Síða 1 af 1
Ábyrgð á skjáum.
Sent: Mið 17. Mar 2010 00:49
af atlih
var að spá hvort enhver hafi reynslu af þessu.
ég er semsagt með samsung skjá sem er með 1 dauðan pixil, hann er ekki orðin 2 ára og það á nú að vera 3 ára ábyrgð á þessum samsung, en vandamálið er að ég finn ekki kvittun. Er þá nokkuð séns að fá hann lagaðan án kvittunar?
er samt btw með ábyrgðar bréfið sem fylgir skjánum frá samsung þá
byðst velvirðingar af stafsetningarvillum ef þær leynast hér.
Re: Ábyrgð á skjáum.
Sent: Mið 17. Mar 2010 00:53
af AntiTrust
Edit** las ekki nógu vel.
Líklegast skráir búðin sem seldi þér skjáinn serial númer, það gæti bjargað þér varðandi ábyrgðina. Hinsvegar er bara ein og ein búð með 100% pixla ábyrgð, skv. neytendalögum og flestum ef ekki öllum framleiðendum telst skjár ekki gallaður fyrr en x margir pixlar hlutfallslega m.v. upplausn eru dauðir.
Í þínum sporum myndi ég varla nenna að brasast í þessu, ekki meira en svo að keyra þó allavega dead pixel fix og ath. hvort það reddi þér. Ef pixelinn er svartur, er hann líklega dauður. Ef hann er fastur í ákveðnum lit er honum hugsanlega bjargandi.
Re: Ábyrgð á skjáum.
Sent: Mið 17. Mar 2010 00:58
af Olafst
Nánar um Samsung og pixel stefnuna þeirra má lesa hér:
http://www.samsung.com/se/support/repai ... Policy.pdfAllt innan við þetta er eitthvað sem viðkomandi söluaðili ábyrgist bara ef honum sýnist svo. Semsagt, ber engin skylda til að ábyrgjast.
2ja ára neytendaábyrgð nær ekki yfir svona hluti.
Re: Ábyrgð á skjáum.
Sent: Mið 17. Mar 2010 01:40
af atlih
hefur enhver hérna prufað þetta með að reyna nudda fasta pixelin? vitiði hvort ég sé nokkuð að skemma bara fleiri eða eitthvað með því að reyna það?, minn er klárlega fastur fyrst hann er blár
Re: Ábyrgð á skjáum.
Sent: Mið 17. Mar 2010 05:28
af kazgalor
Hérna er síða sem gæti hjálpað þér.
http://www.jscreenfix.com/basic.phpScrollaðu niður og veldu "Launch Jscreenfix"
Re: Ábyrgð á skjáum.
Sent: Mið 17. Mar 2010 10:05
af chaplin
Ef hann er dauður (enginn litur) er held ég ekkert hægt að gera - ef það er fastur litur þá geturu farið eftir þessu.
viewtopic.php?f=21&t=28728