Síða 1 af 1
NTFS ekki að meika 160 gígabætin ?
Sent: Þri 06. Jan 2004 21:29
af Hlynzi
Nú er ég mjög vondur. Minn glænýji Samsung 160 gígabæta harði diskur hefur nú í annað skiptið crashað á NTFS filesysteminu. Núna var ég að koma frá vini mínum eftir að 20 gígabæt voru 3-4 klukkutíma á leiðinni, sem er arfa slappt. Nokkuð um stóra fæla, yfir 400 mb. Og ég tek hann úr diskinn set upp windows 2000 á 80 gígabæta disk í vélinni hjá vini mínum, svo er windowsið komið inná, ég smelli mínum disk, og þá kemur "do you want to format this drive blablabla".
Nú er spurning hvað ég get gert. Ég er alveg farinn að hallast að því að þessa sé ekki að virka. Þessvegna langar mig til að færa allt af disknum með linux vél, láta hana lesa útaf honum gögnin og færa þau svo yfir á aðra diska meðan ég set bara upp RedHat 9.0 eða álíka, hef ext3 filesystem á honum, og vona að hann virki.
Hvernig redda ég þessu "formatt beiðni",
Er einhver með góða lausn handa mér ?
Sent: Þri 06. Jan 2004 22:56
af gnarr
ef diskurinn spinnar upp, þá er bara að tala við menn sem að kunna að bjarga gögnum (eins og mig) og borga þeim 1000 kall fyrir að bjarga gögnunum fyrir þig

Sent: Þri 06. Jan 2004 23:11
af Hlynzi
Já var það ekki.
Það er ekkert að þessum disk nema parition taflan er farin í frí.
Sent: Mið 07. Jan 2004 03:07
af skipio
Hlynzi skrifaði:Já var það ekki.
Það er ekkert að þessum disk nema parition taflan er farin í frí.
Þú þarft service pack því Windows sér ekki nema fyrstu 127GB á disknum.
Sent: Mið 07. Jan 2004 12:44
af Hlynzit
Hlynur ég á líka svoa disk. Hann var í fokki hjá mér bara 127GB svo fór ég á þessa síðu
http://www.winguides.com/registry/display.php/1115 og gerði þetta þá varð diskurinn 152Gb eða 149 man ekki alveg hann er í annari tölvu nuna nenni ekki að tékka enn þetta virkar ;D
Sent: Mið 07. Jan 2004 12:52
af gnarr
ef menn klikka á að setja inn servicepackinn og uppfæra þetta allt til að það styði 127gb+ diska og setja svo formataðann 127+ disk í tölvuna, þá skemmist fs-ið
Sent: Mið 07. Jan 2004 14:08
af gumol
Ég setti 160 í (ekki fullformateraðan, bara hluta) og hann virkar fínnt ennþá
Sent: Mið 07. Jan 2004 14:17
af gnarr
ég er að tala um ef þú setur disk sem er formattaður stærra en 127gb þá eyðileggst kerfið. ég hef allavega séð það gerast 3x. hvað varstu með stórt format á þínum disk?
Sent: Mið 07. Jan 2004 15:33
af dabb
Ég varaði ykkur við þessu samsung drasli

Sent: Mið 07. Jan 2004 16:49
af ICM
þar sem ég hef ekki lent í þessum vandræðum smá spurning. Er þetta limit ekki bara á ef þú reynir að gera eitt stórt parition? geturðu ekki gert eitt lítið fyrir windows án service pack 1, sett SP1 upp og búið svo til nýtt partition með Disk Management og náð þá fullri nýtingu á diskinn?
Sent: Mið 07. Jan 2004 16:52
af gnarr
jú, ég hef gert þannig, nema að ég stækkaði bara partionið með partition manager eftir að xp var komið inná og komið með sp1
Sent: Mið 07. Jan 2004 16:56
af ICM
Hvað er fólk þá að gera mál úr þessu, þá á ég ekki við ykkur heldur bara almennt. láta eins og það sé eitthvað stór mál.
Sent: Mið 07. Jan 2004 17:00
af gnarr
manstu eftir því þegar þú varst að hneikslast yfir því að apple hefði framleitt einhverja gallaða diska sem að allt þurkaðist útaf ef maður tengdi þá í tölvu með einhverri ákveðinni útgáfu af MacOS X.
þetta er nákvæmlega eins vandamál hjá M$. þessi villa krassar öllum diskum sem að eru 160gb og eru tengdir við tölvur með winxp sem er ekki með sp1. ;(
Sent: Mið 07. Jan 2004 17:08
af ICM
Ég talaði bara um Mac vandamálin því það kom hrúga af critical Apple mistökum á síðasta ári, þeir sem eru með mun minna hardware að huga að. Bara til að troða óhreinni tusku utaní blinda Mac menn sem telja Apple fullkomna.
En nei þetta er ekki eins villa því þá þyrfti þetta að hafa stutt stóra diska fyrir SP1 en síðan skemmt stuðningin við það með SP1. Fólk uppfærði bara panther, tengdi back-up diskana sína við og allt eyðilagðist. Fólk fékk allavega að vita af þessum galla í Windows og ef þeir hafa sett SP1 á tölvuna sem formataði diskin og tengja hann við tölvu án SP1 þá er nokkuð augljóst að það verður hörmung ef kerfið ræður ekki við það án SP1, Apple notendum kom það alveg að óvörðum þegar svipað gerðist hjá þeim. Það er notendum að kenna að þeir klúðruðu þessu á XP, Apple að kenna að þetta klúðraðist á Mac.
Sent: Mið 07. Jan 2004 17:38
af gnarr

trew.. ótrúlegt hvað þú getur munað drengur.
Sent: Mið 07. Jan 2004 18:14
af gumol
dabbtech skrifaði:Ég varaði ykkur við þessu samsung drasli

Vertu ekki svona heimskur
Sent: Mið 07. Jan 2004 19:11
af Hlynzit
dabbtech skrifaði:Ég varaði ykkur við þessu samsung drasli

Þetta er snilldar diskur reyndist mér 100% vel
Sent: Fim 08. Jan 2004 00:13
af gumol
Hlynzit skrifaði:dabbtech skrifaði:Ég varaði ykkur við þessu samsung drasli

Þetta er snilldar diskur reyndist mér 100% vel
Hann heldur að þetta vandamál sem var verið að tala um sé eitthvað sérstaklega við Samsung diska.
Sent: Fös 09. Jan 2004 15:55
af Hlynzi
Þetta er alls ekki diskurinn sjálfur. Heldur er þetta windows partition dæmið. vitiði snillingarnir um eitthvað forrit (sem virkar) sem er gott í að helst recovera parition töfluna svo hún verði nothæf, eða þá að recovera gögnin. Ég reyndi Get Data Back For NTFS, en það var demo version, einhver sem veit um shareware/freeware útgáfu af því ?