Síða 1 af 1

Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Sun 10. Jan 2010 15:02
af zlamm
Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Sun 10. Jan 2010 15:14
af lukkuláki
Ekki hægt.
Sá einusinni BIOS sem bauð upp á það en það eru sennilega ein 7-8 ár síðan. Hef aldrei séð það aftur.
Settu stýrikerfis CD eða DVD í drifið og bootaðu af honum ekkert mál að formata þannig.

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Sun 10. Jan 2010 15:19
af zlamm
Það er nebblinlega málið, ég get ekki bootað frá CD, ég fæ ekki einusinni valmöguleikann á því...

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Sun 10. Jan 2010 15:33
af Gunnar
buinn að stilla bootorder svo að cd-drive sé fyrst?

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Sun 10. Jan 2010 15:49
af mercury
haha stórefa það.

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Sun 10. Jan 2010 15:50
af AntiTrust
zlamm skrifaði:Það er nebblinlega málið, ég get ekki bootað frá CD, ég fæ ekki einusinni valmöguleikann á því...


Það er oftast (nema þegar það er viljandi disabled í BIOS) key shortcut til að fá upp temp boot option (Líklegast e-rstaðar á milli F8 og F12). Hinsvegar er alltaf hægt að breyta default boot order í BIOS.

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Sun 10. Jan 2010 16:01
af vesley
breytir röðinni frá að BIOS lesi drifið fyrst en ekki harða diskinn .

og þá bootar hún disknum og ættir að geta formattað

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Sun 10. Jan 2010 16:07
af zlamm
vesley skrifaði:breytir röðinni frá að BIOS lesi drifið fyrst en ekki harða diskinn .

og þá bootar hún disknum og ættir að geta formattað


Og hvernig geri ég það?

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Sun 10. Jan 2010 16:14
af methylman
Prufa F10 - F11 og F12 þetta eru lyklarnir efst á lyklaborðinu :)

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Sun 10. Jan 2010 16:19
af AntiTrust
zlamm skrifaði:
vesley skrifaði:breytir röðinni frá að BIOS lesi drifið fyrst en ekki harða diskinn .

og þá bootar hún disknum og ættir að geta formattað


Og hvernig geri ég það?


JFGI.

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Sun 10. Jan 2010 16:54
af Glazier
Las ekki öll commentin en sá að hann sagðist vera búinn að stilla þannig tölvan lesi fyrst af CD drifinu og síðan harða disknum..
Ég var að setja upp windows 7 á tölvu um daginn og ég fékk hana enganvegin til að boota af disknum sama hvað ég reyndi svo ég tók harða diskinn úr vélinni og setti í mína vél, fór svo inn í my computer og formattaði diskinn og síðan tengdi ég diskinn sem "aðal" diskinn í tölvunni og setti upp windows 7 á hann og fór síðan með hann í upprunalegu vélina og þá var það komið..

Þannig ef þú hefur tök á því að skella disknum í aðra vél þá er þetta mjög einföld leið :)

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Sun 10. Jan 2010 16:58
af chaplin
1. Farðu í biosinn, F2, Del, F12 við boot, musmunandi eftir móðurboði.
2. Settu CD-ROM sem fyrsta boot priority!
3. Enableaðu lyklaborðið /f bios. Heitir mismunandi eftir bios en ef þú sérð eithverjar stillingar sem heita "keyboard" settu þá á "enable/active/on".
4. Restart.

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Mán 11. Jan 2010 16:07
af zlamm
Glazier skrifaði:Las ekki öll commentin en sá að hann sagðist vera búinn að stilla þannig tölvan lesi fyrst af CD drifinu og síðan harða disknum..


Nei! ég er að reyna að fatta hvernig ég á að gera það!

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Mán 11. Jan 2010 16:12
af AntiTrust
zlamm skrifaði:
Glazier skrifaði:Las ekki öll commentin en sá að hann sagðist vera búinn að stilla þannig tölvan lesi fyrst af CD drifinu og síðan harða disknum..


Nei! ég er að reyna að fatta hvernig ég á að gera það!


Allar þær upplýsingar sem eru komnar fram í þræðinum eru meira en nægar leiðbeiningar. Lestu þær og fylgdu þeim.

Re: Hvernig formatta ég í gegnum BIOS?

Sent: Mán 11. Jan 2010 16:15
af coldcut
Eitt sem kannski vantar í þessari hjálp ykkar er að Boot Order er væntanlega undir "Advanced BIOS features" eða "CMOS feature" þegar þú ert kominn í BIOSinn ;)