Síða 1 af 1
Hver er munurinn???
Sent: Mið 27. Maí 2009 22:18
af Arnarr
Ættla fara kaupa mér 1tb harðadisk, en er alveg dottinn úr því hvað eru góðir diskar og ekki. Gæti einhver sagt mér t.d. hver munurinn á Seagate Barracuda, Samsung SpinPoint? er alveg lost í þessu sko

Gæti einhver bent mér í rétta átt??

Re: Hver er munurinn???
Sent: Mið 27. Maí 2009 22:37
af KermitTheFrog
Bara mismunandi framleiðendur. Seagate og Samsung eru báðir gæðaframleiðendur.
Re: Hver er munurinn???
Sent: Mið 27. Maí 2009 22:52
af Gúrú
KermitTheFrog skrifaði:Bara mismunandi framleiðendur. Seagate og Samsung eru báðir gæðaframleiðendur.
Held hann sé að spyrja um technicalities hjá SpinPoint vs Barracuda.
Re: Hver er munurinn???
Sent: Mið 27. Maí 2009 22:54
af methylman
Bestar upplýsingar fást á svona síðum [url]
http://www.tomshardware.com/charts/3.5- ... e,658.html [/url]
Já og allir framleiðendur eru gæðagaurar bara mis miklir hver og einn og við neytendur erum trúaðir á okkar framleiðendur og þessvegna kaupi ég aldrei vöru sem er merkt Samsung
Re: Hver er munurinn???
Sent: Fim 28. Maí 2009 01:32
af AntiTrust
Þegar kemur að stórum file storage diskum vel ég eingöngu Seagate.
Samsung eru ágætir en ekki með eins lága bilanatíðini. Hvað sem þú gerir, ekki kaupa Maxtor eða WD.
Re: Hver er munurinn???
Sent: Fim 28. Maí 2009 02:07
af KermitTheFrog
AntiTrust skrifaði:Þegar kemur að stórum file storage diskum vel ég eingöngu Seagate.
Samsung eru ágætir en ekki með eins lága bilanatíðini. Hvað sem þú gerir, ekki kaupa Maxtor eða WD.
Tók Seagate ekki yfir Maxtor?
Re: Hver er munurinn???
Sent: Fim 28. Maí 2009 09:13
af mind
Júbb Seagate tók yfir Maxtor. Það voru samt eitthvað fiffaðar til bilanatölurnar sem þeir gefa út víst.
Ég myndi nú ekki láta WD og Maxtor í sama bát.
WD hefur alls ekki reynst mér illa þó ég sé Seagate maður. T.d. hafa Raptor diskar reynst einstaklega góð kaup.
Re: Hver er munurinn???
Sent: Fim 28. Maí 2009 12:59
af Klemmi
Samsung og Seagate hafa báðir reynst mjög vel hjá okkur, ef eitthvað er þá hafa Samsung bilað minna.
Einnig eru þeir hljóðlátari og einstaklega hraðvirkir, þ.e.a.s. F1 1TB diskarnir, sbr.
http://www.bit-tech.net/hardware/storag ... t-f1-1tb/1
Re: Hver er munurinn???
Sent: Fim 28. Maí 2009 13:47
af SteiniP
Bæði Seagate og Samsung hafa reynst mér mjög vel. Ég hef ekki keypt WD disk í nokkur ár en mér finnst þeir leiðinlega háværir í vinnslu.
Re: Hver er munurinn???
Sent: Fös 29. Maí 2009 10:22
af Halli25
SteiniP skrifaði:Bæði Seagate og Samsung hafa reynst mér mjög vel. Ég hef ekki keypt WD disk í nokkur ár en mér finnst þeir leiðinlega háværir í vinnslu.
Enda hefurðu ekki keypt þér í mörg ár

svo gamlar upplýsingar sem þú hefur um WD að hálfa væri nóg. Ég var að uppfæra og ákvað að nota gamlan WD disk og vá lætin í honum miðað við nýja WD diska!! Er að skröllta og fá mér nýjan WD black disk undir stýrikerfið í staðinn.
Óháðir aðila sem taka saman hlutfall RMA á ýmsum hlutum og þar á meðal harðdiskum sýna að WD bila lang minnst af þessum 3 merkjum.
Re: Hver er munurinn???
Sent: Fös 29. Maí 2009 14:31
af Glazier
kauptu þér bara þann disk sem er ódýrastur og þegar/ef hann bilar þá ferðu bara og kvartar
Re: Hver er munurinn???
Sent: Fös 29. Maí 2009 14:43
af KermitTheFrog
Glazier skrifaði:kauptu þér bara þann disk sem er ódýrastur og þegar/ef hann bilar þá ferðu bara og kvartar
Já, og tapa öllu sem er á disknum?
Re: Hver er munurinn???
Sent: Fös 29. Maí 2009 17:36
af Glazier
KermitTheFrog skrifaði:Glazier skrifaði:kauptu þér bara þann disk sem er ódýrastur og þegar/ef hann bilar þá ferðu bara og kvartar
Já, og tapa öllu sem er á disknum?
ekki gera það sem ég sagði
