Síða 1 af 1

Hvað verður um gamlan vélbúnað á Íslandi?

Sent: Fös 10. Júl 2009 01:28
af rapport
Þessi spurning poppaði upp þegar félagi minn í vinnunni fór að tala um eitthvað þorp í Kína sem byggst hefur í kringum einhvern tölvukirkjugarð...

Þar er fólkið að kroppa einhverja málma úr þessu og lifir bara á því...

Googlaði þetta fyrir Ísland og fann út að Fjölsmiðjan tætir tölvur fyrir e-h sorpeyðsæufyrirtæki... en efast um að þeir fái allt til sín.

Seinast þegar ég vissi kostaði það fyrirtæki að farga þessu... (allavega túbuskjáir kostaði helling að fara þegar LCD kom í staðinn í heilu fyrirtækin ... man ég).

En líka bara pæling uppá að komast í gamla ódýra parta (þá meina ég fornaldarparta)...

Re: Hvað verður um gamlan vélbúnað á Íslandi?

Sent: Fös 10. Júl 2009 01:37
af sakaxxx
fjölsmiðjan fær heilan helling af tölvu dóti og sendir það sem hægt er að nota niðrí góða hirðin restin er seld til útlanda