Hreinsa harðan disk


Höfundur
enypha
Fiktari
Póstar: 81
Skráði sig: Lau 31. Maí 2003 23:21
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Hreinsa harðan disk

Pósturaf enypha » Mán 02. Feb 2004 22:48

Sælir.

Ég er með Thinkpad T21 lappa og er í einhverjum vandræðum með hana. Setti upp WinXP, fékk blaster og eitthvað annað leiðinda drasl. Hvað um það, þá ákveð ég að strauja allt saman. Vandamálið er núna að ekkert gengur að installa neinu.
Ég fæ núna villumeldingu þegar WinXP setup er að afrita af disknum í byrjun setup að annaðhvort geti það ekki afritað einhverjar ákveðnar skrár eða blue screen sem á stendur irql_not_less_than_or_equal. Þennan bláskjá fékk ég líka áður en ég straujaði.
Ég er búinn að greina vandamálið sem svo, að annaðhvort er geisladrifið bilað, eða harði diskurinn. Ég ætla að útiloka harða diskinn með því að hreinsa hann alveg. Er einhver með góð ráð til þess? Ég á win98 cd sem ég get notað til að boot-a inn í dos og gert þar. Búinn að nota fdisk til að eyða öllum partitions og resetja MBR.

Aðrar hugmyndir vel þegnar. Nýherji vill nefninlega fá reikning til að taka hana í skoðun, og ég keypti hana notaða og á ekki slíkan reikning. Hún er í ábyrgð til 23. feb þannig ég er að renna út á tíma.

Kveðja,
Jóhannes.


x86 4Mhz - 640KB RAM - 30MB HDD - Gultintaður skjár


Snikkari
spjallið.is
Póstar: 475
Skráði sig: Mið 19. Nóv 2003 21:58
Reputation: 7
Staðsetning: Hfj.
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hreinsa harðan disk

Pósturaf Snikkari » Mán 02. Feb 2004 22:56

Segðu bara að þú hafir keypt hana notaða og finnir ekki reikninginn.
Þeir hljóta að skilja það.
Þú getur líka beðið fyrri eiganda að láta þig fá reikninginn.


CM Scout 2 | | | Corsair RM850x
G.Skill 2x8GB Trident Z 3200Mhz | Samsung 870 EVO plus M.2 1TB |

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 02. Feb 2004 23:06

alltaf að muna eftir því að biðja um nótuna þegar maður kaupir notaða hluti sem eru enn í ábyrgð




Höfundur
enypha
Fiktari
Póstar: 81
Skráði sig: Lau 31. Maí 2003 23:21
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf enypha » Mán 02. Feb 2004 23:09

Já, keypti hana frá USA. Þeir ætla að senda mér nótu - it's in the mail. Var að fá póst um það. En einhverjar hugmyndir með hreinsunina?


x86 4Mhz - 640KB RAM - 30MB HDD - Gultintaður skjár


valur
Fiktari
Póstar: 88
Skráði sig: Fös 25. Okt 2002 00:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf valur » Mán 02. Feb 2004 23:26

Sjálfur lenti ég í svipuðu. Ég fór útí búð, keypti mér 2.5" adapter, smellti disknum bara í desktop vélina og formataði þar.. :D