Síða 1 af 1
hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 00:08
af biturk
ég er með ide diska í tölvunni minni.
2 nánat tiltekið og geisladrif
ég hef ítrekað reint að setja einn ide disk í viðbót en alltaf þegar ég geri það þá vill tölvan ekki lengur koma sér inn í windows (já hann er tengdur sem slave)
einnig er ég með svona super rack

og það er sama sagan með hann
er bara ekki hægt að tengja fleiri diska eða hvað er að .
þó að ég aftengji geisladrifið og setji harðann disk í staðinn eða super rackinn þá gerist það sama....tölvan kemur sér ekki inn í windows
hvað er eiginlega að

Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 00:14
af SteiniP
Er harði diskurinn sem er tengdur örugglega stilltur á 'master /w slave' en ekki 'master single'
Og pottþétt að diskurinn sem þú ert að bæta við sé í lagi?
Gæti líka verið að kapallinn sé í ólagi.
Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 00:29
af biturk
virðist engu skipta hvaða disk ég set í, búinn að prófa eina 5 mismunandi sem virka svo allir ef þeir eru settir í aðra tölvu
allir tengdir sem slave þegar þeir fara í tölvuna
og þeir sem ég er með fyrir eru cs á sömu ide línu
Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 15:47
af biturk
hvað ætli gerist ef ég bumpa þessu aðeins upp

Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 17:33
af Oak
prufaðu að setja þennan sem þú ert að bæta við á cs.
annars gætirðu alveg haft þetta svona
IDE rauf 1
1x HDD Master w/slave
2x HDD Slave
IDE rauf 2
1x CD/DVD Master w/slave
2x HDD Slave
Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 20:57
af Daz
En ef þú aftengir allt nema stýrikerfisdiskinn og nýja diskinn? (s.s. geisladrifið og aukadiskinn/ana). Ef þú kemst þá inn í windows, er mjög mögulegt að þú hafir ekki nógu góðan aflgjafa í allt dótið.
Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 21:16
af Vectro
Þetta er ekkert flókið.
Ef einn diskur er stilltur sem Cable Select (CS) þá þarf hinn diskurinn á sömu snúru að vera stilltur sem CS líka.
Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 21:24
af biturk
þeir eru báðir á sama kapli tengdir cs...lestu betur

Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 21:50
af Vectro
biturk skrifaði:þeir eru báðir á sama kapli tengdir cs...lestu betur

biturk skrifaði:allir tengdir sem slave þegar þeir fara í tölvuna
og þeir sem ég er með fyrir eru cs á sömu ide línu
Þarna gefurðu til kynna að þú tengir diskana sem slave við....
Slave er ekki = CS
Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 22:07
af biturk
á hverjum kapli eru tvö tengi
í tölvunni er stýrikerfisdiskur og einn auka diskur...þeir eru á sama kapli og eru cs
á hinum kaplinum er ég með geisladrif og ætlaði mér að setja annaðhvort rackinn eða annan disk og þá ætlaði ég að hafa geisladrifið sem master og diskinn sem slave því ég á ekki annan kapal sem styður cs
Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 22:24
af einarhr
þú setur Stýrikerfisdiskinn á Primary Master, aukadiskinn á Cable select. 3 diskinn á Secondery Master og Geisladrifið á Cable select. Ef þetta virkar ekki settu þá diskana á Slave í staðin fyrir CS.
Passa svo uppá að tengja þetta rétt í IDE kapalinn.

Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 22:31
af CendenZ
Ég grísa á að Daz hafi rétt fyrir sér hérna... PSU

Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 22:38
af Daz
Reyndar, núna kemur fram að CD-drifið sé "master" eitthvað er að nöldra í hausnum á mér og segir að CD-drif geti ekki verið master. Worth a shot?
Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fim 18. Feb 2010 22:50
af biturk
tjahh....hann kemur alltaf fram sem master í bios, er samt minnir mig settur á slave. hann er einn á kapli
annars er psu sosem ekki svo ólíklegt, ekkert sérlega öflugur greyið

Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fös 26. Feb 2010 00:23
af biturk
jæja, ég fann mér anna cs kapal og setti hann í, smellti drifinu sem cd og super rackinum sem cs
núna kemst ég inn í windows, ekki vandamál....en....diskurinn sýnir sig bara einfaldlega ekki í my comp.
það er klárlega vesen sem þarf að ráða úr

Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fös 26. Feb 2010 00:47
af biturk
hann er ekki heldur í disk management

eins og fróðir menn sjá....þá....er diskurinn ekki þarna
meðallinn og c drifið eru saman á kapli hjá mér og dvd drifið og super rackinn (sem diskurinn er í sem sést ekki) eru á sama kapli
síðann er flakkarinn minn þarna.

hvaða diskar eru þetta g og i...
það er ekki hægt að formata þá og ekki hægt að leita.
ég prófaði annan disk sem ég veit að er í lagi í rackinn en það er sama með hann, hann bara sést ekki
þessi 8mb sem koma á eftir c drifinu......er það eitthvað partition sem hefur skapast hjá mér? hvað er þetta að gera þarna

Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fös 26. Feb 2010 15:00
af biturk
nú er ég búnað vera í marga tíma í morgun að reina að finna bót á þessu en ekkert virðist ganga, hafa einhverjir fleiri lent í þessu vandamáli?
ég er orðinn býsna short á plássi og þarf eiginlega að finna bót á þessu rugli í tölvunni minni?
getur verið að raid eða eitthvað sé í ruglinu?
Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fös 26. Feb 2010 15:43
af rapport
Í þínum sporum þá mundi ég setja allt á "CS" Cable Select...
Einnig mundi ég kanna hvort kapallinn sé nokkuð ónýtur...
Það á annað hvort að nota Master og slave ...
Eða CS og CS..
Aldrei að rugla saman stillingum CS og Master eða Slave og CS...
Re: hversu marga ide diska er hægt að tengja
Sent: Fös 26. Feb 2010 15:58
af biturk
það er allt komið á cs hjá mér og mér myndi aldrei detta í hug að rugla þessu saman, svo mikið veit ég.
kapallinn virkar fínt, er með prufu tölvu hjá mér og kapallinn kom úr henni