Síða 1 af 1

Örgjörvi ... Hjalp!

Sent: Sun 18. Jan 2004 17:24
af Musicman
Sælir Vaktmenn nær og fjær...
Jeg keypti mer asus moðurborð, 512mbminni og Pentium 2,4 Celeron Örgjörva.
Siðar komst maður að þvi að moðurborðið var gallað og þa fekk maður nytt, en malið er að við opnun a örgjörvapakkanum datt örgjörvinn a borðið og beyluðust örlitið nokkrir pinnar.
Maður naði að retta það af og passar örgjörvinn alveg i moðurborðið.
En malið er að tölvan postar ekki þegar kveikt er a henni, haldið þið að þetta moðurborð sem jeg fekk aftur se gallað eða örrinn se onytur ?
:oops:
Með von um svör.

Kveðja .

:arrow:Musicman

Sent: Sun 18. Jan 2004 17:29
af kiddi
Við fyrstu ágiskun, finnst manni frekar hæpið að tvö ASUS borð klikki hvort á fætur öðru, frekar þá að brotnað hafi úr einhverjum pinna örgjörvans þegar þú réttir hann og þarafleiðandi sambandsleysi? Svo auðvitað gæti þetta verið gallað vinnsluminni =)

...

Sent: Sun 18. Jan 2004 17:33
af Musicman
Nei, enginn pinni brotnaði af örgjörvanum ...
Og þetta minni keypti jeg notað sem hafði verið i notkun aður og virkað vel.
haldiði að þetta gæti verið skjakortið ? þar sem jeg veit bara ekki hvort að það se 4x eða ekki en þetta er allavena 32 mb Gforce mx200 kort..
(Er ekki mikill leikja kall frekar i tonlistinni :oops: ).

en allavena hun vill ekki posta nokkrum sköpuðum hlut þott hun fari i gang....

Sent: Sun 18. Jan 2004 18:45
af Snorrmund
ertu dani? "jeg"

...

Sent: Sun 18. Jan 2004 19:01
af Musicman
Mer finnst það bara vera við hæfi þar sem jeg get ekki latið kommur yfir stafi.

Jeg ku eigi vera dani.

Sent: Sun 18. Jan 2004 19:11
af Snorrmund
a-ha! þú meinar... hélt þú værir hálf danskur, þetta var líka út af avatarnum þínum haha :P

Sent: Sun 18. Jan 2004 20:59
af gnarr
ertu með kælikrem á örranum? ég gerði þau mistök einusinni þegar ég var að gera p4 tölvu. hún neitaði ALGJÖRLEGA að starta þegar ég var ekki með kælikrem, um leið og kælikremið var sett á flaug hún í gang.

eruði ekki annars pottþétt með pinna á milli móðurborðsins og tölvukassanns?

...

Sent: Sun 18. Jan 2004 21:09
af Musicman
Pinna ... hvað meinaru ...
En allavena .... Það fylgdi Vifta og mer synist vera eitthvað kælikrem a hennni.
En nu þegar jeg er ekki viss um hvort að eitthvað se bilað... þa er jeg með moðurborðið liggjandi a littlum kassa undir Sjonvarpskort þvi jeg nenni ekki að vera plögga þvi inn og svo aftur ut ef eitthvað virkar ekki ...
:roll:

Sent: Sun 18. Jan 2004 21:16
af gnarr
spacers heita það. þú verður að hafa þannig á milli kassanns og móðurborðsins annars leiðir móðurborðið yfir í kassann og ekkert fer í gang.

....

Sent: Sun 18. Jan 2004 21:21
af Musicman
þegar jeg er að reyna fa hana i gang er allt bert a borðinu hja mer...
er með herna 300mhz dollu sem jeg er a netinu i ... virkar fint hun er bara ber... :shock:

Sent: Sun 18. Jan 2004 21:42
af gnarr
settiru ekki heatsinkið á örgjörfann sjálfur? gáðu allavegana hvort það er hitaleiðandi krem og settu ef það er ekki. er líka búið að íta niður "læsi stönginni" sem heldur örgjörfanum ?

...

Sent: Sun 18. Jan 2004 21:45
af Musicman
það fylgdi ekkert auka stöff nema þessi vifta og eitthvað svart a henni ... og svo þegar maður tekur viftuna af þa eru leifar af einhverju svörtu ... geri rað fyrir þvi að það se eitthvað hitaleiðandi sull..