Kveðja,
Jóhannes.