Síða 1 af 1

1,8" Harða diska hýsing

Sent: Mið 27. Jan 2010 17:55
af Frussi
Ég var að koma höndum yfir 30gb 1,8" harðan disk sem að ég held að sé í lagi.
Mér datt í hug að nota hann sem passport flakkara en var þá að velta því fyrir mér hvort einhver viti hvort hægt sé að fá utanáliggjandi hýsingu fyrir hann (hér á landi) og hvort svoleiðis sé dýrt.
Einnig er ég ekki 100% viss um að hann sé í lagi og því var ég að spá hvort einhversstaðar sé hægt að láta athuga það.
Með fyrirfram þökk.

Re: 1,8" Harða diska hýsing

Sent: Mið 27. Jan 2010 19:12
af SteiniP
gamall ipod gæti virkað sem hýsing utan um þetta

Re: 1,8" Harða diska hýsing

Sent: Mið 27. Jan 2010 21:04
af andribolla
Passa venjulegir 1,8 hd inn í ipod ?

sömutengi ?
hxdxl ?

Re: 1,8" Harða diska hýsing

Sent: Mið 27. Jan 2010 21:10
af KermitTheFrog
Já, það eru 1.8" ata diskar í iPodum. Getur samt ekki notað case af þunnu iPodunum (30 GB iPod video og þeir).

Re: 1,8" Harða diska hýsing

Sent: Mið 27. Jan 2010 21:11
af SteiniP
Jú gömlu hlunkarnir voru með 1.8" diska. Þeir nota örugglega sömu tengi.
Gætir samt þurft eitthvað firmware hax til að fá hann til að virka. Eitthvað sem er þess virði að skoða ef þú finnur gamlan ipod.

Re: 1,8" Harða diska hýsing

Sent: Mið 27. Jan 2010 22:10
af Frussi
Hér með lýsi ég þá eftir gömlum ipod.
Ef einhver sem er að fylgjast með hérna lumar á slíku, þá er ég tilbúinn til að losa þann aðila við hann ;)

Re: 1,8" Harða diska hýsing

Sent: Fim 28. Jan 2010 09:29
af andribolla
hehe á eg ekki frekar að losa þig við þennan disk :D :^o