Síða 1 af 1

þarf smá ráðleggingu varðandi kaup á hýsingu

Sent: Sun 16. Maí 2010 02:05
af asgeir123
Þannig er mál með vexti að mér langar til að losna við eitthvað af hörðu diskunum úr turninum mínum, vegna hita og til að rýma fyrir ssd disk. Ég er búinn að vera að spá í þessum http://www.amazon.com/Vantec-NST-400MX- ... roduct_top en ég er búinn að lesa ýmsar kvartanir varðandi hávaða og er einn commentarana kominn með lausn á þessu að sjóða "120 Ohm resistor" í snúruna hjá viftunni (líklega til að hægja á henni). Er öruggt að gera þetta og væri ég að brjóta ábyrgðina á hýsingunni?

Re: þarf smá ráðleggingu varðandi kaup á hýsingu

Sent: Sun 16. Maí 2010 02:28
af vesley
Ef að þú sýður resistor við snúruna þá missiru ábyrgðina. Einfalt er það .

En það eru til aðrar hýsingar hér t.d. eins og þessi http://buy.is/product.php?id_product=1410 með 80mm viftu sem hefur on/off rofa

Annars gætiru líka skipt um viftu, og fundið aðra sem gæti verið hljóðlátari ( sem mér finnst hinsvegar vera ólíklegt)


Líka til græjur eins og þessi http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=18981

Re: þarf smá ráðleggingu varðandi kaup á hýsingu

Sent: Sun 16. Maí 2010 02:42
af asgeir123
En helduru að þetta myndi virka tæknilega séð? Eru miklar líkur á að maður klúðri þessu? Er algjör lóðbolta nýliði.

Re: þarf smá ráðleggingu varðandi kaup á hýsingu

Sent: Sun 16. Maí 2010 09:22
af slapi
Sjóða:
Mynd
eða...
Mynd




Lóða:
Mynd

Re: þarf smá ráðleggingu varðandi kaup á hýsingu

Sent: Sun 16. Maí 2010 11:01
af SteiniP
Ef þú hefur ALDREI lóðað áður, þá eru mjög miklar líkur á að þú klúðrir þessu. :D Annars væri þetta nokkuð einföld aðgerð ef þú veist hvað þú ert að gera.
En já ábyrgðin fellur við allt svona fikt.