Síða 1 af 1
Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 15:30
af halldorjonz
hæ
er mikill munur að fara frá 22" yfir í 24" lcd skjá? er það svona þess virði? - að selja minn (15-20k) og borga síðan ~15k-20k
og uppfæra frá 22" 1680x1050 yfir í 24" 1920x1080 lcd skjá? Og já ég er með Acer 22" og er að spá í að fara yfir í 24" BenQ G2420HDB (kostar 35k)
(birta: 300cd/㎡ ** skerpa; 1000:1 (Dynamic Contrast Rate: 40.000:1 ** ms: 5ms ** litir, 16.7 milljónir ** tengi: DVI-D ** Senseye+Photo)
http://benq.com/products/LCD/?product=1 ... e=features .. myndir hérna og eitthvað svoleiðis meira info
lýtur kannski út eins og eitthver auglýsing en það er það ekki, hvað segið þið ætti ég að skella mér á þetta?
minn acer skjár er með mjög svipuð specs líka, en allt önnur upplausn og stærð og ekki -senseye eitthvað..
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 15:32
af Glazier
Sko ég er með 22" skjá og svo fékk afi minn sér 24" skjá og mér finnst ég sjá rosalegann mun á mínum skjá og skjánum hanns :S
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 15:41
af Blackened
ef þú átt pening sem þú ert tilbúinn að láta í þetta.. þá go for it!
ég sé ALLS EKKI eftir því að hafa farið í 24".. þvílíkur draumur

á aldrei eftir að geta notað neitt minna hugsa ég
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 15:42
af littli-Jake
Glazier skrifaði:Sko ég er með 22" skjá og svo fékk afi minn sér 24" skjá og mér finnst ég sjá rosalegann mun á mínum skjá og skjánum hanns :S
djöful eer afi þinn harður
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 15:43
af Glazier
littli-Jake skrifaði:Glazier skrifaði:Sko ég er með 22" skjá og svo fékk afi minn sér 24" skjá og mér finnst ég sjá rosalegann mun á mínum skjá og skjánum hanns :S
djöful eer afi þinn harður
ha ?
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 16:03
af hagur
Helsti munurinn er aukin upplausn myndi ég halda.
Ég var einmitt sjálfur með 22" Samsung 226bw skjá sem minn aðalskjá, með 1680x1050 upplausn. Langaði svo í stærri skjá með hærri upplausn. Persónulega fannst mér 22" -> 24" ekki alveg nægilegt stökk, þannig að ég ákvað að fá mér 26" skjá í staðinn. Það er talsverður munur á honum og 22", en mestu munar þó um 1920x1200 upplausnina og það aukna skjápláss sem hún veitir.
Núna er 226bw skjárinn bara auka skjár við hliðina á hinum og virkar nokkuð smár greyið

Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 16:28
af Matti21
Það er mikill munur. Seldi einmitt Acer 22" skjáinn minn og splæsti í BenQ 24 tommu. Brá þegar ég tók hann úr kassanum hvað hann var mikið stærri og munurinn frá 1680x1050 í 1920x1200 er talsverður. Sé í raunninni bara eftir því að hafa selt Acer skjáinn. Lét hann fara á einhvern aumann 10 þúsund kall minnir mig. Væri ekkert smá til í dual-monitor setup núna

Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 16:42
af stefan251
ég myndi bara kaupa annan 22 skjá

vera með 2 er bara nice
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 17:28
af mind
Hafðu bara í huga að
24" 1920 x 1200 er 24" og 61,1 cm
24" 1920 x 1080 er bara 23,6" og 59,95cm
22" 1680 x 1050 er 22" og 55,9 cm
Því eftir því hvað þú ert að gera má vera þú viljir frekar 24" 1920 x 1200 skjá.
Það er vegna þess eins og sumir hér benda á er mun auðvelda fá sér auka skjá til hliðanna, hæðina er mun erfiðara hækka.
Kíktu bara á þetta í næstu verslun , sjón er sögu ríkari.
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 17:38
af BjarkiB
@Mind, er ekki 1920 x 1200 26" eða?
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 17:39
af Blackened
Tiesto skrifaði:@Mind, er ekki 1920 x 1200 26" eða?
nibb.. það er upplausnin á mínum 24" amk

Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 17:52
af BjarkiB
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 18:14
af Blackened
jájá.. alveg eins og 1680x1050 kemur á 20" en það er líka teygt yfir á 22"

Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 18:28
af halldorjonz
Líka til 22" sem eru 1920x1080...
En hvað segiru, 4 CM munur, er það bæði á lengd og breidd þá (2cm lengd og 2 cm breidd?) og síðan stærri upplausn.
En ef ég myndi fá mér 1920x1200 þá erum við komnir doldið langt yfir 35þúsund kallinn er það ekki?
Ég held að ég myndi ekki meikaða með 2x22" skjái, þar sem ég spila mikið leiki eins og CS/CSS
En er eitthver að selja 24" skjá hérna notaðan? sem er að fara uppfæra yfir í eitthvað stærra

Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 18:52
af Daz
halldorjonz skrifaði:Líka til 22" sem eru 1920x1080...
En hvað segiru, 4 CM munur, er það bæði á lengd og breidd þá (2cm lengd og 2 cm breidd?) og síðan stærri upplausn.
2 tommur eru rétt rúmir 5 cm, ef þú hefur hliðarhlutföllin og kannt þinn pýþagóras áttu að geta reikna hliðarstækkunina.
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 18:59
af mind
Eflaust eru allir 24" yfir 35þús, seldi einn af mínum notuðum á 40 um daginn svo þú getur líklega fengið á svipuðu verði notaðan. (1920 x 1200)
Skjáir eru mældir horn í horn (vinstra neðra horn til efri hægra horn) svo flöturinn sem maður horfir á stækkar töluvert meira en fólk gerir sér oft grein fyrir.
Því er best að sjá þetta bara til að gera sér alminnilega grein fyrir muninum.
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 19:44
af Matti21
mind skrifaði:Hafðu bara í huga að
24" 1920 x 1200 er 24" og 61,1 cm
24" 1920 x 1080 er bara 23,6" og 59,95cm
22" 1680 x 1050 er 22" og 55,9 cm
Því eftir því hvað þú ert að gera má vera þú viljir frekar 24" 1920 x 1200 skjá.
Það er vegna þess eins og sumir hér benda á er mun auðvelda fá sér auka skjá til hliðanna, hæðina er mun erfiðara hækka.
Kíktu bara á þetta í næstu verslun , sjón er sögu ríkari.
Ég skil ekki alveg hvernig þú færð það út að ef skjárinn er með 1920x1080 upplausn þá sé hann aðeins 23,6"? Panellinn sjálfur er en þá 24" horn í horn hann er bara ekki í 16:10 hlutföllum heldur 16:9 eins og sjónvörp. Miðað við "display area" sem BenQ gefa upp á þessari síðu er hann 24" ekki 23.6".
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 19:58
af mind
Það er rétt hjá þér, þetta er ekki rétt hjá mér.
1920 x 1080 ætti ekki að festa stærðina við 23,6".
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 20:13
af halldorjonz
já alveg rétt nú man ég það, er eitthver munur á 16:10 og 16:9? og hvað er það? veit að minn er 16:10 því ég stilli það á í cs source

Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 20:56
af Gúrú
halldorjonz skrifaði:já alveg rétt nú man ég það, er eitthver munur á 16:10 og 16:9? og hvað er það? veit að minn er 16:10 því ég stilli það á í cs source

Uhm, hlutföllin á milli breiddar og lengdar.
100cm á breidd og 50cm á lengd skjár væri t.d. í hlutföllunum 2:1.
Re: Fara frá 22" yfir í 24"
Sent: Fös 18. Des 2009 21:32
af kazgalor
Ég er með 24" við hliðina á vini mínum sem er með 22" og ég sé talsvert mikinn mun. Ég myndi hiklaust mæla með 24". Ég hef amk ekki séð eftir því.