Síða 1 af 1
Vesen með S-video
Sent: Þri 02. Jún 2009 22:15
af Lallistori
Sælir , ég var með tölvuna tengda við sjónvarpið mitt og virkaði allt bara æðislega þangað til að eitt kvöldið slökkti ég á tölvunni og myndin hefur ekkert komið inn eftir það , bara hljóðið virkar =/
Er með svona skjákort ef það hjálpar eitthvað.
http://kisildalur.is/?p=2&id=930Einhver sem getur hjálpað mér að laga þetta ?
Re: Vesen með S-video
Sent: Þri 02. Jún 2009 22:21
af IL2
'Eg myndi byrja á því að tengja tölvuna við tölvuskjá og ef þú færð ekki mynd þar heldur, myndi ég halda að skjákortið væri bilað. Gætir lika prófað að setja skjákortið í aðra tölvu til að fullvissa þig um hvort það sé í lagi.
Hljóðið er í lagi þar sem það kemur ekki í gegnum S-Video tengið.
Re: Vesen með S-video
Sent: Þri 02. Jún 2009 22:26
af Lallistori
nei sko er með tölvuskjá tengdann við líka og hann virkar alveg , er með s-video snúru úr skjákortinu og í sjónvarpið

Re: Vesen með S-video
Sent: Þri 02. Jún 2009 22:51
af Gunnar
buinn að stilla í setting fyrir skjáinn? (skjákorts settings)
Re: Vesen með S-video
Sent: Þri 02. Jún 2009 23:22
af Lallistori
svona er þetta í settnings hjá mér.


Re: Vesen með S-video
Sent: Þri 02. Jún 2009 23:34
af KermitTheFrog
Stendur ekki "Attached displays currently disabled"? Kannski málið að enabla sjónvarpið þitt fyrst?
Re: Vesen með S-video
Sent: Þri 02. Jún 2009 23:37
af Lallistori
málið er að ég á að hægri klikka á það til að enablea en það er bara ekkert hægt =/
Re: Vesen með S-video
Sent: Mið 03. Jún 2009 00:08
af KermitTheFrog
Þú getur líka reynt að haka í "Force TV detect"
Re: Vesen með S-video
Sent: Mið 03. Jún 2009 17:46
af Lallistori
Er búinn að prufa það en ekkert gengur =/
Re: Vesen með S-video
Sent: Mið 03. Jún 2009 20:52
af Blamus1
Man eftir að hafa lent í svipuðu máli fyrir löngu síðan.
Prufaðu að taka S-video snúruna úr sambandi beggja meginn og restarta pc, slökktu svo á pc og tengdu aftur S-video og prufaðu.
Re: Vesen með S-video
Sent: Fim 04. Jún 2009 19:15
af Lallistori
prufaði það en ekkert gekk , takk samt fyrir ábendinguna

Re: Vesen með S-video
Sent: Fim 04. Jún 2009 21:42
af Bioeight
Ég hef lent nokkrum sinnum í svipuðu og ef þetta er það sama þá er bara að reyna að taka snúruna úr sambandi, slökkva á öllu, tengja aftur, kveikja á öllu, tengja aftur, kveikja á sjónvarpinu en ekki tölvunni, tengja aftur og öfugt, sem sagt prufa mismunandi leiðir og reyna nógu oft. Oft virkaði fyrir mig líka að taka snúruna úr sambandi og taka tölvuna og sjónvarpið úr sambandi og reyna síðan seinna, eftir 20 mínútur eða klukkutíma. Veit ekki alveg hvaða fræði eru á bakvið þetta en hjá mér þá hætti sjónvarpið bara að samþykkja að það væri að koma merki úr snúrunni, hver ástæðan var veit ég ekki. Good luck.
Re: Vesen með S-video
Sent: Fim 04. Jún 2009 23:33
af Blamus1
Ok. er sammála þetta er snúið rugl. ég myndi Prufa næst að uninstalla skjákortsdriver og installa aftur.
Annað sem mér datt í hug er þessi síða, þar er hægt að scanna vélina og heldur hún record yfir öll test hjá þér
http://www.pcpitstop.comÞarft bara að stofna account.