Síða 1 af 1
Blanda saman CL5 og CL7 minnum.
Sent: Lau 27. Feb 2010 19:04
af Danni V8
Ef ég væri með 2x2gb DDR2 1066MHz CL5 5-5-5-15 og 1x2gb 1066MHz CL7 7-7-7-20, hvaða áhrif myndi það hafa?
Skiptir það kannski engu máli?
Re: Blanda saman CL5 og CL7 minnum.
Sent: Lau 27. Feb 2010 19:07
af Sydney
CL5 minnið myndi að öllum líkindum fara í CL7.
Annars myndi ég manually setja timings í BIOS ef ég væri þú.
Re: Blanda saman CL5 og CL7 minnum.
Sent: Lau 27. Feb 2010 19:26
af Danni V8
Ég var samt bara að fatta það núna að kíkja á specs síðuni fyrir móðurborðið mitt og samkvæmt msi styður þetta borð ekki meira en 800Mhz minni svo við getum smellt einum stórum FAIL stimpli á ennið á mér

Re: Blanda saman CL5 og CL7 minnum.
Sent: Lau 27. Feb 2010 19:35
af Sydney
Ég er ekki frá því að þú getur samt sett hraðari minni í slottið, og það hægir bara á sér.
Er alls ekki viss, endilega leiðrétta mig.
Re: Blanda saman CL5 og CL7 minnum.
Sent: Lau 27. Feb 2010 19:57
af Danni V8
Og ef ég myndi gera það, ss. ef að það gengur upp að setja 10600mhz minni og láta það kúpla niður í 800mhz, fer ég þá bara í Bios og stilling timings á 5-5-5-15 og hviss bang búmm ég er kominn með 3x2gb 800mhz cl5?
Re: Blanda saman CL5 og CL7 minnum.
Sent: Lau 27. Feb 2010 20:00
af Sydney
That's what I'm thinking.
Mæli samt með að bíða eftir því að einhver annar segi að það sé hægt...
Re: Blanda saman CL5 og CL7 minnum.
Sent: Lau 27. Feb 2010 20:39
af 121310
Prufaðu það bara
Re: Blanda saman CL5 og CL7 minnum.
Sent: Lau 27. Feb 2010 20:48
af Danni V8
Jæja, ég prófaði bara að setja minnisplötuna í og sjá hvað gerðist. Kíkti í Bios áður en ég gerði það og sá þar að minnin tvö voru að keyra á 800MHz.
En hins vegar þegar ég setti plötuna í fór hraðinn niður í 667 MHz. Ætla reyndar að prófa að slökkva aftur og setja 800MHz plöturnar í DIMM1 og DIMM3 og 1066MHz plötuna í DIMM2, var að glugga í manualinn og þar stóð "In Dual-Channel mode, make sure that you install memory modules of the
same type and density in different channel DIMM slots."
Sjá hvað gerist næst áður en ég fer að hugsa eitthvað út í timings.
Re: Blanda saman CL5 og CL7 minnum.
Sent: Lau 27. Feb 2010 23:24
af SteiniP
Þú ættir að geta klukkað þau upp í 800MHz manually og oftast ráða minni við lægr timings þegar þau eru keyrð undir stock tíðni.
Prófaðu bara og Prime95 eða memtest til að gá hvort hún er stable.
En þú getur ekki notað dual channel með 3 minniskubbum. Verður að hafa 2 eða 4, þannig það er spurning hvort þú sért ekki bara að tapa performance á þessu.
Re: Blanda saman CL5 og CL7 minnum.
Sent: Sun 28. Feb 2010 10:08
af Danni V8
Já mig grunar að ég sé að tapa performance. Ég prófaði að klukka minnin upp í 800MHz og þá postaði tölvan ekki nema ég tók 1066MHz minnið úr.
Re: Blanda saman CL5 og CL7 minnum.
Sent: Sun 28. Feb 2010 13:41
af Danni V8
Re: Blanda saman CL5 og CL7 minnum.
Sent: Sun 28. Feb 2010 14:35
af SteiniP
Nærð því örugglega ef þú hækkar timings aðeins.
Sérð þarna JEDEC #3 á neðstu myndinni, 6-6-6-18
þetta eru stillingar sem eru gefnar upp frá framleiðanda, þannig prófaðu að stilla á það.
Re: Blanda saman CL5 og CL7 minnum.
Sent: Sun 28. Feb 2010 15:03
af Danni V8
Ég ákvað að taka þessa minnisplötu bara úr og gefa bróðir mínum hana, sem er að fara að uppfæra tölvuna sína og ætlar að fá sér móðurborð með 1066MHz support. Hann ætlaði bara að fá sér 2gb svo hann sleppur við að eyða pening í vinnsluminnið
