Síða 1 af 1

GPU pæling.

Sent: Fim 25. Mar 2010 09:39
af Selurinn
Þetta er spurning uppá að nota 2 skjákort. (Ekki SLI eða Crossfire)

Er ekki virknin þannig, að forritið eða leikurinn sem er í gangi keyrt af viðkomandi skjákorti sem skjárinn er tengdur í ?
Það er að segja ef ég er með Skjá nr 1 sem er tengdur í 9800GT kortið að sýna leik sem er í keyrslu(í window mode) og síðan er Skjár 2 sem er tengdur t.d. í Quadro kort að sýna 3d's max er þá quadro kortið að reikna Maxinn og síðan 9800 að reikna Leikinn ?
eða virkar þetta þannig að það er eitt master kort sem keyrir alla vinslu og hin skjákortin sýna einfaldlega bara myndina á þann skjá sem glugginn er í ?

Re: GPU pæling.

Sent: Fim 25. Mar 2010 09:51
af Sydney
Hvert kort stýrir hvern skjá, þannig að ef þú getur einmitt keyrt 3dsmax á öðru kortinu og leik á hinu.

Veit líka að sumir leikir hafa option til þess að velja hvaða skjákort leikurinn á að keyra á, þá færist hann bara yfir á næsta skjá.

Actually...er ekki alveg viss um þetta...finnst það samt eðlilegast þannig.

Re: GPU pæling.

Sent: Fim 25. Mar 2010 23:37
af Enginn
Ein góð spurning, af hverju fékkstu þér 9800 en ekki 8800?

Re: GPU pæling.

Sent: Fös 26. Mar 2010 18:52
af Selurinn
Afhverju fékk ég mér túnfisk á brauðið mitt í morgun staðinn fyrir hnetusmjör og rifsberjasultu.....

Re: GPU pæling.

Sent: Fös 26. Mar 2010 19:11
af Sydney
Selurinn skrifaði:Afhverju fékk ég mér túnfisk á brauðið mitt í morgun staðinn fyrir hnetusmjör og rifsberjasultu.....

More like "Af hverju fékk ég mér túnfisksalat en ekki majónes og túnfisk blandaðan saman".

Re: GPU pæling.

Sent: Fös 26. Mar 2010 19:31
af info
Enginn skrifaði:Ein góð spurning, af hverju fékkstu þér 9800 en ekki 8800?


hvað er að 9800?

Re: GPU pæling.

Sent: Fös 26. Mar 2010 19:55
af bixer
endurgerð á 8800, hefðir getað fengið 8800 ódýara. samt það er smá breyting milli 8800 og 9800!

Re: GPU pæling.

Sent: Sun 28. Mar 2010 00:11
af Enginn
Selurinn skrifaði:Afhverju fékk ég mér túnfisk á brauðið mitt í morgun staðinn fyrir hnetusmjör og rifsberjasultu.....


Þetta er meira eins og Af hverju fékkstu þér túnfísk á brauðið þitt í morgun í staðinn fyrir jafngóðan ódýrari túnfisk.

Re: GPU pæling.

Sent: Sun 28. Mar 2010 00:33
af Nariur
9800 er betra en 8800, þó munurinn sé ekki það mikill, verðmunurinn var það ekki heldur.