Síða 1 af 1

Vandræði í Bootinu

Sent: Mán 26. Okt 2009 16:39
af Beetle
Var að setja saman vél ( Gigabyte GA-P35-DS3R móðurborð, E6300 Wofdale 45nm, 2x2gb Super Talent minni ) en þegar ég ræsi, fer vélin í gang en slekkur strax á sér e. nokkrar sek, og byrjar aftur að boota sig, það kemur ekkert fram á skjá ! Hvað er möguleg skýring ?

Re: Vandræði í Bootinu

Sent: Mán 26. Okt 2009 16:42
af AntiTrust
Festiru kælinguna 100% nógu vel á CPU? Settiru ekki pottþétt kælikrem á milli?

Re: Vandræði í Bootinu

Sent: Mán 26. Okt 2009 16:48
af Beetle
Jú, notaði bara stock viftuna.

Re: Vandræði í Bootinu

Sent: Mán 26. Okt 2009 16:59
af vesley
alveg 100% viss að allt sé rétt sett saman ?

Re: Vandræði í Bootinu

Sent: Mán 26. Okt 2009 17:50
af Halli25
Hljómar eins og þú hafir ekki lokað CPU sveifinni eða smellt minnunum nægilega vel í raufarnar.

Re: Vandræði í Bootinu

Sent: Mán 26. Okt 2009 18:01
af vesley
jafnvel ekki snúið cpu-inum rétt .

Re: Vandræði í Bootinu

Sent: Mán 26. Okt 2009 18:17
af Beetle
tékka á þessu

Re: Vandræði í Bootinu

Sent: Mán 26. Okt 2009 20:34
af himminn
vesley skrifaði:jafnvel ekki snúið cpu-inum rétt .

Ég held að hann mundi ekki missa af því þegar hann mundi læsa ef örgjörvinn snéri vitlaust.

Gæti verið að þú þurfir að uppfæra biosinn? Annars lenti ég í náhvæmlega sama vandamáli um daginn, og eftir að hafa rifið tölvuna í sundur svona 7 sinnum til að finna bilunina og var alveg búinn að gefast upp en áhvað samt að reseta cmos og þá virkaði hún aftur,

Re: Vandræði í Bootinu

Sent: Mán 26. Okt 2009 20:41
af vesley
er að tala um þetta

Mynd

Mynd

Re: Vandræði í Bootinu

Sent: Mán 26. Okt 2009 20:50
af himminn
vesley skrifaði:er að tala um þetta

Mynd

Mynd


Ef að örgjörvinn snýr ekki rétt sest hann ekki, ég er nokk viss um það, og myndin þín sýnir það.

Re: Vandræði í Bootinu

Sent: Mán 26. Okt 2009 21:27
af vesley
mig minnir að það sé hægt að snúa honum 180° vitlaust og hann setjist .. en kannski er ég bara að bulla : S

Re: Vandræði í Bootinu

Sent: Mán 26. Okt 2009 21:56
af himminn
Held að litlu bitarnir þarna komi í veg fyrir að örgjörvinn geti sest vitlaust í á nokkurn hátt.

Mynd

Re: Vandræði í Bootinu

Sent: Mán 26. Okt 2009 22:03
af Beetle
4 pinnar í socketinu voru beyglaðir, reddaði með stækkunargleri og pínu skrúfujárni. Samt takk f. ráðin :)