Síða 1 af 1

Hjálp við uppfærslu.

Sent: Fim 19. Nóv 2009 15:29
af Máni Snær
Kassi: Antec P190 (og tveir aflgjafar: 650W og 550W = 1200W)
Móðurborð: Gigabyte X38-DQ6
Örgjörvi: Q6600 G0
Vinnsluminni: 2x 1GB Kingston HyperX DDR2 1066mhz ( =2gb )
Harður diskur: Raptor 150GB
Vatnskæling

Ég er að hugsa um að kaupa 1 eða 2 TB af buy.is um mánaðarmótin, mæliði með einhverju öðru ? Stærra vinnsluminni?
Eitthvað sjónvarpskort sem er mega fyrir ok verð?

Ég er á leið til Dk yfir jólin svo ef það eru einhverjar búðir í Evrópu sem bjóða upp á betri hluti en fást hér heima endilega bendið mér þá á þær, mig langar rosalega í sjónvarpskort og 2tb disk t.d.

Re: Hjálp við uppfærslu.

Sent: Fim 19. Nóv 2009 16:04
af vesley
náttúrulega alltaf hægt að uppfæra . eins og skjákort. kannski nýr örgjörvi og móðurborð ; ) (það gæti reyndar orðið kostnaðarsamt)

Re: Hjálp við uppfærslu.

Sent: Fim 19. Nóv 2009 16:41
af gardar
Fer allt eftir því hvað þú ert að nota Máni.

Ertu að nota vinnsluminnið 100%?
Ef já, þá kaupirðu meira vinnsluminni. Ef nei, þá geturðu sleppt því

Ertu búinn að fylla diskinn og þarft meira pláss?
Ef já, þá kaupirðu fleiri/stærri disk(a). Annars ekki.


Osfrv. :wink:

Re: Hjálp við uppfærslu.

Sent: Mán 23. Nóv 2009 21:35
af Narco
Ef þú átt nóg af seðlum þá væri móðurborð, örri og skjákort nærri lagi en þú ert ekki með skjákortið þarna, svo bara að posta því.
hugsa að garðar sé með þetta, kaupa meira geymslupláss og meira minni.