Síða 1 af 1

Bilaður mmp 9530 TV Flakkari

Sent: Sun 07. Feb 2010 16:25
af zlamm
Sælir Vaktarar.

Ég á mmp 9530 TV Flakkara sem bilaði.
Bilunin lýsir sér þannig að ef ég tengi hann við sjónvarp, hvaða sjónvarp sem er, þá kemur einungis 'searching' aftur og aftur á skjánum, en ekkert annað. Þegar ég tengi hann hins vegar við tölvu þá er allt í lagi, allt kemur upp.

Veit einhver hvað er að og hvernig ég get lagað það?

Re: Bilaður mmp 9530 TV Flakkari

Sent: Mán 08. Feb 2010 10:14
af Halli25
Ertu með bara eina týpu af skrám á honum? testaðu að henda 1 jpg mynd inná hann t.d. og sjáðu hvort hann lagist ekki

Re: Bilaður mmp 9530 TV Flakkari

Sent: Mán 08. Feb 2010 19:41
af zlamm
Nei, ég er ekki með 1 týpu af skrá inná honum

Re: Bilaður mmp 9530 TV Flakkari

Sent: Mán 08. Feb 2010 19:47
af BjarniTS
United HD MMP 9530
Geri ég ráð fyrir ?

Ef að þú hefur færi á að taka öryggisafrit af honum þá ertu mun frjálsari í að gera tilraunir.
Google gefur manni ekkert um þetta vandamál , en ég myndi byrja á að formatta hann og gera "fresh start" með hann og setja inn á hann kannski bara nokkrar bíómyndir , sjá hvort að sama vandamál kemur upp , ef að það er ennþá þá myndi ég bara hringja í Opin kerfi , eða hvar sem þú keyptir hann , og fá þá til að koma þessu í lag fyrir þig.

Re: Bilaður mmp 9530 TV Flakkari

Sent: Mán 22. Mar 2010 21:48
af zlamm
Þetta er aftur að gerast núna, nákvæmlega sama vandamál. Ég formattði hann síðast og það hefur virkað hingað til en svo á fim. kom þetta upp aftur.

Re: Bilaður mmp 9530 TV Flakkari

Sent: Þri 13. Apr 2010 21:18
af jonno
sæll

átti svona flakkara og var hann alltaf með svona vandamál
ég fann þessa síðu á netinu og þar er linkur á nytt forrit til að uppfæra hugbúnaðinn á honum

uppfærsla

http://www.tech.is/spjall/viewtopic.php ... =775#p6180 ( 9530_v3.5_WEB.zip)

þetta hjálpaði mér að laga minn flakkara

Re: Bilaður mmp 9530 TV Flakkari

Sent: Þri 13. Apr 2010 22:07
af Krissinn
jonno skrifaði:sæll

átti svona flakkara og var hann alltaf með svona vandamál
ég fann þessa síðu á netinu og þar er linkur á nytt forrit til að uppfæra hugbúnaðinn á honum

uppfærsla

http://www.tech.is/spjall/viewtopic.php ... =775#p6180 ( 9530_v3.5_WEB.zip)

þetta hjálpaði mér að laga minn flakkara


Ég átti líka svona flakkara og ég gafst upp á honum eftir að hann var búinn að eyðileggja 500 GB harða diskinn sem var í honum! Svo fraus hann alltaf ef ég setti á pause eða þegar ég spólaði, Ég fór í Tölvutek og keypti mér svona græju: http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=21281 ef þú átt svona þá ertu laus við ÖLL vandamál! hann spilar alla file-a og þú getur spilað af minnislykli eða þessháttar og einnig í gegnum heimanetið án þess að verða var við neitt hökkt :D Mæli með þessu!