Síða 1 af 1

Öppgreid.

Sent: Mið 03. Feb 2010 20:30
af Jimmy
Daginn.
Er með vél frá júní 2008 sem er svona:
Asus p5k pro móðurborð
550w xilence psu
gigabyte triton kassi
q6600 quad core 2,4ghz örri
2x1gig ddr2 800mhz
GeForce 9600GT
1x 250gb seagate barracuda
2x 500gb seagate barracuda
win7 ultimate 32b

Aaaaðeins farið að hægjast á henni í hinu og þessu og einnig farið að koma óþægilegt hljóð í viftunni á skjákortinu þegar ég boota vélinni upp, rykhreinsa hana samt reglulega og defragga og þann pakka.
Er að velta því fyrir mér hvort að ég ætti að fara í nýtt skjákort og í 4gig minni eða fara alla leið í s1156 móbo og i5/i7 örgjörva+5750/5770 radeon kort.
Spurning er ef ég færi í seinni pakkann, væri þá ekki algert möst að fara í almennilegann kassa með decent kælingu og stærra psui í leiðinni?
Er nefnilega með þennan kassa í "skáp" og hann passar þar inn uppá millimetra á hæðina.. Væri verra að þurfa að fara í stærra kvikindi uppá betri kælingu. :P

Re: Öppgreid.

Sent: Mið 03. Feb 2010 21:41
af Jimmy
Hefði einnig áhuga á að fá verðlagningu á þenna pakka - hddarnir og osið að sjálfsögðu.
~100k?
Bjartsýni? :D

Re: Öppgreid.

Sent: Mið 03. Feb 2010 22:23
af coldcut
Jimmy skrifaði:Hefði einnig áhuga á að fá verðlagningu á þenna pakka - hddarnir og osið að sjálfsögðu.
~100k?
Bjartsýni? :D


já frekar mikil bjartsýni held ég...85 væri toppurinn held ég.

Re: Öppgreid.

Sent: Mið 03. Feb 2010 22:28
af SolidFeather
ég myndi byrja á skjákorti, það myndi eflaust breyta frekar miklu.

Re: Öppgreid.

Sent: Mið 03. Feb 2010 22:31
af Dazy crazy
eina sem þú þarft er öflugt skjákort og klukka örrann í 3,2GHz lágmark
já og 4 GB vinnsluminni
ég á meira að segja til sölu 2x2GB ocz 1066MHz vinnsluminni til sölu, 12.000

Re: Öppgreid.

Sent: Mið 03. Feb 2010 22:44
af binnip
Fer auðvitað eftir því hvað þú ert að gera í tölvunni, hvort það eru leikir eða bara svona basic myndir og stuff.
Annars væri fínt að byrja á að upgrade-a skjakortið og fara í 4gb.

Re: Öppgreid.

Sent: Fim 04. Feb 2010 08:30
af Jimmy
Er helling í leikjum, mass effect t.d. runnar fínt í 1280x upplausn en ef ég reyni að fara eitthvað hærra þá fer hann í kleinu :P
Er með 1066 minni en búinn að vera með þau stillt í 800mhz, prófaði síðan í gær að stilla þau í 1066 og þá blue screenaði vélin þegar ég spilaði einhvern leik.. Þannig að ég hugsa að ég geti alveg eins farið í 2x2gig 800mhz minni :P
Einnig ef ég ætla að oc'a örran þarf ég þá ekki að bæta kælinguna talsvert? Er bara með stock heatsinkið og viftuna á honum atm og 2x 120mm viftur inní kassann..

Re: Öppgreid.

Sent: Fim 04. Feb 2010 13:35
af Hnykill
það þarf oft að hækka volt og breyta timing á minninu ef þú ert að reyna keyra það í 1066Mhz. getur prufað 1066 Mhz á 6.6.6.18 og 2.0V. og svo aftur á 2.1V ef það virkar ekki. ef það virkar geturu prufað að lækka timing þar til hún endar í bluescreen aftur, og bakkað þá aðeins.