Síða 1 af 1

Hugmynd af uppfærslu, þarf hjálp hvort allt passi! *edit

Sent: Fös 12. Mar 2010 00:03
af seizure
Tölvan verður aðallega notuð í tölvuleiki og vefráp, mér langar endilega að hafa slatt af minni í henni og ég var að spá hvort það er betra að hafa 2 léleg skjákort í stað 1 góðs?

Budget er 150-180þúsund


Örgjörvi : http://buy.is/product.php?id_product=525 -kr: 29.990

Vinnsluminni : http://buy.is/product.php?id_product=829 -kr: 19.990

Harður diskur : http://buy.is/product.php?id_product=52 -kr: 14.990

Skjákort : http://buy.is/product.php?id_product=827 -kr: 29.990

Móðurborð: http://buy.is/product.php?id_product=1049 -kr: 17.990

Aflgjafi: http://buy.is/product.php?id_product=1182 -kr: 19.900

Kassi: http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1088 -kr: 22.500

Hljóðkort: Ég kaupi alltaf hljóðkort í mínar tölvur en ætli innbyggða í móðurborðinu ætti ekki að vera nóg?

Samtals: 155.350

EÐA þá að ég fái mér bara kassa með aflgjafa því mér finnst ég ekki þurfa að spreða svona í aflgjafa, þannig væri þessi kassi og aflgjafi nóg fyrir það sem er í tölvunni?: http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1235

Samtals: 134.450

Öll hjálp er vel þeginn og ég fer ekki að gráta ef þið kallið mig þöngulhaus fyrir asnaleg völ á búnaði, vona að þar sem ég er með meiri budget að fleiri geti sett sína skoðun á málið.

Re: Hugmyndir um uppfærslu *edit

Sent: Mið 17. Mar 2010 17:29
af seizure
Enginn?

Re: Hugmynd af uppfærslu, þarf hjálp hvort allt passi! *edit

Sent: Lau 20. Mar 2010 14:20
af seizure
Aftur hef ég breytt póstinum, er allavega búinn að henda einhverju saman að þarf að vita hvort það er eitthvað vit í því og hvort það passi saman

Re: Hugmynd af uppfærslu, þarf hjálp hvort allt passi! *edit

Sent: Lau 20. Mar 2010 14:41
af vesley

Re: Hugmynd af uppfærslu, þarf hjálp hvort allt passi! *edit

Sent: Lau 20. Mar 2010 14:49
af spankmaster
Þetta ætti allt saman að passa hjá þér saman sýnist mér, og ég myndi gera passlega ráð fyrir því að þú gætir sparað þér peninginn með því að kaupa EZ-cool kassan, er með þann kassa sjálfur og ég held að 600w PSU dugi fyrir þennann búnað, en hinn kassinn er samt vel nettur :D það er bara eitthvað sem þú verður að velja sjálfur

gangi þér annars vel með þetta

Re: Hugmynd af uppfærslu, þarf hjálp hvort allt passi! *edit

Sent: Þri 23. Mar 2010 12:07
af seizure
Ég vill þakka öll innlegg og ég hef fest kaup á langflestu eina sem er eftir er kassinn, aflgjafinn og örgjörvakæling.

En ég hef verið að spá hvort ég get ekki sleppt örgjörvakælingunni og nota bara það sem kemur með örgjörvanum eða á ég frekar að splæsa í alltílagi kælingu á svona 6k? Ekkert verður overclockað neitt á næstuna eða kannski aldrei.

Og síðan hef ég verið að fá misgóðar viðtökur við því að kaupa þennan kassa: http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1235
Og treysta á aflgjafan sem fylgir en aftur ekkert verður yfirklukkað þannig að virkar þessi aflgjafi með tölvunni eða ætti ég að splæsa auka 20þúsund í aflgjafa?

Langar virkilega að vita hvað ykkur finnst svo ég get ákveðið mig og drifið í að púsla þessu saman.

Re: Hugmynd af uppfærslu, þarf hjálp hvort allt passi! *edit

Sent: Þri 23. Mar 2010 12:48
af Halli25
Ég myndi vanda valið vel bæði með kassann og aflgjafan, þótt það kosti meira þá endist þetta oft lengur en annað í tölvunni.

Kassa og jafnvel aflgjafa er hægt að endurnýta aftur og aftur... :)
Aflgjafinn er hjartað í tölvum og ef hann er slakur þá gætirðu alveg eins verið að dæla dísil á bensín vél með tilheyrandi bilunum.