Síða 1 af 1
passar þessi örgjafi á þetta borð?
Sent: Mán 03. Maí 2010 21:31
af tomas52
Re: passar þessi örgjörvi á þetta borð?
Sent: Mán 03. Maí 2010 21:37
af Hnykill
Einfalda svarið er nei.. þetta væri þá AM3 örgjörvi á AM2 móðurborði.
Re: passar þessi örgjörvi á þetta borð?
Sent: Mán 03. Maí 2010 21:39
af mattiisak
nei örgjörvin er fyrir socket (AM3) enn móðurborðið ( Socket AM2+/ AM2 )
Re: passar þessi örgjörvi á þetta borð?
Sent: Mán 03. Maí 2010 21:40
af tomas52
okeii takk fyrir svörin

Re: passar þessi örgjörvi á þetta borð?
Sent: Mán 03. Maí 2010 21:50
af Olafst
Það þarf nú ekki að gera annað en að kíkja á
CPU support listann til að sjá að þessi örgjörvi virkar með þessu borði.
Re: passar þessi örgjörvi á þetta borð?
Sent: Mán 03. Maí 2010 22:33
af Nariur
síðast þegar ég vissi var þetta backwards compatible... svo er örrinn á listanum yfir supported örgjörva. Ég er 99,999% viss um að það virki.
Re: passar þessi örgjörvi á þetta borð?
Sent: Þri 04. Maí 2010 02:16
af Bioeight
Hægt er að setja AM3 örgjörva í AM2/AM2+ socket svo lengi sem móðurborðsframleiðandinn hefur uppfært biosinn til að styðja örgjörvana. Hægt er að lesa smá um þetta á Wikipedia t.d. :
http://en.wikipedia.org/wiki/Phenom_II. Hann mun samt ekki nýtast fullum krafti, ef ég skil þetta rétt þá mun Hypertransport businn niðurklukkast eitthvað af því að það er einhver controller einhvers staðar. Þetta væri samt heljarinnar uppfærsla þrátt fyrir það og vel þessi virði. Ég var að pæla í að uppfæra örgjörvann minn á mínu AM2 móðurborði en þar hefur framleiðandinn ekki haft fyrir því að uppfæra BIOSinn og því er það ekki hægt. Það var inno3d borð ef ég man þetta rétt. Gigabyte eru mun duglegri við að uppfæra sín borð og því ætti allt að vera í góðu lagi með þetta. Þú þarft sem sagt þá bara að uppfæra BIOSinn ef þú ætlar að gera þetta.
Edit:
Misskilningurinn með þetta kemur líklegast frá því að AM2/AM2+ örgjörvar virka ekki í AM3 móðurborðum, sem sagt gömlu örgjörvarnir virka ekki í nýju móðurborðunum en nýju örgjörvarnir virka í gömlu móðurborðunum. Manni finnst það vera mjög mótsagnakennt en ... þannig er þetta bara.
Re: passar þessi örgjörvi á þetta borð?
Sent: Fim 06. Maí 2010 14:48
af tomas52
þannig að hann ætti að virka með þessu borði?
Re: passar þessi örgjörvi á þetta borð?
Sent: Fim 06. Maí 2010 22:53
af mattiisak
tomas52 skrifaði:þannig að hann ætti að virka með þessu borði?
já enn þú færð ekki allt aflið úr honum.
Re: passar þessi örgjörvi á þetta borð?
Sent: Fim 06. Maí 2010 23:48
af Bioeight
Stundum skrifa ég of mikið(eiginlega samt bara alltaf). Þetta virkar. punktur