9800 gt SLI afl
Sent: Lau 05. Des 2009 01:35
Mun þessi hér http://www.tacens.com/valeo560.htm ráða við 2 9800gt kort í SLI. Skil ekkert í þessum málum, algjör geimvísindi.
Frost skrifaði:Mun þessi hér http://www.tacens.com/valeo560.htm ráða við 2 9800gt kort í SLI. Skil ekkert í þessum málum, algjör geimvísindi.
palmi6400 skrifaði:Frost skrifaði:Mun þessi hér http://www.tacens.com/valeo560.htm ráða við 2 9800gt kort í SLI. Skil ekkert í þessum málum, algjör geimvísindi.
ég stór efa það
Zorglub skrifaði:þetta er ekki alveg svo einfalt. Fer líka mikið eftir hvernig vélin hjá þér er, (hvað mikið af dóti, yfirklukkun og fleira)
Miðað við eðlilegar forsendur ætti þessi gripur að duga.
EN þar sem þetta er mikilvægasti hluturinn í vélinni þá finnst mér að menn eigi ekki að hugsa hvað sleppi, heldur hafa alltaf eitthvað auka![]()
Gamla góða reiknivélin
http://www.extreme.outervision.com/PSUEngine
blitz skrifaði:Þessi reiknivél er svotil crépéz
Kobbmeister skrifaði:blitz skrifaði:Þessi reiknivél er svotil crépéz
Já reyndar. Samkvæmt henni þá þarf ég bara 274W ef ég fæ mér HD5850.

Zorglub skrifaði:Kobbmeister skrifaði:blitz skrifaði:Þessi reiknivél er svotil crépéz
Já reyndar. Samkvæmt henni þá þarf ég bara 274W ef ég fæ mér HD5850.
Tja 5850 er uppgefið 151 W max þannig að ef þú reiknar þetta bara handvirkt þá færðu engar stórkostlegar tölur![]()
9800 GT er uppgefið 105 W max og nú veit ég ekki hverju Frost er að púsla, væntanlega einhverju öðru en undirskriftinni þar sem það er ekkert SLI borð þar, en
það koma samt ekkert mjög háar tölur með tveim svona kortum.
Það er frekar að menn séu oft að nota rusl aflgjafa sem skila kanski 70% af uppgefinni tölu, dottnir niður í 60% eftir 2 ár og eftir stendur þjóðsaga um ímyndaða wattaþörf.
Hinsvegar predika ég sjálfur fyrir yfirstærð á aflgjöfum, bara undir öðrum forsendum, minni hiti, minni hávaði, minni líkur á spennuflökti og ef manni dettur einhver tilraunastarfsemi
í hug, þá kemst maður upp með það án þess að lenda í vandræðum
palmi6400 skrifaði:Two 9800GT running in SLI require at least a 450W PSU w/28A on the 12V rail.
Zorglub skrifaði:Myndi hiklaust byrja á að finna notað 8800 GT, uppfæra svo seinna í 200 línuna eða næstu kynslóð ef hún verður kominn.
Ef þú ert að fá þriggja raufa borð hefurðu svo möguleika að fá eitthvað kríli á slikk og nota fyrir physX, ég er búinn að vera að prófa þetta, er með 2x512 og svo eldra 320 fyrir physX
Kemur eiginlega miklu betur út en ég bjóst við.