Síða 1 af 1

OCZ - Corsair

Sent: Mið 21. Jan 2004 23:55
af Snikkari
Er hægt að kaupa OCZ eða Corsair vinnsluminni hér á landi ?
Getur einhver verslun sérpantað þetta fyrir mann ?

Sent: Mið 21. Jan 2004 23:57
af Arnar
Það er engin að selja þetta núna, testaðu samt að tala við task eða tolvuvirkni.

Sent: Fim 22. Jan 2004 00:30
af odinnn
Task hafa verið liðlegir með að kaupa inn nýja vöru ef þeim lýst vel á hana. þannig endilega talaðu við þá því þeir geta örugglega reddað handa þér svona minni ef þú lofar að kaupa það af þeim.

Sent: Fös 23. Jan 2004 15:12
af Damien
Ég er nú reyndar með til sölu tvo 512MB TWINX-PC3200LL frá Corsair...
Þeir eru nánast ekkert notaðir því ég náði þeim ekki stable á móðurborðið mitt (Asus P4P800-D).
Seinna las ég það að þeri eru ekkert að styðja P4P800-D rosalega vel, þannig að ég keypti mér nýja.

Ég pantaði kubbana að utan... :wink:
Hefuru áhuga?

Sent: Fös 23. Jan 2004 15:14
af Damien
odinnn er með svona kubba á A7N8X - Deluxe og þetta er allveg rocksollid...

Sent: Fös 23. Jan 2004 16:20
af Castrate
Ég held ég sé með svipað bara tvo 256mb corsair kubba á mínu A7N8X :) og þeir rokka.

Sent: Fös 23. Jan 2004 19:03
af Snikkari
Damien skrifaði:Ég er nú reyndar með til sölu tvo 512MB TWINX-PC3200LL frá Corsair...
Þeir eru nánast ekkert notaðir því ég náði þeim ekki stable á móðurborðið mitt (Asus P4P800-D).
Seinna las ég það að þeri eru ekkert að styðja P4P800-D rosalega vel, þannig að ég keypti mér nýja.

Ég pantaði kubbana að utan... :wink:
Hefuru áhuga?

Verð ?

Sent: Fös 23. Jan 2004 23:58
af Damien
Þeir kostuðu 42.000kr. með öllu allveg upp að dyrum.
Ég var að hugsa eitthvað um 37.000kr?
ATH þeir eru nánast ekkert notaðir...

Sent: Lau 24. Jan 2004 00:10
af Snikkari
Damien skrifaði:Þeir kostuðu 42.000kr. með öllu allveg upp að dyrum.
Ég var að hugsa eitthvað um 37.000kr?
ATH þeir eru nánast ekkert notaðir...

Allt of mikið fyrir notaðan tölvubúnað.
Ég myndi hugsanlega kaupa minnið fyrir 20-25 þús.

Sent: Lau 24. Jan 2004 00:16
af Damien
ok 33þús
Þetta eru sko mached pair kubbar...
Matched pair af HyperX kostar 40þús nýtt útí búð...

Sent: Fös 30. Jan 2004 13:32
af Icarus
kingston eða mushkin ;)

Sent: Fim 05. Feb 2004 19:49
af xtr
Ég var nú reyndar niðrí task rétt áðan og það er mjög líklegt að eftir svona 2 vikur þá ætla þeir að byrja að flytja inn Corsair kubba fyrst að kingston er hætt að framleiða hyper X

Sent: Fim 05. Feb 2004 20:08
af Icarus
xtr skrifaði:Ég var nú reyndar niðrí task rétt áðan og það er mjög líklegt að eftir svona 2 vikur þá ætla þeir að byrja að flytja inn Corsair kubba fyrst að kingston er hætt að framleiða hyper X


Hætta að framleiða HyperX :shock: Af hverju í andskotanum ? :?

Sent: Fim 05. Feb 2004 21:20
af Pandemic
Ég hef heyrt að Cosair vilji ekki selja búðum nema þær nái að selja eitthvað ákveðið magn á mánuði-ári og þeir séu með eitthverja gæðastaðla sem búðirnar verða að standast. Ef þeir fá minnið eins og þeir segja þá verður þetta líklega í gegnum aðrar búðir og þá verður verðið miklu hærra en það á að vera venjulega.

Sent: Fös 06. Feb 2004 01:23
af Fletch
Einn sem ég þekki er að selja 2 stk OCZ PC4200 kubba, 512MB (DDR533)

Fletch

Sent: Fös 06. Feb 2004 10:13
af xtr
útaf Kingston HyperX kortin öll eftir jól hafa verið gölluð :I Svo að þeir eru hættir að framleiða þau og pandemic, ég held að task ætli að taka mushkin eða corsair minni næst :O

Re: OCZ - Corsair

Sent: Sun 08. Feb 2004 19:06
af xtr
Task.is er að flytja inn OCZ, og á ég pöntuð 2 stikkki :/

Sent: Þri 10. Feb 2004 01:07
af Kull
Er einmitt að bíða eftir 2x512 PC4200 OCZ minni sem ég keypti á Ebay :)

Sent: Þri 10. Feb 2004 13:11
af xtr
Ég er að bíða eftir sennheiserunum mínum sem ég keypti á ebay svona 6000 þúsund kalli ódýrari en hér á íslandi :)

Sent: Þri 10. Feb 2004 15:22
af WarriorJoe
Eru 6000 krónu ódýrara í fríhöfninni hérna en í PFAFF, frekar að fá einhvern til að kaupa fyrir þig þar og vera með þetta í ábyrgð á Íslandi og þurfa ekki að taka óþarfa áhættu með að panta þetta erlendis þar sem er vitað mál að margt getur farið úrskeiðis í sendingunni o.s.fv