Síða 1 af 1

OCZ vs Mushkin

Sent: Fim 15. Okt 2009 23:24
af Opes
Sælir.
Er að fara að fjárfesta í nýjum minnum.

http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=20646

vs

http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=17713

Hvort vinnur?

-Siggi

Re: OCZ vs Mushkin

Sent: Fös 16. Okt 2009 02:39
af chaplin
Aldrei heyrt um þetta Mushkin minni, get þó staðfest að báðir framleiðendur eru mjög ofarlega, ef ekki efst yfir bestu minni á markaðinum. Sjálfur nota ég Mushkin, fékk mér það bara afþví OCZ minnið sem ég ætlaði að fá mér var ekki til, en sé alls ekki eftir því.

Miðað við það sem ég sá, er OCZ minnið betra, með mikið betri timings og myndi yfirklukkast talsvert betur, en ÞÓ.. eftir að lesa user review (sem ég tek mesta markmið á) kemur það ILLA út! http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6820227478 - myndi svo frekar leitast eftir triple minni.

Ef þú ætlar að taka annaðhvort minnið, taktu þá OCZ, eingöngu afþví það er með betra timings og ég finn ekkert review um Mushkin minnið.. myndi samt bíða smá og sjá betri umfjöllun um minnið.

Re: OCZ vs Mushkin

Sent: Fös 16. Okt 2009 12:28
af vesley
það er rétt hjá þér að það er um 11 k úti . en við búum á íslandi og þurfum að flytja svona vörur inn og það kostar. það er um 20 þús kall hingað komið til landsins.

Re: OCZ vs Mushkin

Sent: Fös 16. Okt 2009 13:58
af chaplin
Það er nú bara svo miklu ódýrara fyrir fyrirtæki að flytja vörur til landsins. Einnig kaupa þeir magn af vörunum og fá því magnafslátt.

Re: OCZ vs Mushkin

Sent: Fös 16. Okt 2009 17:50
af Opes
Keypti Mushkin minnin. Hef góða reynslu af Mushkin, en ekki OCZ, og tæknimaðurinn sagði að þau væru að virka betur á þessu móðurborði en OCZ minnin. Takk fyrir svörin.

Re: OCZ vs Mushkin

Sent: Sun 22. Nóv 2009 04:15
af Narco
Taktu frekar Geil minni hjá kísildal, í prófunum hefur það verið að standa sig betur en mikið dýrari minni. Það kemur einnig betur út í yfirklukkun en flest af þessum minnum sem ég hef verið að skoða.