Síða 1 af 1
Ónýtt móðuborð? Eða eitthvað annað? *LEYST*
Sent: Lau 13. Feb 2010 15:58
af Danni V8
Sælir.
Ég var að fá nýjan örgjörva, Q9550. Þannig ég tók allt í burt og skipt um örgjörvann, en eftir það fór tölvan aldrei alla leið í startinu.
Það sem kom á skjáinn var einhver runa efst sem ég man ekki hvað var, en hefur allta komið hvort sem er, síðan fyrir neðan stóð "Genuine Intel 333,0 Mhz x5.8 (2,883GHz) eða eitthvað þannig, man ekki alveg nákvæmlega, en ég tel það staðfesta að örgjörvinn er í lagi.
Síðan kom Memory testið og þar stóð:
Memory: 4028 MB OK (agian, man ekki nákvæma töluna)
Síðan kom ekki meira. Nema fyrir neðan stóð að ég ætti að ýta á DEL fyrir Bios eða F11 fyrir boot options en það virkaði ekki að ýta á neitt, ekki einusinni CTRL+ALT+DEL til að restarta.
Þannig ég prófaði að sipta um lyklaborð en það virkaði ekki. Þá tók ég allt úr sambandi aftur og tók heatsinkið af og örgjörvann úr, leitaði eftir sjáanlegum skemmdum en sá ekkert, setti allt saman aftur og prófaði aftur en það er sama sagan.
Þá prófaði ég að taka allt í sundur aftur og setja gamla örgjörvann í og eftir það kemur ekki einusinni signal á skjáinn.
Hvað gæti ég prófað næst?
Ég ætla að reyna að komast í annað S775 móðurborð og prófa að setja örgjörvana í það, en vil samt fá hugmyndir um eitthvað annað sem ég get prófað fyrst.
Einhverjar hugmyndir?
Re: Ónýtt móðuborð? Eða eitthvað annað?
Sent: Lau 13. Feb 2010 16:01
af blitz
Re: Ónýtt móðuborð? Eða eitthvað annað?
Sent: Lau 13. Feb 2010 16:07
af Danni V8
Mér finnst það hæpið, þar sem að ég er búinn að setja gamla örgjörvann í aftur en samt kveikir hún ekki á sér, kemst styttar ef eitthvað er með honum.
Ég hef sterka tilfinningu á að þetta sé móðurborðið þar sem að hún virtist fyrst komast alla leið að því að leita eftir diskunum en ekki náð því, ss. minni og örri virðist tékka út í lagi. Síðan hættir hún alveg að senda signal á skjáinn og mér finnst mjög hæpið að það myndi gerast við ónýtan örgjörva, minni eða disk, frekar skjákort eða móðurborð.
Ég er reyndar að taka eftir því núna en ég held að ég hljóti að vera með nýjasta Biosinn, þar sem ég hef verið með 1000GB HDD og það virkað vel. Í nýjasta update-i er bætt við 1000GB hdd support.
Re: Ónýtt móðuborð? Eða eitthvað annað?
Sent: Lau 13. Feb 2010 18:21
af beatmaster
Ef að þú ert með IDE snúru tengda við móðurborðið prufaðu þá að taka hana úr sambandi áður ne að þú boot-ar
Re: Ónýtt móðuborð? Eða eitthvað annað?
Sent: Lau 13. Feb 2010 18:49
af Danni V8
beatmaster skrifaði:Ef að þú ert með IDE snúru tengda við móðurborðið prufaðu þá að taka hana úr sambandi áður ne að þú boot-ar
Búinn að prófa þetta. Geisladrifið er IDE og ég hef það ekki í sambandi.
Ég fæ ekki signal á skjáinn og tölvan keyrir ekki viftutestin á skjákortunum, skákortin ss. fara ekki í gang. Er búinn að prófa að setja bæði sem primary.
Re: Ónýtt móðuborð? Eða eitthvað annað?
Sent: Lau 13. Feb 2010 21:31
af Danni V8
Enginn með hugmynd? Ég er búinn að prófa að taka CMOS batteríið úr og hafa hana unplugged í korter, það hafði ekkert að segja.
Re: Ónýtt móðuborð? Eða eitthvað annað?
Sent: Lau 13. Feb 2010 22:44
af biturk
lenti í þessu með móðurborð hjá mér einu sinni að það hætti að koma signal á skjáinn, eftir nokkra mánaðara reiði og prufur og leiðindi ákvað ég að farga borðinu og setti það í leirdúfukastarann

