Síða 1 af 1

móðurborð: hvaða chipset er best?

Sent: Þri 13. Okt 2009 15:15
af Arnarfreyr
hef verið að leita mer af móðurborði og ætlaði að sja hvort þið vissuð fra hvaða framleiðenda þeas Asus,MSI,Gigabyte og hvaða chipset eru best nu til dags er að leita mer að am2 am3 eða 775 borði

Re: móðurborð

Sent: Mið 14. Okt 2009 19:47
af Selurinn
P35/P43/P45/P55/X38/X48/X58
770/780G/785GT/790FXT

Er það þetta sem þú ert að fiska eftir?
Grunar samt ekki.....

Re: móðurborð

Sent: Mið 14. Okt 2009 20:02
af vesley
ætli hann sé ekki að leita af ráðleggingum um móðurborð.

Re: móðurborð

Sent: Mið 14. Okt 2009 20:10
af Selurinn
Já, en hann gæti þess vegna verið að leita af öllu.

Hann nefnir socket sem, ef ekki öll móðurborð koma með í dag.
Á maður kannski bara að benda honum á öll borð?

Segðu okkur aðeins til hversskonar brúks þetta verður.....

Re: móðurborð

Sent: Mið 14. Okt 2009 20:13
af mercury
ég er að spá í að fá mér nýtt og er heitur fyrir þessu. http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=2597

Re: móðurborð

Sent: Mið 14. Okt 2009 20:17
af Selurinn
Mjög gott borð fyrir þennan pening.

Go for it.

Re: móðurborð: hvaða chipset er best?

Sent: Mið 14. Okt 2009 20:41
af mercury
er þetta ekki tip top fyrir overclock ? eða er einhvað þessu líkt betra ? http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=19587

Re: móðurborð: hvaða chipset er best?

Sent: Mið 14. Okt 2009 21:04
af Selurinn
Ok,

Ef þú ert að hugsa um overclock, þá Gigabyte all the way.
Það er stundum þvílíkt basl að yfirklukka MSI borð, nema að þau séu Platinum, sem er í þessu tilviki, en þú gætir samt lennt í einhverju hnökkri.
Ég hef persónulega alltaf sjálfur verið að nota Gigabyte núna seinustu árin, ekkert vesen og lítið basl, hef náð góðu max clocki á flestum ef ekki öllum Gigabyte borðum.
Ef þú ert tilbúinn að eyða nokkrum þússurum í Gigabyte borðið, þá myndi ég ekki hika við það.

Á milli borðsins frá Starts og Tölvuteks, þá er MSI borðið með sömu möguleika og Gigabyte borðið.
Gigabyte borðið hefur Solid Capacitors ásamt 2oz kæliplötu sem liggur undir allt borðið, svo ef við erum að horfa á yfirklukkunar hliðina, þá hefur Gigabyte vinninginn. (Svo einhverjar litlar breytingar eins og Gigabyte borðið hefur 2xGb Ethernet port)

Mig hefur í rauninni alltaf fundið BIOSinn þægilegri í Gigabyte heldur en MSI, en það er bara persónubundið.
Sama hvað þú velur í rauninni, þá er hvorugt þessara borða slæmur kostur.

Re: móðurborð: hvaða chipset er best?

Sent: Fim 15. Okt 2009 00:32
af Arnarfreyr
hehe fyrirgefið með að vera ekki detailaðari en vildi bara vita það sama og mercury uppa overclock og fleiri fitusa hvernig það væri i asus og asrock og fleirum hvað er svona með bestu eiginleikana :P