Síða 1 af 1

Ekkert hljóð...

Sent: Lau 16. Jan 2010 17:11
af Lallistori
Sælir vantar smá aðstoð , ég var að formatta vélina hjá mér og núna virkar ekkert hljóð.. =/

Búinn að setja inn audio drivera en ekkert virðist virka..

Einhver með hugmynd hvernig á að laga þetta ?

Er með XP pro sp3 og hljóðkortið er innbyggt á móðurborði..

Móðurborð - MSI MS-7010

Re: Ekkert hljóð...

Sent: Lau 16. Jan 2010 17:18
af SteiniP
Þér datt ekki í hug að taka frama hvaða stýrikerfi og hljóðkort þú ert með?

Re: Ekkert hljóð...

Sent: Lau 16. Jan 2010 17:52
af Lallistori
SteiniP skrifaði:Þér datt ekki í hug að taka frama hvaða stýrikerfi og hljóðkort þú ert með?


Búinn að bæta því við :P

Re: Ekkert hljóð...

Sent: Lau 16. Jan 2010 17:57
af SteiniP
#-o hvaða móðurborð ertu með?

Re: Ekkert hljóð...

Sent: Lau 16. Jan 2010 18:42
af beatmaster
Ég giska á að þú sért með hátalarana/hedfone-inn tengda að framan og það komi ekkert hljóð þar
Ég giska líka á að þú hafir ekki prófað að tengja hátalarana/hedfone-inn að aftann og ef að þú prufar það þá komi hljóð þaðan?

Ef að þessi gisk hjá mér eru rétt, þá þarftu að finna stillingu hjá þér sem að disable-ar front panel detection eða hafa bara tengt að aftann :)

Einnig væri mjög gott að fá að vita nafn og týpunúmer á móðurborðinu

Re: Ekkert hljóð...

Sent: Lau 16. Jan 2010 18:59
af Lallistori
beatmaster skrifaði:Ég giska á að þú sért með hátalarana/hedfone-inn tengda að framan og það komi ekkert hljóð þar
Ég giska líka á að þú hafir ekki prófað að tengja hátalarana/hedfone-inn að aftann og ef að þú prufar það þá komi hljóð þaðan?

Ef að þessi gisk hjá mér eru rétt, þá þarftu að finna stillingu hjá þér sem að disable-ar front panel detection eða hafa bara tengt að aftann :)

Einnig væri mjög gott að fá að vita nafn og týpunúmer á móðurborðinu


Er búinn að prufa að framan og aftan með 2 kerfi , hvorugt virkar.. er ekki með vélina hjá mér eins og er en hendi týpunr inn á eftir...

-------------------------------EDIT-------------------------------------
uppl um móðurborðið komið :P

Re: Ekkert hljóð...

Sent: Lau 16. Jan 2010 21:38
af beatmaster
Er þetta Medion tölva?

Re: Ekkert hljóð...

Sent: Lau 16. Jan 2010 22:07
af Gunnar
farðu í device mananger og segðu okkur hvort það sé einhver þríhyringur við eitthvað að driverunum.
og hvernig þú kemmst þangað : http://www.laplink.com/support/kb/article.asp?ID=359

Re: Ekkert hljóð...

Sent: Lau 16. Jan 2010 22:16
af SteiniP
Mér sýnist vera VIA Vinyl hljóðstýring á þessu borði og að öllum líkindum medion borð.
Þú getur kannski séð það með því að googla hardware id. Þú finnur það með því að hægri klikka a hljóðkortinu í device manager (kemur kannski fram sem 'unknown device'), velja properties, svo details og veldu svo 'Hardware Ids' í listanum.

Prófaðu þennan driver http://www.viaarena.com/Driver/vinyl_v700b.zip

Re: Ekkert hljóð...

Sent: Sun 17. Jan 2010 03:36
af Lallistori
SteiniP skrifaði:Mér sýnist vera VIA Vinyl hljóðstýring á þessu borði og að öllum líkindum medion borð.
Þú getur kannski séð það með því að googla hardware id. Þú finnur það með því að hægri klikka a hljóðkortinu í device manager (kemur kannski fram sem 'unknown device'), velja properties, svo details og veldu svo 'Hardware Ids' í listanum.

Prófaðu þennan driver http://www.viaarena.com/Driver/vinyl_v700b.zip


Þetta virkaði.. takk kærlega :wink:

Re: Ekkert hljóð...

Sent: Mið 03. Feb 2010 17:09
af binnip
Var lika ad formatta, nae ekki ad setja inn hljodkortsdriverinn. Er med ASrock P43DE modurbord, innbyggt hljodkort.