Síða 1 af 1
Barton vs. Thoroughbred ?
Sent: Sun 14. Des 2003 18:42
af DippeR
Mig vantar smávegis hjálp.
Mig langar í nýjan ögga (er með XP 1700+) en ég get farið allt upp í 2600XP ef ég uppdeita BIOSinn.
Þá var ég að pæla hvort að það skipti þá máli hvort að það sé Barton eða Tbred ?
Og hver í ósköpunum er munurinn á þeim 2? Er alveg óskaplega villtur í harðbúnaðarmálum

Sent: Sun 14. Des 2003 19:00
af Arnar
Meira L2 cache í barton held ég = betri
Sent: Sun 14. Des 2003 19:01
af DippeR
Ef enginn nennir að útskýra þetta fyrir núbba einsog mér þá væri ég alveg til í link á upplýsingar um þetta mál
Fann ekkert sjálfur

Sent: Sun 14. Des 2003 19:08
af SkaveN
Barton: FSB er
333 MHz (166 MHz DDR) og er með
512K L2 Cache
Thoroughbred: FSB er
266 MHz (133 MHz DDR) og er með
256K L2 Cache
Vona ég fari með rétt mál
Myndi frekar fá mér Barton örran

Sent: Sun 14. Des 2003 19:13
af DippeR
SkaveN skrifaði:Barton: FSB er
333 MHz (166 MHz DDR) og er með
512K L2 Cache
Thoroughbred: FSB er
266 MHz (133 MHz DDR) og er með
256K L2 Cache
Vona ég fari með rétt mál
Myndi frekar fá mér Barton örran

En þá vaknar upp spurningin, GET ég fengið mér Barton?
Eins og ég segi, þá er móbóið sirka 2ára og þetta er allt bundið við það að ég uppfæri BIOSinn.
Það segir ekkert í release notes með bios uppdeitinu. Segir bara "support for up to amd 2600XP".
Sent: Sun 14. Des 2003 19:20
af Zaphod
finna bara info um móbóið á heimasíðu framleiðandans
Sent: Sun 14. Des 2003 20:00
af DippeR
Zaphod skrifaði:finna bara info um móbóið á heimasíðu framleiðandans
Ég er búinn að skoða það.. Málið er bara að ég er svo mikill græningi að ég veit ekki hvort að það supporti Barton
http://www.asus.com/prog/spec.asp?m=A7N266-E&langs=01
Sent: Sun 14. Des 2003 21:50
af halanegri
Nei, þetta móðurborð supportar bara 266mhz FSB mest, en Barton keyrir á 333mhz FSB.

Sent: Mán 15. Des 2003 01:05
af DippeR
halanegri skrifaði:Nei, þetta móðurborð supportar bara 266mhz FSB mest, en Barton keyrir á 333mhz FSB.

oh, well...
Þar fór sú von
En er einhver rosalegur performance munur á milli Barton og Tbred?
Sent: Mán 15. Des 2003 01:54
af halanegri
Ekkert rosalegur, fáðu þér bara góðann Tbred, þeir eru nú svo ódýrir núna...
Til dæmis:
Tbred 2400+ 10.925
Re: Barton vs. Thoroughbred ?
Sent: Mán 15. Des 2003 02:09
af legi
Tsjah þú hefur náttúrlega ekkert við Barton að gera þar sem hann keyrir á 333 mhz fsb, tb 2600 er ekki lengur framleiddur 266 mhz, og sennilega ekki til lengur í búðum. Þannig að eini möguleikinn er XP 2400, svo geturu náttúrulega splæst í 333 mhz minni og yfirklukkað þennan örgjörva almennilega

en 1700 XP er víst mjög hentugur fyrir yfirklukk...en það er sennilega mikið skynsamlegra að fá sér bara 2400

Sent: Mán 15. Des 2003 07:55
af gnarr
en ef hann fær sér ólæstann barton hækkar multi og lækkar fsb. þá ætti hann að fá betra performance en er á thoroughbred vegna þess að hann er með meira cache.