Re: Ónýtt móðuborð? Eða eitthvað annað?
Sent: Lau 13. Feb 2010 23:10
af Cikster
Þá er bara nota útilokunaraðferðina á þetta.
Taktu öll minni úr nema eitt, ef það bootar ekki þá skiptu kubbinum út fyrir annan kubb.
Taktu skjákortið úr, blástu mesta rykið af því (bara upp á fönnið fyrst þú tókst það úr) og settu það í aftur.
Ef þetta virkar ekki þá taktu allt úr sambandi (alla HD, CD, floppy, öll auka kort) nema skjákortið og eitt minniskort.
Ef hún er ekki enn komin í gang þyrfti að prófa minnið og skjákortið í annari tölvu bara til að vera viss að móðurborðið sé alveg dautt.
Nema þú hafir náð að beygla einhvern pinna í CPU socketinu.
Góða skemmtun
Re: Ónýtt móðuborð? Eða eitthvað annað? *LEYST*
Sent: Mán 15. Feb 2010 15:24
af Danni V8
Jæja ég er búinn að leysa þetta vandamál. Ég fékk gallaðan örgjörva frá Tölvulistanum. Ég er kominn með annan Q9550 og er í tölvunni núna án vandræða.
Minnin voru hins vegar ekki ónýt eins og ég sagði í gær. Ég hef greinilega skipt yfir í E7300 örgjörvann á sama tíma og ég prófaði minnin

Re: Ónýtt móðuborð? Eða eitthvað annað? *LEYST*
Sent: Mán 15. Feb 2010 16:23
af DoofuZ
Til hamingju með að hafa leyst þetta!

En er það bara ég eða var ég ekki örugglega með póst á þessum þræði?

Og var þráðurinn ekki kominn í 2 blaðsíður?
Edit: var að sjá þráð um að allt hefði farið í fokk, varð einmitt var við það í gær að síðan hætti alltíeinu að virka en pældi svo bara ekki meira í því

Re: Ónýtt móðuborð? Eða eitthvað annað? *LEYST*
Sent: Mán 15. Feb 2010 17:06
af Gunnar
Danni V8 skrifaði:Jæja ég er búinn að leysa þetta vandamál. Ég fékk gallaðan örgjörva frá Tölvulistanum. Ég er kominn með annan Q9550 og er í tölvunni núna án vandræða.
Minnin voru hins vegar ekki ónýt eins og ég sagði í gær. Ég hef greinilega skipt yfir í E7300 örgjörvann á sama tíma og ég prófaði minnin

jæja er ekki allt í lagi með örran hinn? eða er hann farinn?
Re: Ónýtt móðuborð? Eða eitthvað annað? *LEYST*
Sent: Mán 15. Feb 2010 17:55
af Danni V8
Gunnar skrifaði:Danni V8 skrifaði:Jæja ég er búinn að leysa þetta vandamál. Ég fékk gallaðan örgjörva frá Tölvulistanum. Ég er kominn með annan Q9550 og er í tölvunni núna án vandræða.
Minnin voru hins vegar ekki ónýt eins og ég sagði í gær. Ég hef greinilega skipt yfir í E7300 örgjörvann á sama tíma og ég prófaði minnin

jæja er ekki allt í lagi með örgjörvan hinn? eða er hann farinn?
Hinn er farinn. raekwon nældi sér í hann (sá sem ég frátók hann fyrir)