Síða 1 af 1
Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 00:14
af Frost
Sælir. Þið vitið kannski af vandanum mínum. Ég sagði að vandamálið væri leyst en núna er ég búinn að útiloka svo mikið að ég veit bara alls ekki hvað ég ætti að gera
Tölvan stoppar alveg að responde-a. Get ekki hreyft músina, skjárinn á G15 hættir að virka, get ekki ýtt á ctrl+alt+del og verð að restarta með takkanum á tölvunni.
Búinn að útiloka:Harðan DiskVinnsluminniÖrgjörvannStýrikerfi og HugbúnaðAflgjafannVeit ekki alveg hvernig ég get skoðað með skjákortin og móðurborð. Ég er alveg að farast útaf þessu. Get ekki spilað leiki og ég eiginlega lifi fyrir það. Líka það að ég er að fara á Gamer og mikið vandamál að vera alltaf að crasha þá.
*UPDATE*Er búinn að taka eitt skjákortið úr og allt virkar vel núna. Þetta var víst hitavandamál. En nú er ég ekki viss hvað ég gæti gert til að halda hinu kortinu köldu :S
Væri alveg þvílíkt þakklátur ef að það gæti einhver hjálpað mér.
Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 00:54
af Gunnar
varstu buinn að formatta?
gæti það verið kassinn utanum allt þetta sjálfur að valda þessu?

Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 01:05
af Danni V8
Hvað gerist þegar tölvan frís? Stoppar bara allt? Músin líka? Eða kemur bluescreen?
Gerist þetta oft á dag, með löngu eða stuttu millibili?
Miðað við það sem þú ert búinn að útiloka þá gætu þetta ennþá verið skjákortið eða jafnvel móðurborðið sjálft. En til að greina svona þarf meira info en bara að tölvan frýs.
Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 01:15
af Viktor
Næ enganvegin að lesa út úr þessu hvað er að eða hvað þú hefur reynt.
Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 03:10
af Frost
Gunnar skrifaði:varstu buinn að formatta?
gæti það verið kassinn utanum allt þetta sjálfur að valda þessu?

