Síða 1 af 1

Gat ekki beðið - búin að uppfæra :)

Sent: Mán 08. Des 2003 12:06
af Snikkari
Jæja, ég bara gat ekki beðið með uppfærslu.

Gamla systemið:
AMD Thunderbird 1000Mhz m/ Coolermaster viftu
QDI Kinetiz 7B
512Mb sdram PC133
GF2 GTS 32Mb
IBM 30Gb
Gamall og þreyttur skröltturn m/300W PSU


Nýja systemið:
AMD 2500XP Barton m/ Zalman CNPS7000A-ALCU
Abit KV7 m/ Zalman heatsink í stað viftu.
Seagate 120GB 7200RPM S-ATA 8mb
512MB DDR 400MHz PC3200
Sapphire Radeon 9600 Pro 128Mb
Chieftec Dragon svartur medium turn m/ 360w PSU
Svart floppy drif

Notaði gamla:
Samsung sm-348B DVD/RW Combo
Aopen Skrifari
SB Live! hljóðkort
Svart lyklaborð
Hvítan Hyundai Q790 skjá
MS mús
Windows XP Pro


Allt keypt og sett saman hjá TASK.IS

Jibbí

Ég hef líka verið að velta því fyrir mér hvort ég græði eitthvað mikið á því að taka 512Mb minni í viðbót. Vera með Þ.e.a.s. 1024Mb.
Nennir einhver að commentera á það hvar maður græðir helst á minnisaukningunni.

Sent: Mán 08. Des 2003 12:15
af Gandalf
og hvað kostaði þetta ?

nenni ekki að fara á síðuna, finna þetta allt og leggja saman :)

Sent: Mán 08. Des 2003 12:46
af Zaphod
congratz :D

Sent: Mán 08. Des 2003 13:33
af Arnar
Og hvernig minni er 400mhz sem er PC2700?

400mhz = PC3200
333mhz = PC2700

Sent: Mán 08. Des 2003 13:57
af Snikkari
Þakka þér fyrir Zaphod, þú ert æði.

Arnar skrifaði:Og hvernig minni er 400mhz sem er PC2700?

400mhz = PC3200
333mhz = PC2700



Það þýðir víst ekki að spyrja mig að því, en allt um það hér:
http://www.task.is/Scripts/prodList.asp?idCategory=73

Bingó, ætli þetta sé ekki prentvilla.
Þetta hlýtur að eiga að vera 333Mhz en ekki 400Mhz.
Og þó, það er ekki sama verð á 512Mb 333Mhz PC2700 og 512Mb 400Mhz PC2700.
Gæti jafnvel hugsast kæri Arnar að þú sért ekki eins fluggáfaður og þú lætur í té ?
En hvað finnst þér annars um að taka 1024Mb í staðin fyrir 512Mb ?

Blehhh.

Breytt:
Arnar, það lítur allt út fyrir það að þú sért eins fluggáfaður og þú lætur uppi.
Ég hringdi í Task.is og þeir sögðu mér að þetta ætti að vera PC 3200 en ekki PC2700. Þetta er semsagt sérstök prentvilla.
1 - 0 fyrir Arnar :8)

Sent: Mán 08. Des 2003 14:02
af SkaveN
Aldrei heyrt um PC2700 vera 400mhz, Farðu og bentu þeim á þetta og vertu mjúka típan, hver veit kannski færðu endurborgað :wink: má reyna

Auðvita væri frábært að fá sér 2x512.. ert þá að notast við Dual Channel DDR svokallað :) sem mun líklega boosta performance ágætlega

Sent: Mán 08. Des 2003 15:12
af Arnar
Held að dual ddr gefi ekki eins mikip perforamance eins og á intel, þar sem fsb á 2500xp er 333fsb.