Síða 1 af 1

resiza partition

Sent: Mán 18. Maí 2009 12:45
af SteiniP
Málið er að diskurinn sem inniheldur Windows hjá mér er skiptur upp í tvö partition, (C:) 70GB fyrir windowsið og (F:) 630GB fyrir allt annað. Það eru 10GB laus á C: og 100GB laus á F:
En þar sem ég spila mikið af leikjum og er oft með marga stóra leiki setta upp á sama tíma, þá eru 70GB ekki alveg að duga.
Þá er ég með 2 spurningar. 1. Er alveg safe að stækka C: partitionið án þess að eiga á hættu að tapa gögnum? 2. Hvaða forrit er þá best að nota sem að getur bootað af geisladisk?

Re: resiza partition

Sent: Mán 18. Maí 2009 12:47
af AntiTrust
Nota bara Partition Magic 8 fyrir þetta.

Aldrei 100% safe að gera þetta samt, taktu backup af important dóti.

Re: resiza partition

Sent: Mán 18. Maí 2009 13:15
af Dagur
GParted er open source og ókeypis

Re: resiza partition

Sent: Mán 18. Maí 2009 14:47
af SteiniP
Ég er alveg skíthræddur við þetta. Vil helst ekki hætta á að tapa öllu tónlistarsafninu. Á nefnilega ekkert laust pláss til að backuppa.
Ætli ég byrji ekki að bara installa drasli á hitt partitionið... það verður samt svo subbulegt :|
En takk fyrir að benda mér á gparted, vissi ekki að það væri til.