Síða 1 af 1

Horfinn harði diskur?!?

Sent: Sun 17. Maí 2009 17:42
af Some0ne
Restartaði tölvunni í gær, ákvað að glugga aðeins í biosinn bara að skoða mig aðeins um (tiltölulega ný tölva) , breytti engu og exita.
Tölvan rebootar, og núna finnst harði diskurinn sem er tengdur í sATA ekki, geisladrifið finnst en harði diskurinn er horfinn.

Ég stend eginlega á gati, hann er vel tengdur, og ekki eins og ég hafi verið að grúska inní tölvunni neitt, og inní biosnum þá er röð yfir 6 ata devies, þar er bara eitt sem finnst sem er optical driveið, á meðan að í öllum hinum stendur að það sé ekkert.

Any words of wisdom?

Re: Horfinn harði diskur?!?

Sent: Sun 17. Maí 2009 17:43
af AntiTrust
Fyrsta sem mér dettur í hug er tilviljunarkennd bilun á harða disknum.

Prufaðu default settings í BIOS.

Re: Horfinn harði diskur?!?

Sent: Sun 17. Maí 2009 17:44
af hendrixx
búna prófa aftengja diskinn og tengja hann svo aftur?

Re: Horfinn harði diskur?!?

Sent: Sun 17. Maí 2009 17:56
af Some0ne
Er búinn að prófa að loada default bios, sama. Búinn að prófa að aftengja diskinn algjörlega, og svo færa um sata tengi á móðurborðinu. Nada :( Samt ef ég kveiki á tölvunni, og legg höndina við hann þá spinnar hann alveg í gang og allt, en virðist vera steindauður.

Re: Horfinn harði diskur?!?

Sent: Sun 17. Maí 2009 18:07
af AntiTrust
Færðu hann upp í disk management?

Re: Horfinn harði diskur?!?

Sent: Sun 17. Maí 2009 18:10
af Some0ne
Þetta er OS diskurinn minn, enginn annar HD í tölvunni, biosinn finnur hann ekki, og það bootast ekki af honum.

Re: Horfinn harði diskur?!?

Sent: Sun 17. Maí 2009 18:13
af AntiTrust
Tengja diskinn við aðra tölvu eða boota upp af diagnostic disk og prófa diskinn.

Re: Horfinn harði diskur?!?

Sent: Sun 17. Maí 2009 18:27
af Some0ne
Hvað gagnast diagnostic diskur mér ef að biosinn finnur diskinn ekki einu sinni, það er bara eins og hann sé vaporized. Fer með hana á morgun í tölvutækni bandbrjálaður

Takk fyrir svörin samt!

Re: Horfinn harði diskur?!?

Sent: Sun 17. Maí 2009 20:23
af viddi
Some0ne skrifaði:Hvað gagnast diagnostic diskur mér ef að biosinn finnur diskinn ekki einu sinni, það er bara eins og hann sé vaporized. Fer með hana á morgun í tölvutækni bandbrjálaður

Takk fyrir svörin samt!


Getur nú líka allveg spjallað við þá á rólegu nótunum, þeir hjálpa þér örugglega þannig líka

Re: Horfinn harði diskur?!?

Sent: Sun 17. Maí 2009 21:25
af Some0ne
Þetta var nú meira spaug sko, hef engar áhyggjur af því að þeir muni leysa þetta mjög vel og skilvirknislega fyrir mig enda þekki ég ekkert annað frá þeim.