Síða 1 af 1

DDR3 Triple channel

Sent: Mán 23. Nóv 2009 21:22
af intenz
Hver er munurinn á triple og dual channel vinnsluminnum? Ég er núna með 1600 MHz triple channel DDR3 og er með DRAM Frequency í 800 MHz. Ég veit ekki hvernig þetta er reiknað, hvort þetta fari út frá double data rate (2*800 = 1600) eða triple channel (3*533 ~= 1600).

Sem sagt ef maður er með 1600 MHz TRIPLE channel minni að þá eigi DRAM Frequency að vera í 533 svo maður nái 1600 MHz takmarkinu eða hvort þetta skipti ekki máli og sé bara alltaf 2x*800 (DDR = double data rate)

Getur einhver útskýrt þetta aðeins?

Einnig, ef mig langar að bæta við vinnsluminnið í tölvunni, get ég þá fengið mér 1x2GB 1600 MHz DDR3 og þá er ég kominn með 8 GB á 1600 MHz?

Re: DDR3 Triple channel

Sent: Mán 23. Nóv 2009 21:33
af Taxi
Þú þarft alltaf að hafa 3 eða 6 minniskubba í móðurborðinu svo það keyrist sem Triple channel.

Re: DDR3 Triple channel

Sent: Mán 23. Nóv 2009 22:05
af intenz
Ansans, móðurborðið er einungis með 4 DDR3 slot. Það hefði sem sagt verið sniðugra að fá sér 4x2GB Dual Channel kubba.

Re: DDR3 Triple channel

Sent: Mán 23. Nóv 2009 22:08
af vesley
þú getur keypt 1 minni í viðbót þá keyra 3 þeirra í triple channel og hitt 1 bara í single channel eitt. værir samt með 8 gb ;)

Re: DDR3 Triple channel

Sent: Mán 23. Nóv 2009 22:11
af intenz
vesley skrifaði:þú getur keypt 1 minni í viðbót þá keyra 3 þeirra í triple channel og hitt 1 bara í single channel eitt. værir samt með 8 gb ;)

Ok, flott. Mikill performance munur á 3x2GB triple channel + 2GB single channel og 4x2GB dual channel?

Einnig, hvernig á ég að reikna út DRAM Frequency svo ég sé með 1600 MHz? 3* (triple channel) eða 2* (double data rate) ?

Re: DDR3 Triple channel

Sent: Mán 23. Nóv 2009 22:28
af Taxi
Já það eru bara 4 x DDR3 raufar á Gigabyte EX58-UD3R borðinu í undirskriftinni hjá þér. #-o

Hvítu minnisraufarnar eru triple channel fyrir 3 minniskubba en þú ferð þá líklega í dual channel á 4 minnum ef þú setur líka í bláu raufina.

Re: DDR3 Triple channel

Sent: Mán 23. Nóv 2009 22:31
af KermitTheFrog
DDR er double data rate hvort sem það er 1, 2 eða 3.

Það reiknast alltaf með tveimur (800x2)

Re: DDR3 Triple channel

Sent: Mán 23. Nóv 2009 22:40
af intenz
KermitTheFrog skrifaði:DDR er double data rate hvort sem það er 1, 2 eða 3.

Það reiknast alltaf með tveimur (800x2)

Já, en er þetta þá í lagi (svo ég fái 1600 MHz)

Mynd

Re: DDR3 Triple channel

Sent: Mán 23. Nóv 2009 22:48
af Taxi
Þetta er allt rétt, þú ert með triple channel og 6 GB á 1600MHz CL.9

Svona á þetta að vera. :wink:

Re: DDR3 Triple channel

Sent: Mán 23. Nóv 2009 22:55
af intenz
Taxi skrifaði:Þetta er allt rétt, þú ert með triple channel og 6 GB á 1600MHz CL.9

Svona á þetta að vera. :wink:

Já, þetta var fyrst 533 en þá fór ég að spá hvort þetta reiknaðist 3 (triple channel) * 533 = 1599 (~1600)...

En flott ef þetta er rétt svona. :)