Síða 1 af 2
er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Fös 26. Mar 2010 22:20
af tölvukallin
hann er 3 ár og er intel core 2 duo e6400 tölvan frosnar 3tíma fresti
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Fös 26. Mar 2010 22:24
af Lusifer
Mér dettur helst í hug að viftan hjá þér sé full af skít. Opnaðu kassan og þrífðu hana.
Og kannski þrífa heatsink og láta nýtt kælikrem á þaaaa...
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Fös 26. Mar 2010 22:28
af tölvukallin
það er ný cooler master v8 kæling á Örgjörvanum
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Fös 26. Mar 2010 22:30
af lukkuláki
Nánast alveg örugglega einhverju öðru en örranum að kenna.
Þeir bila sjaldan.
Getur verið hitavandamál.
Móðurborðið að bila
Minnið
Harði diskurinn að bila eða bara stýrikerfið í messi á diskinum (spyware- vírusar?)
Flest annað í tölvunni er líklegra til að bila en örinn.
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Fös 26. Mar 2010 23:35
af chaplin
Ég myndi stórlega efa örgjörvan, þeir lifa oftast endalaust, ég myndi skjóta á vinnsluminnið..
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Fös 26. Mar 2010 23:37
af gardar
keyrðu memtest86
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 00:27
af tölvukallin
þetta er ekki virus það ekki einn virus í tölvuni eg var að scanna þetta gæti veri móðurborðir kverni veit maður? það eða vinnsluminnið
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 01:16
af Glazier
Merkilegt að þú skulir hafa náð að skrifa notandanafnið þitt rétt

Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 01:35
af ElbaRado
Hann skrifaði það ekki rétt. Tvö n í kallinn
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 01:58
af rapport
það er ný cooler master v8 kæling á Örgjörvanum
Er kælingin nokkuð skökk?
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 02:42
af chaplin
gardar skrifaði:keyrðu memtest86
This.
rapport skrifaði:það er ný cooler master v8 kæling á Örgjörvanum
Er kælingin nokkuð skökk?
Oftast ef ekki alltaf kveikir tölvan ekki á sér ef kælingin er stökk, eitthvað að gera með þrýstiskynja. Ég held því sterklega fram að þetta sé vinnsluminni. Prufaðu að meira memtest86, ef þú nærð 6 pass, keyrðu þá Orthos eða Prime95. Ef það virkar þá bara keyra complete hardware stress test.
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 09:10
af tölvukallin
ég er lesblindur sorry
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 09:22
af biturk
tölvukallin skrifaði:ég er lesblindur sorry
leslatur

Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 13:07
af Lusifer
biturk skrifaði:tölvukallin skrifaði:ég er lesblindur sorry
leslatur

/highfive
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 13:17
af vesley
hafðu svo HWmonitor á þegar þú ert að keyra stress testin til að athuga hvort þetta sé hitavandamál
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 13:55
af Klemmi
Mig langar að vera með í þessum leik, ef þetta er MSI móðurborð þá skýt ég á móðurborðið!
En annars væri gott að fá betri lýsingu á því hvernig hún frýs, stoppar vélin algjörlega og þú getur ekki hreyft músina en myndin enn á skjánum, dettur skjámyndin út o.s.frv.
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 16:39
af tölvukallin
móðurborðir er msi p965neo
ún frösnar allti einu allt stop
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 18:27
af Klemmi
Þá ætla ég að halda mig við mína ágiskun

MSI borðið er að stríða þér... en svona í alvöru talað, þá mæli ég með því að þú kíkir með tölvuna þína bara á viðgerðarverkstæði, kostar ca. 2-3þús kall að bilanagreina og þá veistu hvað er að og kostnaðinn við að gera við það, sleppur við að vesenast í þessu sjálfur.
En það er að sjálfsögðu alveg undir þér komið.
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 18:46
af oskarom
Second á móðurborðs kenninguna, sérstaklega þar sem þú ert með þetta móðurborð, fyrsta og síðasta MSI borð sem ég hef átt var nefnilega nákvæmlega þessi týpa, eeeendalaust vesen með það
Held reyndar að það sé ennþá í notkun heima undir einhvern fileserver, en það var líka endalaust vesen að setja hann upp á því, og því verður hent næst þegar það þarf að gera einhverja breytingu á þeim server.
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 19:04
af tölvukallin
ég ver að fá mer intel i5 Örgjörva og 1156 Móðurborð
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 19:06
af tölvukallin
en það efur ekki neitt verið vesen með þetta Móðurborð í þessi 3 ár sem eg ef átt það
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 19:10
af Frost
tölvukallin skrifaði:en það efur ekki neitt verið vesen með þetta Móðurborð í þessi 3 ár sem eg ef átt það
3 ára gamalt móðurborð getur alveg eins farið að bila, ekkert betra ef að búnaðurinn er eldri. Farðu með tölvuna á verkstæði til að bilanagreina tölvuna það er ekki dýrt og getur í framhald af því látið tölvuverslunina setja nýtt móðurborð í.
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 21:47
af tölvukallin
ok
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 22:38
af chaplin
Held að Klemmz hafi hitt naglann á höfuðið við ágiskunina um MSI móðurborð. Það er svona einn af þeim hlutum sem ég myndi aldrei kaupa. En að fara með tölvuna í bilunargreiningu er auðvita lang besta og ódýrasta lausnin fyrir þig í stað þess að eyða fleiri tímum í að finna út hvað sé að. Það er um 2.-3.000kr hjá flest öllum verkstæðum.
Re: er Örgjörvar minn að gefa upp öndina
Sent: Lau 27. Mar 2010 23:07
af tölvukallin
en í sumar ver eg að fara uppfæra