Síða 1 af 1
Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Þri 22. Des 2009 20:21
af KermitTheFrog
Sælinú. Ég er að lenda í smá vandræðum hérna með tölvuna mína. Ég hef lent í því inn á milli að fá að heyra hljóð sem er alveg ómögulegt að lýsa. Ég hef heyrt þetta hljóð oft rétt áður en tölvur bluescreena. Þetta gerist bara þegar ég spila eitthvað media (hef aldrei lent í að þetta gerist í leikjaspilun). Þetta hefur komið fyrir inn á milli og ég hef ekkert látið það pirra mig eitthvað einstaklega mikið, en núna gerist þetta nú það mikið að þetta er farið að fara í taugarnar á mér og ég hef svolitilar áhyggjur af þessu.
Ég læt fylgja með myndband sem ég tók upp af tölvunni minni að framkalla þetta hljóð og það fylgir með hér að neðan. Datt í hug að uppfæra drivera en ég virðist vera up-to-date með allt.
Any ideas?
http://www.megavideo.com/?v=U16OJAH3EDIT: Gleymdi að taka fram að ég er að keyra Windows 7 Ultimate x64 á setup í undirskrift.
Og allt stýrikerfið höktir einhvernvegin (músin laggar og stuff)
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Þri 22. Des 2009 21:06
af Frost
Harður diskur að faila? Ertu búinn að prófa að horfa á myndir af öðrum disk?
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Þri 22. Des 2009 21:08
af KermitTheFrog
Sýnist þetta vera farið í bili. Þetta hefur gerst við spilun af mismunandi diskum.
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Þri 22. Des 2009 21:11
af Frost
Ertu enn með 7100 betuna af Win7?
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Þri 22. Des 2009 21:16
af KermitTheFrog
Strokið út fyrra comment mitt. Þetta er byrjað aftur af fullum krafti.
Og nei, ég er með 7600 útgáfuna af Win 7.
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Þri 22. Des 2009 21:18
af SteiniP
Ertu þá að nota innbyggða hljóðkortið?
Ég sá á öðrum þræði hjá þér að þú ert að dualboota með XP, er að gerast í XP líka?
Það væri líka forvitnilegt að vita hvort að cpu usage sé að fara upp úr öllu valdi þegar þetta gerist.
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Þri 22. Des 2009 21:24
af KermitTheFrog
CPU usage er alveg venjulegt.
Ég er búinn að skanna tölvuna og allt sem fannst var einhver hijack.blabla.bla skrá sem er nú horfin.
Ég nenni í raun ekki að keyra upp XP vegna þess að það er í raun ekkert sett upp þar nema cryss og nauðsynlegustu driverar. Get það meira að segja ekki nema með einhverju skítamixi sem ég nenni ekki að standa í núna.
Ég hef litla trú á því að þetta tengist hljóðkortinu þar sem allt stýrikerfið í raun höktir brjálæðislega.
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Þri 22. Des 2009 21:34
af SteiniP
Ertu með einhverja codec pakka installaða?
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Þri 22. Des 2009 21:38
af KermitTheFrog
Bara CCCP.
Mér sýnist þetta hafa retreatað eitthvað. Ég lokaði bara öllu sem ég taldi ónauðsynlegt í task manager.
EDIT: En þetta kemur samt alltaf aftur.
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Þri 22. Des 2009 23:16
af vesley
bara smá gisk en gæti þetta verið capacitor (þéttir) á eitthverju eins og skjákortinu að væla ?
gerist svipað hjá mér með 8800gts kortið mitt .
þá bara reyndar við þunga keyrslu eins og þegar það er að loada leiki. lítið þegar leikir eru byrjaðir og eins og þegar ég folda. taktu bara hliðina af og hlustaðu eftir hljóðinu til að komast að því hvaðan það kemur.
ef þetta er þéttir þá þarftu líklega ekki að hafa áhyggjur . til ýmis trikk til að losna við það.
sá á overclock.net gæja láta svona glært naglalakk eða eitthvað í þá áttina yfir þéttinn til að einangra hann og suðið hvarf.
bara gisk hjá mér en gæti verið þetta sko

Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Þri 22. Des 2009 23:47
af KermitTheFrog
vesley skrifaði:taktu bara hliðina af og hlustaðu eftir hljóðinu til að komast að því hvaðan það kemur.
Ég myndi nú græða lítið á því þar sem hljóðið kemur úr hátölurunum

Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Þri 22. Des 2009 23:53
af Narco
Þetta hljóð er líka í fartölvu félaga míns, og að öllum líkindun er þetta þéttir þar sem við vorum búnir að reyna allt-og þá meina ég allt.
Það má þó velta því fyrir sér hvort utanáliggjandi hljóðkort myndi laga þetta eitthvað, en þá er spurningin hvort þú sért búinn að prufa að disabla allt sem hægt er að disabla í bios áður. Held að það sé góð leið til að leita að svona bilun til að byrja með.
Svo ef þú opnar vélina þá áttu að sjá hvort þéttir er belgdur út eða hvort hann lekur. Slíkt er ekkert mál að skipta um þar sem þéttar kosta nánast ekki neitt. Vonandi gengur þetta hjá þér, þú póstar þá kannski ef þú finnur eitthvað.
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Mið 23. Des 2009 00:54
af vesley
KermitTheFrog skrifaði:vesley skrifaði:taktu bara hliðina af og hlustaðu eftir hljóðinu til að komast að því hvaðan það kemur.
Ég myndi nú græða lítið á því þar sem hljóðið kemur úr hátölurunum

nú úr hátölurunum x D þá skaltu ekkert vera að pæla því sem ég sagði hélt að þetta kæmi úr tölvunni sjálfri

Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Mið 23. Des 2009 02:03
af KermitTheFrog
vesley skrifaði:KermitTheFrog skrifaði:vesley skrifaði:taktu bara hliðina af og hlustaðu eftir hljóðinu til að komast að því hvaðan það kemur.
Ég myndi nú græða lítið á því þar sem hljóðið kemur úr hátölurunum

nú úr hátölurunum x D þá skaltu ekkert vera að pæla því sem ég sagði hélt að þetta kæmi úr tölvunni sjálfri

Hehe. Þetta virðist vera að minnka til muna núna. En þetta virðist vera einhversskonar vélbúnaðar bögg. Hef alveg lent í þessu inn á milli en þetta gerðist bara í svo miklum mæli áðan.
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Mið 23. Des 2009 02:09
af lukkuláki
Sko þetta er nú bara skot út í loftið en prófaðu að taka vír og tengja hann í járn á fartölvunni td. járnið þar sem VGA fer í samband
og þaðan í jörð, til dæmis bert járn á ofni.
Prófaðu það sakar ekki, þetta er ferlega skrítið hljóð það gæti kannski verið að vírar séu að slá saman og vanti einangrun jafnvel bilun í jack input eða eitthvað þannig ?
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Mið 23. Des 2009 02:46
af KermitTheFrog
lukkuláki skrifaði:Sko þetta er nú bara skot út í loftið en prófaðu að taka vír og tengja hann í járn á fartölvunni td. járnið þar sem VGA fer í samband
og þaðan í jörð, til dæmis bert járn á ofni.
Prófaðu það sakar ekki, þetta er ferlega skrítið hljóð það gæti kannski verið að vírar séu að slá saman og vanti einangrun jafnvel bilun í jack input eða eitthvað þannig ?
Fartölvunni?
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Mið 23. Des 2009 04:28
af Hnykill
naunau.. þetta er nákvæmlega sama hljóð og var í tölvunni minni í fyrra.. nema það kom svona 1-2 á mánuði og ekkert í stuttan tíma heldur.. bara þar til maður restartaði. og stundum vildi hún ekkert starta upp strax eftir það. ég gat hlustað hvaðan það kom og fannst það alltaf vera aflgjafinn, en svo eftir nokkra mánuði hrundi móðurborðið. fékk nýtt og þetta vandamál kom aldrei upp aftur. var þá með P35 borð frá Gigabyte, man ekki alveg hvaða því miður :/
Og ég var líka með E8400 á 400FSB (3.6Ghz) og ATI MSI R4850 512 MB.. hvort það tengist því eitthvað hef ég ekki hugmynd :/
þetta kom á sama tíma og það var farið að setja "solid capacitor" í móðurborð svo það er ágætis giskun að það sé að fara grunar mig. hef heyrt í allskonar hljóðum frá öllu hardware sem til er gegnum árin, en hef ekki heyrt þetta fyrr en þeir fóru að planta þessu á móðurborðin.
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Mið 23. Des 2009 07:58
af lukkuláki
KermitTheFrog skrifaði:Fartölvunni?
Góðan daginn og gleðileg jól ég var kannski ekki alveg vakandi þarna.
Ignore that plz

Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Mið 23. Des 2009 09:06
af Danni V8
Prófaðu að uninstalla codecunum og spila án þess að vera með codec, þá ættirðu að fá hljóð en ekki mynd og ættir þá að getað skynjað hvort þetta gerist án þerra. Ég hef lent í svona fyrir löngu, reyndar ekki svona alvarlegu, kom af og til í svona 2-3 sec með mjög löngu millibili. En ég verð að viðurkenna að ég man engan vegin hvað ég gerði til að losna við þetta, veit bara að þetta gerist ekki lengur

Ef þetta er codec vandamál þá er þetta codec setupið sem ég er með:
Fyrst náði ég í og setti upp þetta:
http://www.shark007.net/win7codecs.htmlSíðan þetta:
http://www.shark007.net/x64components.htmlEn ég er ennþá með 7100.
Re: Ömurlegt "buzzing" sound
Sent: Mið 23. Des 2009 16:14
af KermitTheFrog
Þetta virðist vera hætt núna. Reyni þetta sem þú kemur inn á Danni ef þetta gerist aftur í svona miklum mæli.