Síða 1 af 1

Hvað fæ ég fyrir? Core2Duo E6700 + móðurborð + 8GB RAM

Sent: Þri 15. Des 2009 15:16
af kiddi
Sælir strákar! Nú ætla ég að athuga hvað ykkur finnst, ég hef svo lítið fylgst með notaða markaðnum undanfarin tvö ár að ég er búinn að glata öllu verðskyni, merkilegt nokk.

Ég er að gæla við að uppfæra í i5, það veltur svolítið á því hvað ég get fengið fyrir þetta.

Hvað teljið þið sanngjarnt fyrir:

Intel Core2Duo E6700 2.66GHz, 4MB Cache, 1066mhz FSB, stock vifta, keyptur sumarið 2007 hjá Tölvutækni
Gigabyte 965P-DS3 móðurborð, keypt sumarið 2007 hjá Tölvutækni
8GB DDR2-800mhz RAM (4x 2GB) Super-Talent vinnsluminni, keypt 2009 hjá computer.is, nývirði í dag er nærri 40þús.

Þessi samsetning er sú stabílasta sem ég hef átt, og vinnsluminnið svoleiðis svínvirkar, öll átta gígabætin.

Hvað segið þið, hvað haldið þið að ég fái fyrir?

Re: Hvað fæ ég fyrir? Core2Duo E6700 + móðurborð + 8GB RAM

Sent: Þri 15. Des 2009 15:18
af GuðjónR
10k. piparkökur og kassa af mandarínum.

Re: Hvað fæ ég fyrir? Core2Duo E6700 + móðurborð + 8GB RAM

Sent: Þri 15. Des 2009 15:33
af beatmaster
kiddi skrifaði:[1] Intel Core2Duo E6700 2.66GHz, 4MB Cache, 1066mhz FSB, stock vifta, keyptur sumarið 2007 hjá Tölvutækni
[2] Gigabyte 965P-DS3 móðurborð, keypt sumarið 2007 hjá Tölvutækni
[3] 8GB DDR2-800mhz RAM (4x 2GB) Super-Talent vinnsluminni, keypt 2009 hjá computer.is, nývirði í dag er nærri 40þús.



[1]10-15.000 kr.
[2]5-7000 kr.
[3]4-6000 kr. x4

Re: Hvað fæ ég fyrir? Core2Duo E6700 + móðurborð + 8GB RAM

Sent: Þri 15. Des 2009 15:35
af CendenZ
Örrinn og Móðurborðið fer nú ekkert á mikið, minninn hinsvegar hafa haldið verðgildi sínum ágætlega

Myndi giska á að örgjafinn og móðurborðið fari á 12-15 og minninn á 25
Svo þessi pakki er á 40 eða svo.

Það er að segja ef einhver er tilbúinn að kaupa E6700 :wink:

Re: Hvað fæ ég fyrir? Core2Duo E6700 + móðurborð + 8GB RAM

Sent: Þri 15. Des 2009 16:26
af Ezekiel
notaður 65nm örri frá 2006/2007 er ekki að fara meira en 7-8k

Re: Hvað fæ ég fyrir? Core2Duo E6700 + móðurborð + 8GB RAM

Sent: Þri 15. Des 2009 16:50
af beatmaster
Ég miðaði bara við að menn eru að selja Q6600 á 10-15000 hérna