Síða 1 af 1

LCD skjár

Sent: Lau 27. Des 2003 17:58
af Trassi
Jæja smá spurning.

Ætla að kaupa 19" LCD skjá, verð ekki yfir 100 k, og plís ekki segja mér að kaupa túbu skjá :) Er ákveðin að fjárfesta í þessu...

En hvað er málið að kaupa, Hansol, Dell, Neovo? Hafiði reynslu af einhverju af þessu?

Öll hjálp vel þegin :)

Sent: Lau 27. Des 2003 18:58
af Arnar
getur fengið massa **** skjá á innan við 100þús, annars hef ég því miður ekkert skoðað lcd skjá :/

Sent: Þri 30. Des 2003 21:23
af odinnn
ég veit bara að 19" Hansol skjárinn ghostar geðveikt mikið. síðan er 19" LCD skjár mjög stór, og mér finnst 17" LCD skjár svipaður og 19" túba.

fáðu helst að prófa skjánna áður en þú kaupir þá þar sem þeir ghosta meira en túbur (þó minn LCD ghosti ekki neitt). ef þú ert mikið í leikjum þá þarftu að hafa prófað skjáinn því flestir LCD skjáirnir eru ekki góðir í leiki.

Sent: Þri 30. Des 2003 23:10
af Bendill
Ég myndi mæla með að fara í búðir sem selja þessa skjái og fá að reynsluaka... Ég fór niður í EJS og fékk að skoða 19" TFT skjá, hann var magnaður, svo magnaður jafnvel að ég gleymdi að spyrja hvað hann kostaði. Ég hugsaði bara með mér "Vá... ég mun aldrei hafa efni á þessu"

Sent: Mið 31. Des 2003 00:52
af Jakob
Ég mæli með því að þú skoðir NEC LCD skjái frá Ormsson.is.
Sjálfur er ég með NEC LCD1701, og er mjög sáttur með hann.

Sent: Fös 02. Jan 2004 22:31
af Minuz1
Var svo heppinn að vinna 19" uppboðið hjá bt og fékk einn fujitsu siemens skjá á 50k....þeir voru svo á jólatilboði á 79k en ég veit ekki hvort þeir séu með það ennþá í gangi.

Þetta er mjög fínn skjár....en ekki í hraða fps leiki....ef þú vilt svoleiðis skjá sem er 19" þá skaltu vera tilbúinn í að punga út meira en 100k.

1. mál sem þú skalt kynna þér áður en þú kaupir þér svona skjá eru ábyrðarskilmálar vegna dead pixels hjá framleiðendum...það er fín grein um þetta á tomshardware.....

ef þú vilt á góðan lcd skjá fyrir hraða tölvuleiki farðu þá niður í 17" eða dýpkaðu vasana þína...þú færð ekki 19" skjá með >20ms response á svona pening....

Svona fyrir þá sem hafa gaman af því að slefa http://www.go-l.com/monitors/grand_canyon/features/index.htm

Sent: Sun 04. Jan 2004 23:02
af gnarr
Minuz1 skrifaði:Svona fyrir þá sem hafa gaman af því að slefa http://www.go-l.com/monitors/grand_canyon/features/index.htm


þetta er hoax..

Sent: Sun 04. Jan 2004 23:05
af Zaphod
Minuz1 skrifaði:
Svona fyrir þá sem hafa gaman af því að slefa http://www.go-l.com/monitors/grand_cany ... /index.htm


þetta er hoax..



Þetta er samt eitthvað til að slefa yfir :P