Síða 1 af 1

Smá vesen með túbu

Sent: Fim 11. Mar 2010 16:30
af binnip
Þannig er mál með vexti að ég var að leika mér með segul rétt fyrir framan túbuna mína, þá fóru litirnir í fuck og núna er skjárinn í rugli.

Get ég einhvernveginn lagað þetta ?

Re: Smá vesen með túbu

Sent: Fim 11. Mar 2010 16:40
af hagur
Er enginn "Degauss" valmöguleiki á skjánum?

Meira hér: http://www.answerbag.com/q_view/63889

Re: Smá vesen með túbu

Sent: Fim 11. Mar 2010 16:43
af binnip
Er búinn að vera ad googla þetta fram og aftur, það er degauss valmöguleiki á skjánum en hann gerir ekki neitt. Ég fann grein þar sem gæjinn tók segulinn aftur og var með hann nálægt skjánum aftur og þá lagaðist þetta (s.s hann fór með segulinn fram og aftur eftir skjánum þangað til þetta lagaðist ). Eg prófaði þetta og ég gat ýtt þessum skrítna lit út í endann á skjánum.

Re: Smá vesen með túbu

Sent: Fim 11. Mar 2010 17:22
af hauksinick
hhaha :D

Re: Smá vesen með túbu

Sent: Fim 11. Mar 2010 18:01
af hagur
Ok ... vesen.

Spurning hvort að næsta skrefið sé þá bara að kíkja með skjáinn á rafeindaverkstæði og ath. hvort þeir geti gert eitthvað fyrir hann.

Re: Smá vesen með túbu

Sent: Fim 11. Mar 2010 18:37
af binnip
Skutlast bara í góða hirðinn og splæsi í nýjann. Nýr skjár er á eitthvað um 200kr held ég.