Síða 1 af 1

[leyst]cd/dvd drifið sést ekki í mycomp en sést í bios

Sent: Mán 01. Mar 2010 13:11
af Gunnar
veit einhver hvað gæti verið að ef að geisladrifið sést ekki í my computer en sést sem ide master í bios-inum?
samkvæmt device mananger vantar engann driver. veit ekkert hvað er að. og w7 sem ég er með rennur út í dag. og byrjar að restarta tölvunni. installaði vitlausri útgáfu. :S

Re: cd/dvd drifið sést ekki í mycomp en sést í bios

Sent: Mán 01. Mar 2010 16:54
af lukkuláki
Sennilega stýrikerfið, spyware vírus eða registry error.
Ef drifið sést í BIOS þá geturðu væntanlega bootað af diski og sett stýrikerfi upp? clean install.
þá ætti drifið nú að skila sér í my computer þegar því er lokið ... ef ekki þá er eitthvað bilað, drifið eða mbo sennilega.

Re: cd/dvd drifið sést ekki í mycomp en sést í bios

Sent: Mán 01. Mar 2010 17:20
af Gunnar
ehh þar kemur annað vandamál. lyklaborðið virkar ekki þegar það kemur " press any key to boot from cd" eða það gerist ekkert og tölvan startar sér. er með g15 sem hefur virkað áður í bios.
gæti þetta verið útaf ég update-aði biosinn?

Re: cd/dvd drifið sést ekki í mycomp en sést í bios

Sent: Mán 01. Mar 2010 17:44
af lukkuláki
þú kemst samt í BIOS er það ekki ?
Gáðu í BIOSinn hvort "USB Keyboard Support" sé á ENABLED
eða virkt "Enable USB Keyboard Support" Mundu að gera SAVE BIOS áður en þú rebootar
Þá ætti það að ganga

Re: cd/dvd drifið sést ekki í mycomp en sést í bios

Sent: Mán 01. Mar 2010 17:51
af Gunnar
ja ég kemst í bios og var buinn að enable-a usb og ide conntroller er líka enabled. virkar samt ekki :S

Re: cd/dvd drifið sést ekki í mycomp en sést í bios

Sent: Mán 01. Mar 2010 18:13
af BjarniTS
Reddaðu þér öðru borði , Ef að þú ert með ps2 borð einhversstaðar þá tengir þú það.
Annars bara annað usb.

Re: cd/dvd drifið sést ekki í mycomp en sést í bios

Sent: Mán 01. Mar 2010 18:58
af Gunnar
jæja fail á mig. diskurinn var ekki bootable. =D> #-o :lol:
en henti rétta disknum í og er kominn á rétta stýrikerfi.
og geisladrifið virkar og sést í my computer nuna.