Síða 1 af 1

AGP Aperture size

Sent: Þri 23. Des 2003 21:06
af Snikkari
Í BIOS hjá mér, undir AGP Aperture size, er hægt að velja: 4Mb, 8Mb, 16Mb, 32Mb, 64Mb, 128Mb og 256Mb.

Hvað þýðir þetta AGP Aperture size.
Á maður að stilla það á 128Mb ef maður er með 128Mb skjákort ?

Sent: Þri 23. Des 2003 21:07
af Arnar
Ég var einmitt að pæla í þessu, spurði um daginn af þessu á #vaktin.is en fékk því miður ekkert svar

Sent: Þri 23. Des 2003 21:19
af Fletch
AGP aperture size segir til um hve mikið að venjulega vinnsluminninu skjákortið megi nota ef það klárar onboard skjákortsminnið.. Flestir leikir reyna hinsvegar að nota eingöngu minnið á skjákortinu þar sem vinnlsuminnið í tölvunni er mun hægvirkara...

Því ætti agp aperture size að vera stillt lægra eftir því sem skjákortsminnið er meira, helst skjákort með lítið onboard minni sem nota þetta...

Persónulega stilli ég þetta á 64MB eða 128MB, ekki tekið eftir neinum mun...

Mæli ekki með að stilla þetta á hærri tölu því þá verður GART taflan stór.

Fletch

Sent: Þri 23. Des 2003 21:44
af Fletch
ps, hérna er gott site til að lesa um allar þessar bios stillingar

http://www.rojakpot.com/freebog.aspx

Fletch

Sent: Þri 23. Des 2003 21:59
af Snikkari
Takk fyrir upplýsingarnar.
Það er ómetanlegt að hafa aðgang að þér Fletch.

Sent: Þri 23. Des 2003 23:42
af Arnar
sammála :)

Sent: Þri 23. Des 2003 23:58
af Fletch
thanks :8)

Fletch

Sent: Þri 23. Des 2003 23:59
af SkaveN
Hérna er önnur sem ég hef notast við í nokkur ár :wink:

Hérna!!