Síða 1 af 1

Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 19:11
af Intel1
Já, vona að þetta sé í réttum þræði, en já ég er að pæla í að fá mér fartölvu, er ekkert að hugsa um verð, er ekki að auglýsa eftir einni ætla að kaupa mér nýja, en já hver er besta fartölva sem þið hafið rekist á þegar að þið vafrið um á netinu ? (ath ekki bara á íslandi heldur allstaðar í heiminum)

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 19:23
af atlih
hvað á að kaupa sér eitthvað rándýrt?

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 19:27
af Glazier

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 19:27
af Intel1
atlih skrifaði:hvað á að kaupa sér eitthvað rándýrt?


Já þess vegna

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 19:35
af atlih
Það er hægt að gera custom alienware og panta. það getur maður bara valið hvað maður vill í tölvuna og ráðið verðinu með því

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 19:38
af Glazier
atlih skrifaði:Það er hægt að gera custom alienware og panta. það getur maður bara valið hvað maður vill í tölvuna og ráðið verðinu með því

Jeb.. þar er sko hægt að raða saman fartölvu fyrir meira en milljón :twisted:

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 19:58
af AntiTrust
Allt sem ber nafnið Thinkpad.

Besta fartölva sem ég gæti hugsað mér að eiga væri líklega T61p.

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 21:00
af ManiO
Hvað þýðir "besta"?

Hver og einn hefur sínar þarfir. T.d. Alienware lappi er ekki það sem einstaklingur sem ferðast mikið og þarf bara rétt að tékka emilinn sinn þarf.

Ef tilgangurinn er bara að eyða eins miklum peningum og mögulegt er þá er slatti í boði. Sá grein fyrir nokkrum árum þar sem eitthvað fyrirtæki var að smíða laptop kassa á yfir 5 milljónir.

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 21:11
af BjarniTS
geimveruvörurnar , í þann pakka færi ég aldrei.
Herfilegar í endursölu líka.
Þungar ,dýrar , heitar eða háværar

Mæli með toshiba M70
Líka ibmT42

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 22:18
af benson
Líklega einhver úr Sony Z seríunni.
http://www.sonystyle.com/webapp/wcs/sto ... 1644570897

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 22:20
af chaplin
Það sem AntiTrust sagði, ódrepandi vélar, mjög dýrar, en þú færð gæði fyrir allan peninginn.

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 22:40
af muntok
Ég er sennilega eini maðurinn á norðuhveli jarðar sem er búinn að skipta frá Mac yfir í PC á síðustu 5 árum...

Átti...
MacBook
MacBook Pro
Mac Mini...

Ég fékk mér nýja Lenovo ThinkPad T400 fyrir skemmstu og hún er klárlega sú tölva sem ég kann best við af þeim tölvum sem ég hef notað seinustu árin.

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 22:56
af Intel1
Er að pæla í http://reviews.cnet.com/laptops/hp-pavilion-dv7-3085dx/4507-3121_7-33776108.html?tag=rnav fyrir leiki :)... Þessi myndi vera að ná að runna flesta nýja leiki í hæstu gæðum ?

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 23:01
af Oak
hugsa að þú þurfir eitthvað betra skjákort en þetta...

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 23:04
af jagermeister
http://configure.us.dell.com/dellstore/config.aspx?c=us&cs=19&l=en&oc=dkcwbn1&s=dhs þarna gerði ég ofur-vél en því miður stóð 650.000 á verðmiðanum :D

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 23:16
af Intel1
haha ja.. ætla að kaupa mér borðtölvu líka... held að ég ætli að fá mér þessa fartölvu og borðtölvu með aðeins betri speccum :)

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 11. Apr 2010 23:40
af Hargo
AntiTrust skrifaði:Allt sem ber nafnið Thinkpad.


Tek undir þetta.

Getur customizað þína eigin Thinkpad vél á lenovo.com.

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Mán 12. Apr 2010 00:50
af Opes
muntok skrifaði:Ég er sennilega eini maðurinn á norðuhveli jarðar sem er búinn að skipta frá Mac yfir í PC á síðustu 5 árum...

Átti...
MacBook
MacBook Pro
Mac Mini...

Ég fékk mér nýja Lenovo ThinkPad T400 fyrir skemmstu og hún er klárlega sú tölva sem ég kann best við af þeim tölvum sem ég hef notað seinustu árin.


What? Einn one of a kind...

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 16. Maí 2010 02:47
af razrosk
Hef átt macbook, macbook pro (leiðinlegu tölvur, shit) en það sem ég á núna er gamall TP lappi ásamt Alienware... hef ekkert nema góða hluti að segja um TP þar sem að minn er buin að endast lengi og virkar enn fínt. Það er virkilega hægt að segja að TP eru "ódrepandi".

Samt ef þú ætlar að fá þér einhverja ofur fartölvu (í leiki, video editing eða einhvað álíka) og ert ekkert að fara spara þá mæli ég með að þú farir í Alienware/Sager/Clevo pakkan no doubt.

Ég á sjálfur 2 Alienware og það er ekkert sem kemur nálægt M17x (R2) vélinni performance wise... maður gæti sagt að þetta sé high-end-borðvél sett í fartölvu casing hehe... mátt samt gleyma því að vera ferðast og labba mikið um heimilið með hana því hún er ógeðslega þung miðað við fartölvu.

Smá svona til ykkar sem að hafið aldrei átt AW: JÁ, batterý endingin er 50min-1:30klst, Já það er hávaði í viftunum þegar maður er að spila þunga leiki, já tölvan verður heit þegar maður er að spila á fullu en ekkert brjálaðslega heit samt, já það er alveg eðlilegt og nei það er ekkert vandamál við ofhitnun þar sem að vifturnar eru helvíti góðar og halda hitanum á réttu stigi. - Þegar maður er ekkert að spila leiki/horfa á HD video er nánast ekkert hljóð í tölvunni, og hún verður allst ekkert heit.

Svo máttu ekki gleyma að AW á flottustu ferðatölvu designin ever .. AlienFX (ljósin) er alveg frábært aukaatriði og þú getur meira segja fengið "personalized nameplate" undir tölvuna með hvaða orði/um sem þú vilt.

Sager/Clevo er helvíti ljót tölva að mínu mati og myndi ég aldrei vilja eiga þannig bara útaf því :P

Gætir líka splæst í Asus G73 - alveg rosalega flott look á henni, getur "customizað" hana líka einhvað..

Re: Besta fartölva sem þið hafið rekist á!

Sent: Sun 16. Maí 2010 03:01
af Frost
En ef að þú ert að fara í leiki og þannig er þá ekki sniðugast að eyða þessum sama pening og þú ætlar að eyða í fartölvu í "skrímsli"?