Var búinn að fotmatta.
Danni V8 skrifaði:Hvað gerist þegar tölvan frís? Stoppar bara allt? Músin líka? Eða kemur bluescreen?
Gerist þetta oft á dag, með löngu eða stuttu millibili?
Miðað við það sem þú ert búinn að útiloka þá gætu þetta ennþá verið skjákortið eða jafnvel móðurborðið sjálft. En til að greina svona þarf meira info en bara að tölvan frýs.
Tölvan bara alveg stoppar. Skjárinn á G15 hættir að virka, get ekki hreyft músina og get ekki ýtt á ctrl+alt+del.
Sallarólegur skrifaði:Næ enganvegin að lesa út úr þessu hvað er að eða hvað þú hefur reynt.
Hvað vantar þarna?
Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 03:36
af Glazier
Hmm.. þegar hún frýs svona í leikjum þá stoppar myndin á skjánum, það slöknar á músinni og lyklaborðinu og það eina sem þú getur gert er að slökva á aflgjafanum ? (eða virkar að nota takkann framan á tölvunni?)
Þegar(ef?) þetta gerist þegar þú ert ekki í leikjum frýs þá myndin á skjánum eða verður skjárinn allur í sama lit (t.d. allur grænn, allur grár, allur svartur eða eitthvað munstur) ?
Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 03:54
af SteiniP
Er hún að frjósa undir álagi eða þegar þú ert að gera eitthvað ákveðið?
Búinn að útiloka hitavandamál?
Þú segir að þú sért búinn að útiloka alla þessa hluti. Ertu þá búinn að formatta diskinn og setja upp hreina uppsetningu af stýrikerfinu? Ertu búinn að þaulreyna vinnsluminnið, 1 kubb í einu 4-5 sinnum í gegnum memtest86 eða prófa að nota annað vinnsluminni?
Búinn að prófa annan aflgjafa og örgjörva?
Sagðirðu ekki að harði diskurinn hefði failað á diagnostic testi í hinum þræðinum? Myndi þá kanna það betur.
Ertu með einhvern annan vélbúnað í tölvunni? Netkort, hljóðkort, sjónvarpskort.. etc.
Annars er bara eitt eftir í stöðunni, að prófa annað skjákort. Ef hún heldur áfram að frjósa, þá er þetta að öllum líkindum móðurborðið.
Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 17:45
af Frost
Glazier skrifaði:Hmm.. þegar hún frýs svona í leikjum þá stoppar myndin á skjánum, það slöknar á músinni og lyklaborðinu og það eina sem þú getur gert er að slökva á aflgjafanum ? (eða virkar að nota takkann framan á tölvunni?)
Þegar(ef?) þetta gerist þegar þú ert ekki í leikjum frýs þá myndin á skjánum eða verður skjárinn allur í sama lit (t.d. allur grænn, allur grár, allur svartur eða eitthvað munstur) ?
Takkinn á tölvunni virkar. Skjárinn bara frýs myndin alveg eins.
SteiniP skrifaði:Er hún að frjósa undir álagi eða þegar þú ert að gera eitthvað ákveðið?
Búinn að útiloka hitavandamál?
Þú segir að þú sért búinn að útiloka alla þessa hluti. Ertu þá búinn að formatta diskinn og setja upp hreina uppsetningu af stýrikerfinu? Ertu búinn að þaulreyna vinnsluminnið, 1 kubb í einu 4-5 sinnum í gegnum memtest86 eða prófa að nota annað vinnsluminni?
Búinn að prófa annan aflgjafa og örgjörva?
Sagðirðu ekki að harði diskurinn hefði failað á diagnostic testi í hinum þræðinum? Myndi þá kanna það betur.
Ertu með einhvern annan vélbúnað í tölvunni? Netkort, hljóðkort, sjónvarpskort.. etc.
Annars er bara eitt eftir í stöðunni, að prófa annað skjákort. Ef hún heldur áfram að frjósa, þá er þetta að öllum líkindum móðurborðið.
Hiti er ekker vandamál og já þetta var hrein uppsetning af stýrikerfi. Á eftir að prófa annan CPU en hún frýs ekkert þegar ég runna prime95.
Þetta gæti verið skjákortið því að hún frýs ekkert nema í leikjum.
Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 18:15
af vesley
keyrðu forrit eins og Furmark eða MSI Kombustor til að prófa GPU
Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 18:16
af Gunnar
náðu i heaven og runnaðu það. ef tölvan crassar þá þá eru það miklar líkur að það sé skjákortið.
Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 19:27
af Frost
Keyrði Furmark. Eftir svona 3 mín var það komið í 100°c. Ég held að þetta sé komið. Skjákortið(efra) er að hitna of mikið. Ég treysti mér ekki að prófa lengur.
Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 19:28
af vesley
Frost skrifaði:Keyrði Furmark. Eftir svona 3 mín var það komið í 100°c. Ég held að þetta sé komið. Skjákortið(efra) er að hitna of mikið. Ég treysti mér ekki að prófa lengur.
ertu með single slot cooler á kortinu ?
Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 19:40
af Frost
vesley skrifaði:Frost skrifaði:Keyrði Furmark. Eftir svona 3 mín var það komið í 100°c. Ég held að þetta sé komið. Skjákortið(efra) er að hitna of mikið. Ég treysti mér ekki að prófa lengur.
ertu með single slot cooler á kortinu ?
Ha? Ég er með tvö svona skjákort.
http://media.bestofmicro.com/1/T/102449/original/gigabyte_8800gt.jpg Alveg eins kælingar.
Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 20:22
af SteiniP
Prófaðu að keyra hana með einu skjákorti í einu og sjáðu hvort hún er að frjósa.
Þessi hiti er í hærri kantinum, ættir kannski að íhuga kassaviftu á hliðina til að blása á skjákortin. Efra kortið hitnar væntanlega meira því að viftan dregur inn heita loftið frá neðra skjákortinu.
Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 22:24
af Black
ég reddaði mér einhverntíman með því að taka viftu og reka 4 langa bolta í gegnum skrúfgangana á henni lagið hana síðan á 4boltana í botninn á kassanum og lét hana blása upp undir kortið.. það virkaði einhvða til bráðabirgðar,, síðan fékk ég mér nýtt kort með viftu
hér er HD mynd af Ferlinu..

Re: Tölvan randomly frís.
Sent: Sun 24. Jan 2010 22:27
af Frost
SteiniP skrifaði:Prófaðu að keyra hana með einu skjákorti í einu og sjáðu hvort hún er að frjósa.
Þessi hiti er í hærri kantinum, ættir kannski að íhuga kassaviftu á hliðina til að blása á skjákortin. Efra kortið hitnar væntanlega meira því að viftan dregur inn heita loftið frá neðra skjákortinu.
Þetta virkar með einu skjákorti. Ég er með eina 92mm viftu sem ég get sett á hliðina en er það nóg?
Black skrifaði:ég reddaði mér einhverntíman með því að taka viftu og reka 4 langa bolta í gegnum skrúfgangana á henni lagið hana síðan á 4boltana í botninn á kassanum og lét hana blása upp undir kortið.. það virkaði einhvða til bráðabirgðar,, síðan fékk ég mér nýtt kort með viftu
hér er HD mynd af Ferlinu..

Bæði skjákortin eru með viftu.