Síða 1 af 1
SATA Seagate 120GB
Sent: Mið 14. Jan 2004 23:04
af xtr
Er að fara að festa kaup á þessum disk mjög líklega nema einhverjir komi með einhver gagnleg comment

Langar að vita er þetta hraður og goður diskur og er hann hljóðlátur .. Skiptar skoðanir hjá mörgu fólki sem ég þekki ..
Re: SATA Seagate 120GB
Sent: Fim 15. Jan 2004 01:28
af Snikkari
xtr skrifaði:Er að fara að festa kaup á þessum disk mjög líklega nema einhverjir komi með einhver gagnleg comment

Langar að vita er þetta hraður og goður diskur og er hann hljóðlátur .. Skiptar skoðanir hjá mörgu fólki sem ég þekki ..
Ég er með S-ATA Seagate 120Gb.
Ég sé eftir því að hafa ekki fengið mér Seagate eða Samsung ATA-133.
Þetta er bara bras í uppsetningu á windows og svona.
Framleiðendur eru ekki farnir að nýta þessa tækni til fulls ennþá.
Sent: Fim 15. Jan 2004 02:07
af GuðjónR
Ég er með 3x Seagate ATA (ekki sata) allir nýlegir...mæli hiklaust með!
Ég held að það sé ekki tímabært að kaupa SATA...
Sent: Fim 15. Jan 2004 03:22
af Kull
Ég er nýbúinn að kaupa mér Maxtor Diamondmax 120Gb SATA disk og er bara ánægður með hann. Alveg eins að setja hann upp og ATA133, lenti ekki í neinu vesini, bara miklu minni snúrur og þægindi.
Re: SATA Seagate 120GB
Sent: Fim 15. Jan 2004 22:47
af xtr
Er þá Samsung ATA-133 160GB 7200rpm 8MB buffer mun betri en Seagate Barracuda SATA 120GB 7200RPM 8mb Buffer
Ég sé að Samsung diskurinn er pínku ódýrari líka

Sent: Lau 17. Jan 2004 12:37
af FrankC
ég er með s-ata útgáfuna og hún er frábær, heyrist gjörsamlega ekki neitt í henni í idle. Það er ekkert mál að setja þetta upp, þú skalt a.m.k. ekki láta það stoppa þig, svo er ótrúlegur munur að vera þessa litlu kapla
Re: SATA Seagate 120GB
Sent: Sun 18. Jan 2004 13:34
af skipio
xtr skrifaði:Er þá Samsung ATA-133 160GB 7200rpm 8MB buffer mun betri en Seagate Barracuda SATA 120GB 7200RPM 8mb Buffer
Ég sé að Samsung diskurinn er pínku ódýrari líka

Ég myndi frekar fá mér Samsung disk; þeir hitna minna og hafa betra performance. Hávaðinn í þeim er alveg jafn lítill og í gömlu góðu Barracuda IV. Seagate eru hinsvegar næstbestu diskarnir að mínu áliti.
Re: SATA Seagate 120GB
Sent: Sun 18. Jan 2004 20:09
af xtr
Ég keypti mér Samsung í gær :I Og það heyrist EKKERT í þeim og þetta er bara hinir fínustu diskar

Sent: Mið 17. Mar 2004 00:05
af pjesi
Binni ertu leet or what?

Sent: Mið 17. Mar 2004 01:03
af Arnar
Ég er með 2x Seagate 120gb SATA diska í RAID-0 og ekkert vesen með þá.
Það heyrist ekkert í þeim hjá mér.
Og ég fæ meira en 100 í bæði read og write eins og þeir eru núna
Ég get ekki sagt neitt neikvætt um þá.
Sent: Fös 19. Mar 2004 14:05
af Hlynzi
Ég er núna með stærsta diskinn Samsung 160 GB, og hann er 7200 rpm, með 8 mb buffer.
Hann er rosalega hljóðlátur og fínn. Mér finnst samt þægilegra að hafa viftu á hann, þá er hann í kringum 30° c í fullri vinnslu.
Þetta er reyndar IDE "kaplað"
Sent: Fös 19. Mar 2004 17:37
af FrankC
ég er með seagata sata diskinn, heyrist ekkert í honum, reyndar sprakk allt í tölvunni í gær, vandamál með PSU held ég en fyrir það heyrðist ekki múkk í disknum... mæli með honum
Sent: Fös 19. Mar 2004 19:43
af xtr
Samsung 160 GB ég er með þetta tryllitæki, geðveikt kúl stuff :> heyrist ekkert