Síða 1 af 1
Hjartaáfall
Sent: Fim 29. Jan 2004 10:37
af axyne
SHIT ég fékk hjartaáfall núna fyrir 1 min!!!
var að dúlla mér hérna á vaktinni að skoða posta.
síðan BÚMM!! ég heyri WD diskinn minn slökkva á sér. (heyrist auðveldlega því það er það eina sem heyrist í tölvunni minni). kemur svart á skjáinn. og verður svoleiðis í 3-4 sek síðan heyri ég WD diskinn kveikja aftur á sér og tölvan restartast.
ég er núna að taka Backup af öllu mikilvægu og búa mig undir það versta

Sent: Fim 29. Jan 2004 10:54
af kiddi
Velkominn í hinn dásamlega heim Western Digital! Þú mátt búast við að diskurinn verði alveg dauður innan sólarhrings, enjoy
(finnur einhver lykt af WD-hatri í mér?...vitleysa!)
Sent: Fim 29. Jan 2004 10:59
af axyne
kiddi skrifaði:Þú mátt búast við að diskurinn verði alveg dauður innan sólarhrings, enjoy

takk fyrir hughreystinguna!!!
Sent: Fim 29. Jan 2004 11:05
af kiddi
Þetta er bara svo þú flýtir þér í að taka viðeigandi ráðstafanir, ég er sjálfur búinn að lenda í þessu, ekki einusinni, ekki tvisvar heldur þrisvar!
Sent: Fim 29. Jan 2004 12:18
af GuðjónR
Og í öll skiptin með WD rusl!
Sent: Fim 29. Jan 2004 14:09
af Drizzt
af hverju helduru áfram með wd?
Sent: Fim 29. Jan 2004 14:22
af Pandemic
Þetta gerðist við minn disk líka hann hefur samt virkar í nokkra mánuði frá atvikinu ekkert að honum.
Sent: Fim 29. Jan 2004 15:41
af GuðjónR
Drizzt skrifaði:af hverju helduru áfram með wd?
Hann hélt ekki áfram með WD...heldur keypti nokkar í einu í upphafi.
Sent: Fim 29. Jan 2004 18:41
af xtr
Mínir báðir hafa gert þetta bara slökkva á sér þegar það er mikið álag og svo restart

En núna er ég með Samsung og líf mitt er fullkomið nema ég er svangur nuna
Sent: Fim 29. Jan 2004 20:42
af Hlynzi
Harðir diskar geta líka verið næmir fyrir hristingi. En ég á ekki þannig disk, vinur minn sýndi mér þetta hjá sér um daginn, á seagate disk. Ég á mjög svipaðann disk (seagate, bara aðeins minni í megabætum talið) og hann þolir gífurlegan hristing. Held að power tengið sé slappt hjá honum.
Sent: Fim 29. Jan 2004 22:45
af Icarus
sjit, ég á WD disk sem hefur farið að heyrast óvenjuhátt í, eins og floppy drif
núna bara vonar maður að hann haldi út þangað til að maður hefur efni á að kaupa nýjan disk. Vill ekki missa system diskinn minn

Sent: Mán 09. Feb 2004 23:29
af so
Er búinn að vera með WD diska í nokkur ár, hef náttúrulega stækkað reglulega en eins ótrúlega og það hljómar hafa þeir runnið ljúft og aldrei verið með neitt múður, svo ég hef ekkert upp á þá að klaga og mæli snnarlega með þeim...... þangað til annað kemur í ljós 7-9-13

Sent: Mán 09. Feb 2004 23:32
af Icarus
eins og þú segir, þá skiptirðu um reglulega, hve reglulega ? því að wd diskarnir fara með tímanum, t.d. er minn wd 2 ára og ekki er svo langt síðan að hann fór að gefa frá sér hljóð. Reyndar minnkaði það þegar ég bætti kælinguna í kassanum. Þar sem hitastigið fór frá því að maður brenndi sig við að koma sig við diskinn niður í kalt.