Síða 1 af 1

Viftur á skjákort ..

Sent: Mið 21. Jan 2004 00:14
af dadik
Ég er með tvö skjákort:

TNT2 Ultra
Geforce GTS

kortin eru bæði í notkun en vifturnar á þeim eru að gefa sig, með tilheyrandi skruðningum. Það gengur ekki að taka viftuna úr sambandi því þá eiga vélarnar það til að frjósa.

Veit einhver hvar er hægt að nálgast svona viftur? Ég sé þetta ekki hjá neinni tölvuverslun. ég er btw ekki að leita að einhverju fancy dóti heldur el cheapo.

- dk

Sent: Mið 21. Jan 2004 00:22
af aRnor`
Ég var nú að leika mér með psu um daginn og ég tók viftuna úr sambandi, en svo vildi það ekki gefa rafmagn fyrr en hún var tengd aftur í .

þannig ég klippti bara vírana frá hausnum og setti yfir pinnana.
Svo henti ég viftunni og allt í gúddí. :wink:

Sent: Mið 21. Jan 2004 00:26
af Damien
Ég held hann sé að meina að þegar tölvan er búin að vera í gangi í einhvern tíma þá ofhitnar skjákortið og tölvan krassar...

Sent: Mið 21. Jan 2004 00:33
af aRnor`
ah má vera :wink:

Sent: Mið 21. Jan 2004 08:46
af emmi
Fáðu þér viftulausa kælingu frá Zalman, fæst hjá task.is. :)

Sent: Mið 21. Jan 2004 09:50
af GuðjónR
Vantar þig ekki bara nýja viftu?
Verð aðeins 428kr.

Sent: Mið 21. Jan 2004 10:15
af Guffi

Sent: Sun 25. Jan 2004 00:45
af Lazylue
Er með rivatnt2 á gömlu vélinni minni sem var með eitthvað vesen útaf hita. Ég fór og keypti mér viftu á 500kall og setti hana á kortið og það hefur ekki verið vesen með það síðan.

Sent: Þri 27. Jan 2004 17:29
af Icarus
Síðan er spurning hvort að þú þarft endilega viftu en þær eru oftast með tilheyrandi hávaða. T.d. er bara kæliplata á mínu skjákorti og það virkar fínt.

Sent: Þri 27. Jan 2004 18:57
af SkaveN
Fáðu þér ÞETTA alveg hljóðlaust og easy að setja á :)

Sent: Þri 27. Jan 2004 19:18
af gumol
Ég er með þetta og þetta er bara að standa sig betur en gamla viftan sem var á skjákortinu.

En það er dáldið flókið að koma þessu á (þurfti að lesa leiðbeiningarnar)

Sent: Mið 28. Jan 2004 11:29
af xtr
já ég á eitt svona stikki :I Heyrist ekkert í þessu en er reyndar ekki lengur með þetta í tölvunni :þ