Síða 1 af 1
USA keyboard remapping
Sent: Þri 10. Nóv 2009 13:27
af Hargo
Ég er með USA lyklaborð.
Mig sárlega vantar þessi tákn: < >
Ég nota SharpKeys forritið til að remappa tökkum. Fyrir ofan vinstri og hægri örvatakkana hjá mér eru einhverjir spes takkar til að fara back og forward í vafranum sem ég nota aldrei. Ég ætlaði sem sagt að remappa þá yfir í "<" og ">". Ég finn "<" og ">" takkana í forritinu en þar sem ég er með íslenskt layout á USA lyklaborði þá eru þeir notaðir fyrir kommu-og punkt, eða "," og "."
Ég veit ekki alveg hvort þið fattið það sem ég er að reyna að segja, svolítið erfitt að koma orðum að því. En þegar ég er búinn að breyta þessu eru þessir nýju takkar bara "," og "." en ekki "<" og ">". Ég prófaði að breyta yfir í USA layout og þá virkar þetta remap fínt.
Getur einhver hérna sagt mér hvaða takkar á íslensku lyklaborði eru notaðir fyrir "<" og ">", væri enn betra að fá númerin á þeim (t.d. er stafurinn F = 00_21).
Svona lítur lyklaborðið mitt út - fyrir utan numeric keypad þar sem þetta er fartölva. Svo er ég með eins og áður sagði tvo auka takka fyrir ofan örvatakkana sem ég er að reyna að breyta í "<" og ">".
Re: USA keyboard remapping
Sent: Þri 10. Nóv 2009 13:34
af Cascade
USA lyklaborð eru með stóran shift takka, þeas á íslensku lyklaborði er <>| á milli vinstri shift og z
Vinur minn sagðist hafa sett e-ð svona dót þannig ctrl+x og ctrl+a eða hvað sem er þannig séð til að gera þessi tákn
Ákkúrat útaf þessari ástæðu sökka USA lyklaborð
Þú getur svo verið grand og keypt íslenskt lyklaborð hjá nýherja, held að það kosti um 15k
Re: USA keyboard remapping
Sent: Þri 10. Nóv 2009 13:46
af Hargo
Cascade skrifaði:USA lyklaborð eru með stóran shift takka, þeas á íslensku lyklaborði er <>| á milli vinstri shift og z
Ef einhver getur skipt yfir í USA layout á íslenska lyklaborðinu sínu, ýtt á þennan takka og sagt mér hvaða tákn hann fær út þá væri það vel þegið...
Er ekki alveg að tíma að splæsa 15þús kalli í nýtt lyklaborð á vélina...allavega ekki alveg strax ef ég get reddað mér öðruvísi.
Re: USA keyboard remapping
Sent: Þri 10. Nóv 2009 13:57
af Cascade
Hargo skrifaði:Cascade skrifaði:USA lyklaborð eru með stóran shift takka, þeas á íslensku lyklaborði er <>| á milli vinstri shift og z
Ef einhver getur skipt yfir í USA layout á íslenska lyklaborðinu sínu, ýtt á þennan takka og sagt mér hvaða tákn hann fær út þá væri það vel þegið...
Er ekki alveg að tíma að splæsa 15þús kalli í nýtt lyklaborð á vélina...allavega ekki alveg strax ef ég get reddað mér öðruvísi.
Ég valdi USA og þá var þessi takki eins, væntanlega því þetta er enn stillt með "generic 105 key keybord"
Þessi takki er einfaldlega ekki í USA layoutinu sem er 104 takka, svo ég efa að það myndi koma e-ð
Re: USA keyboard remapping
Sent: Þri 10. Nóv 2009 16:25
af Hargo
Ah damn, þetta ætlar að verða erfiðara en ég hélt...
Re: USA keyboard remapping
Sent: Þri 10. Nóv 2009 19:01
af DoofuZ
Á mínum lappa leysti ég þetta vandamál einfaldlega með því að fara í Regional and Language Settings í Control Panel, var með bæði íslensku og ensku, smellti svo á Key Settings og valdi þar að láta t.d. CTRL+Shift takkann skipta á milli. Þannig gat ég skrifað allt á íslensku en ýtti svo á CTRL+Shift og gerði táknin með , og . tökkunum, ýtti svo aftur á CTRL+Shift og hélt áfram með íslenskuna

Re: USA keyboard remapping
Sent: Þri 10. Nóv 2009 19:43
af Hargo
DoofuZ skrifaði:Á mínum lappa leysti ég þetta vandamál einfaldlega með því að fara í Regional and Language Settings í Control Panel, var með bæði íslensku og ensku, smellti svo á Key Settings og valdi þar að láta t.d. CTRL+Shift takkann skipta á milli. Þannig gat ég skrifað allt á íslensku en ýtti svo á CTRL+Shift og gerði táknin með , og . tökkunum, ýtti svo aftur á CTRL+Shift og hélt áfram með íslenskuna

Takk fyrir þetta ráð, reyni að redda mér þannig þar til ég splæsi í nýtt lyklaborð á lappann

Re: USA keyboard remapping
Sent: Þri 10. Nóv 2009 20:58
af lukkuláki
Geturðu ekki notað þessa aðferð ?
Heldur inni vinstri 'alt' og gerir 0139 eða 0155
0139 =
‹0155 =
›Maður er enga stund að venjast því og það er ódýrara en nýtt lyklaborð

Re: USA keyboard remapping
Sent: Þri 10. Nóv 2009 21:04
af JohnnyX
lukkuláki skrifaði:Geturðu ekki notað þessa aðferð ?
Heldur inni vinstri 'alt' og gerir 0139 eða 0155
0139 =
‹0155 =
›Maður er enga stund að venjast því og það er ódýrara en nýtt lyklaborð

er hægt að gera það á fartölvu eða ?
Re: USA keyboard remapping
Sent: Þri 10. Nóv 2009 21:04
af Viktor
lukkuláki skrifaði:Geturðu ekki notað þessa aðferð ?
Heldur inni vinstri 'alt' og gerir 0139 eða 0155
0139 =
‹0155 =
›Maður er enga stund að venjast því og það er ódýrara en nýtt lyklaborð

Fæstir lappar eru með keypad.
Re: USA keyboard remapping
Sent: Þri 10. Nóv 2009 21:13
af Nariur
Fn keypadið, með 456123 á uiojkl
Re: USA keyboard remapping
Sent: Þri 10. Nóv 2009 21:40
af Hargo
Virkar ef ég nota FN keypadið. Maður þarf að venjast þessu, spurning hvort er fljótlegra, aðferðin hjá Lukku Láka eða Doofuz.