Síða 1 af 1

2 Vélar sem virka ekki í sama húsinu

Sent: Mán 01. Feb 2010 19:04
af starionturbo
Ég er með 2 hús, A og B.

En allavegana, ég er með tölvu, sem virkaði ekki, bilunin lýsti ser svo:

Hús A: Kveikir á henni, kemst stundum í gegnum post, stundum ekki, endurræsir sig og svo framvegis, stundum kom ekkert á skjáinn, stundum kom ljós á músina/lyklaborð, stundum ekki.

Fer með tölvuna í Hús B, kveiki, og það sama skeður.
Mig grunaði að móðurborðið var farið, eftir að ég prufa alla íhlutina í öðru móður borði og allt virkaði þar.
Fæ nýtt móðurborð, skipti öllu yfir. Kveiki á vélinni í Hús B - allt virkar sem skyldi þangað til hun byrjar að endurræsa sig eins og áður.

Mig er farið að gruna power supply-ið alvarlega.

Ég skipti um það og allt í fina... og ekki nóg með það, þa skipti ég um allan vélbúnað (nánast önnur tölva, bara sami HDD og kassi )

fer með vélina í hús A og kveiki á henni... þa byrjar hún að restarta sér og kemst ekki lengra en windows login. stundum ekki lengra en post. ( s.s. sama vandamál og áður með engan vegin sömu vél )

Mér sýnist hun halta stundum á USB boot-i og stundum einhverju öðru.


Hvernig er það, eru einhverjar varnir á power supply í dag?
Til dæmis við spennufalli og öðru slíku ?

Hvað getur verið að hér ?

Re: 2 Vélar sem virka ekki í sama húsinu

Sent: Mán 01. Feb 2010 19:08
af binnip
Formattaðiru ? , prófaðu það.

Re: 2 Vélar sem virka ekki í sama húsinu

Sent: Mán 01. Feb 2010 19:38
af SteiniP
Kannski er bara harði diskurinn farinn :)
Það getur valdið því að hún kemst ekki inn í stýrikerfið og gengur illa að POSTA.

og já eins og biturk sagði, þá ættirðu að formatta diskinn og setja upp stýrikerfið aftur. Windows fer allt í kerfi þegar þú skiptir um móðurborð.

Það er bara misjafnt eftir aflgjöfum hvernig þeir höndla spennufall. Gæða aflgjafar þola það betur og margir eru með öryggi þannig þeir slá út áður en það verða skemmdir.
En ef það er um spennufall að ræða þá myndi líklega slokkna skyndilega á tölvunni eða byrja að rjúka úr aflgjafanum. :)

Re: 2 Vélar sem virka ekki í sama húsinu

Sent: Þri 02. Feb 2010 09:54
af corflame
Örugglega engin útleiðsla á rafmagni? Móðurborð þola slíkt afar illa og eiga það til að hegða sér furðulega sé það vandamál er til staðar.

Getur prófað þetta með því að láta móðurborðið standa á static-fríu yfirborði þegar þú ert í þessum æfingum.

Re: 2 Vélar sem virka ekki í sama húsinu

Sent: Þri 02. Feb 2010 13:37
af biturk
SteiniP skrifaði:Kannski er bara harði diskurinn farinn :)
Það getur valdið því að hún kemst ekki inn í stýrikerfið og gengur illa að POSTA.

og já eins og biturk sagði, þá ættirðu að formatta diskinn og setja upp stýrikerfið aftur. Windows fer allt í kerfi þegar þú skiptir um móðurborð.

Það er bara misjafnt eftir aflgjöfum hvernig þeir höndla spennufall. Gæða aflgjafar þola það betur og margir eru með öryggi þannig þeir slá út áður en það verða skemmdir.
En ef það er um spennufall að ræða þá myndi líklega slokkna skyndilega á tölvunni eða byrja að rjúka úr aflgjafanum. :)

:shock:



ég sagði ekki orð :hnuss

Re: 2 Vélar sem virka ekki í sama húsinu

Sent: Þri 02. Feb 2010 14:43
af SteiniP
binnip, biturk... alveg eins :^o

ég held ég sé kominn með vægt tilfelli af dyslexíu :oops: